Text view
isl-31
View options
Tags:
Javascript seems to be turned off, or there was a communication error. Turn on Javascript for more display options.
Hverjar eru eigur Baugs Group í Danmörku og hvernig eru þær skuldsettar ?
Já gott fólk ! Dúndurfréttir eru að fara halda afmælistónleika í næstu viku ! Þeir ætla að halda heila 4 tónleika á 2 dögum sem er örugglega met . Fór síðast á tónleika með þeim í Austurbæ í nóvember í fyrra og voru það með betri tónleikum sem ég hef upplifað , þó ég hafi fengið ömurleg sæti , en það skipti engu máli þarna hvar maður sat .
p . s . við höldum alltaf upp á afmæli pabba , þó hann hafi dáið fyrir rúmum 40 árum og syngjum afmælissönginn við leiðið hans . Ég er viss um að hann kíkir við .
Nokkrir VG þingmenn segjast vera andvígir aðild en vilja sjá hvað næst fram í samningi og fella hann svo í þjóðaratkvæðagreiðslu . En umsóknarferlið er ekki bara samningaviðræður , heldur aðlögunarferli sem ætlað er að festa þjóðina í netinu og gera henni erfiðara fyrir að taka upplýsta ákvörðun á eigin forsendum . Hverju er líka að treysta um sjónarmið þessarra þingmanna þegar á hólminn kemur ? Þegar tækifærissinnar fara á skrið veit enginn hvar þeir enda . Það er eins líklegt að margir af þingmönnum VG verði farnir að reka skilyrðislausan áróður fyrir inngöngu í ESB áður en við er litið . Sinnaskiptin geta þeir útskýrt með því að þeir hafi náð svo góðum samningum .
Á laugardagskvöldið voru krakkarnir með kvöldvöku . Þar var einsöngur , leikrit , dansatriði , söngvaatriði og fjöldasöngur og fleira skemmtilegt á dagskrá . Ekkert nema gott um það að segja . Í lok kvöldvökunnar voru svo ljósin slökkt og krakkarnir sögðu draugasögur upp á gamla mátann . Alveg myrkur og allir sátu í hring á gólfinu . Margar sögurnar voru ansi spúkí . Í lokin stóðst ég svo ekki mátið að gera e - ð skemmtilegt . Ég fór fyrir utan húsið , læddist að gluggunum , setti upp peysuhettuna og lamdi og öskraði á gluggana eins og óð manneskja . . . . Krakkarnir öskruðu eins og þau ættu lífið að leysa .
Það er síðan alveg makalaust að fylgjast með skilningsleysi á því að það eru nothæfar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem mundu skjóta traustum stoðum undir innanlandsflug og þar með fólksfjölgun á landsbyggðinni .
Þessi frétt hefur að sjálfsögðu kveikt í Gróu á leiti og graserast allskyns sögur núna í Reykjanesbæ . Ég vil bara taka það fram að ég og Óli Geir tengjumst ekki þessu máli . Við kaupum allar okkar vörur í gegnum NTC ( Sautján ) í Reykjavík og erum því sársaklausir af öllum innflutningi ólöglegra efna til landsins . Vildi bara hafa þetta á hreinu þar sem sögur um okkur þessu tengt eru komnar á gott flug .
