is-modern-dev
Universal Dependencies - Icelandic - Modern
Language | Icelandic |
---|
Project | Modern |
---|
Corpus Part | dev |
---|
Annotation | Rúnarsson, Kristján; Arnardóttir, Þórunn; Hafsteinsson, Hinrik; Barkarson, Starkaður; Jónsdóttir, Hildur; Steingrímsson, Steinþór; Sigurðsson, Einar Freyr |
---|
View options
Tags:
Javascript seems to be turned off, or there was a communication error. Turn on Javascript for more display options.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
Samanburðurinn við Sviss var áhugaverður. Sviss er væntanlega í allt annarri stöðu en við þar sem þeir þurfa ekki sífellt að fella gengi sitt til að vera samanburðarhæfir og geta verið í samvinnu við aðrar þjóðir, af því þeir eru svo sterkir á velli. Skil ég þingmanninn rétt að hún telji að þetta geti haldið svona áfram um X langa tíð eða alla vega þau þrjú ár sem þessi ríkisstjórn á að eiga eftir, eða hvað sér hún fyrir sér með þetta hlé? Getum við sætt okkur við að vera í eilífu hléi eins og Sviss? Virðulegi forseti. Þetta er vissulega áhugavert sjónarmið hv. þingmanns og ég get skilið það sem hann segir hér. Ég skil einfaldlega ekki að þessi boð til framkvæmdarvaldsins séu ekki nógu skýr. Ég er kannski eitthvað óþolinmóðari en hv. þingmaður út af því að þetta lá fyrir, þetta lá fyrir meira að segja vel fyrir kosningar. Fyrir kosningar voru allir flokkar sammála um þetta og við heyrðum ýmis falleg kosningaloforð um að bjarga Landspítalanum og fara að byggja nýjan Landspítala hjá öllum flokkum. Þetta var frekar skýrt. Kannski voru einhverjir innan einhverra flokka ekki búnir að tala sig saman, en það hefur held ég gerst núna. Auðvitað þurfum við að eiga umræðuna til þess að það gerist, ég tek undir með þingmanninum með það.
Download XML • Download text
• Sentence view • Dependency trees