Nánar Samkvæmt einhverjum lögum þá máttum við fara ein í sund á þessu ári ( 8 ára ) . Sem er gott . En núna eru nýjar reglur að koma og þá mega bara 10 ára krakkar fara ein í sund . Við erum ekki sátt við að það sé verið að taka réttindi af okkur . Nánar Nánar Af hverju eru útivistartímar ? ? ? Nánar NIÐUR MEÐ ALÞINGIÐ ! Það á ekki að stjórna öðrum . Nánar Hvað eru börnin mörg á Íslandi ? Nánar Mér finnst óréttlátt að sumir megi vera lengi úti , eins og til tíu . Nánar Ég gjörsamlega hata nafnið mitt . Ég væri meira en sáttur ef ég gæti fengið að breyta því . Nánar Börn ættu að fá einhvern stað til þess að hittast og tala um mál sem að skipta í alvörunni máli og það sem ÞEIM börnunum finnst skipta máli . Mér finnst eins og það sé ekki hlustað nógu mikið á okkur . Nánar Má fullorðið fólk skamma mann ef maður gerir eitthvað óvart ? Nánar
Hugtakið kjölfestufjárfestir hefur ekki fyllilega fastmótaða merkingu í íslensku . Ástæða þess að staðnæmst er við þetta hugtak hér er sú þýðing sem það fékk í undirbúningi og síðar ákvörðun um sölu á eignarhlutum ríkisins í Landsbankanum og Búnaðarbankanum . Vakin er athygli á því að í umfjöllun þeirra sem stóðu að þessum málum fyrir hönd ríkisins var með orðinu kjölfestufjárfesti ekki eingöngu vísað til stærðar eignarhluta heldur var þar einnig í ýmsum tilvikum vísað til krafna um þekkingu og reynslu væntanlegs kaupanda af rekstri banka eða á sviði fjármálaþjónustu . Af þessum sökum hefur umfjöllun í þessum kafla náin tengsl við umfjöllun í kafla 6 . 3 . 3 . 2 hér á eftir .
fórum til Rvk um helgina til að éta ! ! hehe og kaupa föt ( ámig ) hahahaha
" Það er erfitt að standa uppréttur í íslensku samfélagi . Þeir sem þó gera það eru einmanna og útskúfaðir , " segir Guðbergur Bergsson rithöfundur . Hann segir miður að íslenskt menningarlíf geti ekki talist hluti af valddreifingu samfélagsins . Rithöfundar séu alltof samþykkir hugafari hrunsins og liggi því kylliflatir fyrir ráðandi hugmyndum . Skýrast birtist það í hvernig fólk sem áður klappaði upp útrásina , efnahagsundrið og íslenska drauminn syngi nú þveröfugan söng sem nú sé í tísku . Gagnrýnisleysið sé enn hið sama þótt kórinn hafi breytt um lag . " Eftir hrun er sjálfsagt að vera á móti valdi enda taka allir skilyrðislaust undir þær hugmyndir . Enginn gefur því sem gerðist andartaks gaum eða gerir raunverulega tilraun til að skilja hvað fór úrskeiðis , " segir Guðbergur .
Kvótakefið fær útgerðarmönnum þannig mikið og jafnframt ógnvænlegt vald ; vald sem leitt hefur til fólksflutninga , eignaskerðinga og félagslegra hörmunga , eins og reyndar spáð var í umsögnum fulltrúa fiskvinnslunnar , þegar frumvarpið var í smíðum .
« Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 3 . okt . kl . 14 : 00 Hægt er að nálgast skráningarblöð hér : »
2 . 8 Kröfur eru um að hliðar og botn hólfa fyrir gaskúta hafi minnst sömu efnismál og vatnsþétt skilrúm viðkomandi báts .
Í morgun fékk hún afmælisgjafir frá mömmu , pabba , Söru Lind og Matthíasi . Það er alltaf gaman að fá pakka og hún var gríðarlega ánægð með það sem hún fékk . Eftir hádegi fékk afmælisstúlkan að ráða hvað yrði gert . Þegar hún var spurð sagði hún að hún væri með óskalista í höfðinu um hvað við skildum gera , en efst á þeim lista væri að fara í heimsókn upp á Bakkastaði . Það var því lán í óláni að amman var veik heima í dag og gat því tekið á móti afmælisstúlkunni og förunauti hennar .
98 . Þingmenn og ráðherrar tóku á sig tímabundna launalækkun um 5 - 15 %
Í kortunum framundan er svosem ekki mikið . Vinnuvikan þarf væntanlega að klárast auk þess sem ég vonast til þess að það fari eitthvað að gerast í vinnu . Það sem ég hef áður minnst á liggur áfram í loftinu en meðan ekkert liggur fyrir konkret sé ég ákveðna ástæðu til að hafa áhyggjur . Ætli maður hætti ekki fyrst að hafa áhyggjur af því hvað verður þegar maður verður kominn undir græna torfu .
Enginn má án leyfis húsráðanda láta fyrir berast á lóðum hans eða landi . Auk þess getur lögreglan bannað mönnum að hafast þar við ef hún telur að það valdi óþægindum eða hættu .
Vegna ölvunar á sunnudagskveldið varð bíllinn eftir heima hjá systu . Þurfti þess vegna að bregða undir mig betri fætinum í morgun og rölta heim til hennar í morgun . Annars var ég ekki sá hressasti þegar ég vaknaði . Svaf auðvitað langt fram eftir degi í gær og sofnaði þess vegna ekki fyrr en eftir dúk og disk einhvern tíma í nótt . Þegar ég loks tussaðist á lappir , þá sé ég hvar ömurleg könguló er búin að gera sig heimkomna á svefnherbergisgólfinu hjá mér , við gríðarlegan fögnuð viðstaddra eins og þið getið rétt ímyndað ykkur . Hún hefur ábyggilega verið þunn eða eitthvað , því hún gerði engar tilraunir til að flýja þegar ég gerði leiftursnögga árás með eldhúsbréfi og henti henni í ruslið . Nú eru einhver köngulóarbörn munaðarlaus á Framnesveginum . . . . - grettir : : hryllir við tilhugsuninni að hafa þetta skríðandi á manni á nóttunni
og því er kominn tími á að huga aðeins að jólahandavinnunni
Milli 1839 og 1841 gerðu Frakkar samninga við höfðingja þeirra ættbálka sem bjuggu við ströndina um að svæðið yrði franskt verndarsvæði . Árið 1849 var borgin Libreville stofnuð af föngum sem frelsaðir höfðu verið af þrælaskipi . 1885 gerðu Frakkar landið að nýlendu og frönsk stjórn hófst 1903 . Árið 1910 var Gabon gert hluti af Frönsku Miðbaugs - Afríku . Árið 1959 var Franska Miðbaugs - Afríka lögð niður og Gabon , Tsjad , Mið - Afríkulýðveldið og Vestur - Kongó fengu sjálfstæði árið eftir .
Þegar Sara spurði hvað franskarnar áttu að vera lengi í steikingarpottinum , þá svaraði Þóra : æj ég held í eina og áttatíu ! he he
Þó þér þyki lífið erfitt er ekki þar með sagt að eitthvað sé að boðefnaframleiðslu þinni í heilanum . Í raun er ekkert sem segir að ævigangan eigi að vera sársaukalaus , sorgarlaus , áfallalaus . Það sem hefur gert okkur Íslendinga að heimsmeisturum í notkun þunglyndislyfja er sú staðreynd að við göngum öðrum framar í að meðhöndla blæbrigði lífsins sem sjúkdóma .
Iconics hefur unnið náið með Microsoft í þróun síns hugbúnaðar og hefur alla tíð tryggt samhæfni hugbúnaðarins við Microsoft lausnir . Iconics hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir vörur sínar og hefur hlotið mikla útbreiðslu . Í dag eru um 230 þúsund uppsett Iconics kerfi í notkun í heiminum . Iconics hugbúnaður hefur vottaða samhæfni við Windows Vista og windows Server 2008 .
Jæja þá er ég búin að flytja sófann , hillur í litlaherbergið og setja þær upp , hillur í stofuna og setja þær upp ( voða lítið og tíkalegt en fín byrjun ) , búin að fá fataskáp hjá Helgu og Jónu . Vantar bara rúmið , sjónvarpið sem ég fer líklega með á eftir , kommóðuna sem ég smíðaði og er með nærfötum og sokkum í , borð fyrir tölvugarminn og hmm já hvað meir . Man ekki í augnablikinu meir en það kemur örugglega . Þetta verður nú smá tómlegt svona fyrst en líklega verð ég fljót að fylla íbúðina af dóti og drasli eins og mér einni er lagið . : ) Síðan er það bara að fá síma og tengingu fyrir netið og þá fer þetta bara allt að smella . Ég er annars að vinna niðirí samtökum annaðkvöld og mamma er alveg að tapa sér af stressi yfir því að ég geti ekki bara losað mig . Hehe held ég þurfi bara á þessu að halda að fara aðeins út og gera eitthvað annað . Þetta reddast allt saman . Hef engar áhyggjur . Þó svo það verði ekki allt spikk and spam á laugardaginn fyrir partýið þá bara só bí it . Ég er sko ekki perfekt og mun aldrei verða það svo því ætti ég að vera það á laugardaginn . En ég ætla annars líka að vera frá á laugardaginn því það er blakmót Fylkis og ég ætla að vera með þar : ) Bara verð að hreyfa mig og fá eitthvað fjör í kroppinn . Þið blakgellur vitið hvað ég meina er þagi ; ) Jæja ég ætla að fara að hreinsa til af skifborðinu svo ég geti farið með það yfir og kannski aðeins tæma skápa og skúffur til að geta flutt kommóðuna yfir og fleira : ) Þar til síðar : )
Ég velti stundum fyrir mér hvernig samsetning bílaflotans hefur þróast undanfarið þar sem stór hluti umferðarinnar er núna stórir bílar svo sem jeppar og pallbílar allskonar . Sú þróun hefur orðið að jeppi er orðinn tákn um velgengni og því hafa menn fjárfest í dýrum og stórum jeppum sem mest þeir mega til að sýna velgengi sína og kraft . Þessir fínu jeppar eru samt misfínir , þeir allra fínustu og dýrustu eru sannkallaðir forstjórajeppar á meðan aðra mætti skilgreina sem millistjórnendajeppa en þeir eru ekki alveg eins fínir . Svo eru líka jeppar sem raunverulega eru gerðir fyrir torfærur , gjarnan upphækkaðir á ofurdekkjum og komast bæði yfir stórfljót og jökla . Allir þessir jeppar eiga það þó sameiginlegt að vera mest notaðir til daglegs brúks innanbæjar , hvort sem það er til að aka til og frá vinnu , í innkaup eða til að keyra börnin í leikskóla . Þetta er satt að segja hálfgerð vitleysa allt saman enda eru þetta eyðslufrek kvikindi , eru mengandi , taka mikið pláss og slíta gatnakerfinu með tilheyrandi svifryksmyndun . Ég held að æ fleiri séu farnir að átta sig á þessu , ekki síst nú þegar bensínverð ríkur upp og stjórnvöld farin að tala um að auka álögur . En það er nú samt að vissu leiti skiljanlegt að margir vilja eiga jeppa enda býður landið okkar upp á slíkt og möguleikar á skemmtilegum jeppaferðum eru margir bæði um sumar og vetur . En það breytir því ekki að torfærubílar eiga auðvitað ekkert heima í borgum .
Maður þarf að leita með smásjá til þess að finna rýni í fjölmiðlum , sem gagn er að og fjallar um byggingarlist , á meðan t . d . bókmenntir eru á síðum blaða og í ljósvakamiðlum á hverjum degi . Það er haldið úti heilum klukkutíma þætti í sjónvarpinu um bókmenntir einu sinni í viku . Og þar [ . . . ]
Við hófum þáttinn á ferð í Veiðivötn , þar sem tugþúsundir fiska eru veiddar á hverju sumri . Þar segir Hermann veiðivörður okkur frá ýmsu , en hann kom hingað til lands frá Þýskalandi fyrir 45 árum til að gera við sjónvörp og komst ekki heim aftur , svo heillaður varð hann af svæðinu . Það er samt ekki heiglum hent að komast að í vötnin , leyfin ganga í erfðir og það þýðir víst ekkert að reyna að múta veiðivörðunum til að komast framar í biðröðina .
En Angelina sem hafði setið álút , lyfti nú fallega sorgmædda andlitinu sínu og sagði : Hver í fjandanum er þessi Helga Linnet ?
Þú ert hér : Forsíða > Verkefni > Málaflokkar > Happdrættismál > Almennt
Þessi prófessor í sagnfræði hefur verið að rannsaka hagsöguna . Í viðtali kemur fram hjá honum að áherzlan hér á landi gagnvart ytri sveiflum í efnahagslífi hefur verið sú ( a . m . k . frá stríðslokum ) að sem flestir héldu atvinnu sinni , í stað þess að fylgja fordæmi hinna Norðurlandanna sem hafa lagt mesta áherzlu á velferðarkerfið , en afleiðing þess er sú , að þar er velferðarkerfið mun stærra í sniðum en hér , þar sem hitt hefur verið talið mikilvægast , að hver maður geti staðið undir sér og hafi þar með vinnu .
Því miður virðist allt benda til þess að núverandi stjórnvöld , bankar og eftirlitsstofnanir séu alveg óhæf til þess . Núna er á Íslandi akkúrat ástand sem Naomi Klein tekur fyrir í bók sinniThe Shock Doctrine og þeir sem fyrrum réðu Íslandi tala eins og þetta sé bara spurning um hvenær allt fari í sama far , hvenær peningamaskínuvélar samfélagsins og skuldaþrælarnir Íslendingar verða færðar í hendur nýrra aðila , hugsanlega núna beint undir erlenda aðila í stað þess að láta innlenda aðila leppa erlenda eign eins og undanfarin ár hefur tíðkast .
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt : " Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð . " Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari . Það sem eftir stendur eru því : " Hugleiðingar konu . " erlahlyns hjá gmail púnktur is
Nú þegar liðið er á vetrar útsölurnar er lítið sem ekkert spennandi eftir . Maður hreinlega bara bíður eftir nýju vörunum . Þessu litríku fallegu sem gefa manni sól í hjarta . . . þótt að það sé lítið um sól á Íslandi .
Jackson átti það til að bjóða þyngdarkraftinum birginn á þann hátt sem sést í þessu myndbandi : Það vita ekki allir að hann hafði einkaleyfi á þessari brellu , sem er ekkert annað en ofurvenjuleg sjónhverfing . Skórnir sem Jackson og dansararnir eru í er með klauf í hælnum . Klaufin vísar fram . Á gólfinu eru fleygar negldir ofan á gólffjalirnar . Þegar komið er að atriðinu hleypur apaköttur inn á sviðið með blys . Allir horfa á hann . Á meðan smeygja dansararnir fleygunum í klaufirnar og festa þannig skóna við sviðið . Síðan er bara að halla sér . Þegar þeir vilja losna er nóg að draga fæturna aftur . Hér má skoða einkaleyfið .
Ekki verður séð að tekið sé á þessu álitaefni í IV . kafla sveitarstjórnarlaga , nr . 45 / 1998 , með
Það er hægt að vinna styrjöld án þess að beita her . Mun vænlegra er að beita efnahgslegum þvingunum , þetta virðast Þjóðverjar vera að gera og munu sennilega ná endanlegum yfirráðum yfir Evrópu áður en langt um líður .
Spori : Ja þarna sérðu , ekki fengu klárarnir þá hús og hey svo mikið er víst . . . .
Kræklingaferðir Farið í siglingu út að krælingalínunni , línan skoðuð . Kræklingur tekinn og eldaður um borð . Sigling umhverfis Hrísey . Siglt umhverfis Hrísey . Með í för er leiðsögumaður . Miðnætursiglingar Skemmtisigling þar sem siglt er á móti sólu til að njóta miðnætursólarinnar .
Væri þá ekki ráð fyrir þessi sömu samtök að lækka þá aðeins í sjálfum sér , því samtökin eru þau einu sem hrópa og ólmast .
Sögur um krafta mína hafa farið um Ísland eins og eldur í sinu og fæ ég símtöl í gríð og erg frá fólki sem vill fá mig til að vera aðalgæslugellan ( þarf mjög hraust og sterkt fólk í þá vinnu ) á hinum og þessum atburðum . Ég hef þó einungis einu sinni tekið það að mér , enda sel ég mig ekki ódýrt og ekki allir sem hafa efni á mér .
Þórey fílaði sig vel í Turninum í tilefni af 60 ára afmæli afa síns . . Sæt mynd af Reynimelsmæðgunum . . . Andrea Björk okkar . . .
Spurningin er : hvaà ° hefà ° u menn sagt um à ¾ essar hleranir à ¡ sà num tà ma ?
Fjármálaóstjórn , skuldagjörgæsla , kúlulán og afhending Reykjanesbæjar á auðlindum til Magma Energy er rakin í bréfi sem áhugahópur um auðlindir í almannaeigu ber nú inn á hvert heimili í Reykjanesbæ . Í bréfinu eru heimamenn hvattir til að kjósa breytingar og koma Sjálfstæðisflokknum í bænum frá völdum . Því núverandi bæjarstjórn sé að selja frá sér öll verðmæti samfélagins til að bjarga eigin skinni í bili . Hér að neðan má sjá bréfið :
Svenni var traustur í markinu að vanda . Hann varði allavega tvisvar á ótrúlegan hátt og mörkin verða ekki skrifuð á hann , nema kannski það síðasta . Hann greip alla háa bolta sem hann náði í og lét vel í sér heyra , að vanda . Við erum heppnir með markvörð . Hjalti átti frábæran leik og er góð fyrirmynd annarra í liðinu , vann öll návígi með tölu og var sérlega ósérhlífinn . Steinar átti fínan fyrri hálfleik en dalaði í þeim síðari . Ef hann kemur sér í betra líkamlegt form verður hann flottur í miðverðinum í sumar . Hann leysir þá stöðu vel en það vantar upp á snerpuna . Atli átti ágætan leik . Var öruggur á boltanum og í sendingum og vann allavega 3 skallaeinvígi , sem er merkilegt fyrir ekki stærri mann frábært . Eins og Steinar þarf hann að koma sér í betra form en hann hefur sýnt að hann getur vel spilað miðvörð . Tæknileg atriði í topp lagi , en það vantar upp á snerpuna . Guðni var mjög góður þær 45 mínútur sem hann spilaði . Þeir komust ekkert áleiðis vinstra megin og réðu lítið við hraðann í Guðna , sem þó spilaði tábrotinn . Í tvígang munaði hársbreidd að hann kæmist sjálfur í gegn um vörn þeirra , þó hann spilaði sem framliggjandi bakvörður . Hann er í fínu formi , er mjög teknískur , og verður feikilega fínn í sumar . Palli var duglegur og hlustaði á menn í kringum sig . Tók tilsögn vel og hljóp mjög mikið upp og niður kantinn og var hættulegur fram á við , sérstaklega í fyrri hálfleik . Hann mætti þó láta mun meira í sér heyra , sérstaklega þegar um nýja stöðu er að ræða , þá þarf að tala meira til að komast betur í takt við hina varnarmennina . Getur heilt yfir verið sáttur með fyrsta leik í nýrri stöðu . Garðar tók Gunna úr umferð allan leikinn og fórst það vel úr hendi , allavega var Gunni ekki áberandi í sóknarleik liðsins . Garðar var sem fyrr , lykilmaður í sóknaruppbyggingu liðsins og það heyrir til algjörar undantekningar ef hann stígur feilspor með boltann . Alltaf hægt að senda á hann án þess að hafa minnstu áhyggjur af því að hann missi hann . Fínn leikur hjá Garðari að venju . Balli átti ágætan leik . Hann barðist til síðasta blóðdropa og var skynsamur á boltann . Stundum hefur hann ætlað að gera of mikið í einu en því var ekki að dreifa í þessum leik . Það var þó farið að draga vel af nafna þegar leið á seinni hálfleik . Balli er ekki í slæmu formi , en þarf að bæta við sig 20 mínútum á fullu tempói . Nettur á boltann að venju . Arnar gaf sig allan í leikinn í gær . Hann hljóp manna mest og vann hreint út sagt frabærlega ! Það var aðdáunarvert að fylgjast með baráttunni í honum og dugnaði . Hann barðist um hvern einasta bolta og var ógnandi sóknarlega , ekki síst með langskotum sem hann má halda áfram að reyna , þó það hafi ekki dottið í gær . Hann hefði þó átt að skora úr dauðafærinu Arnar var ásamt Hjalta , okkar besti maður í gær að mínu mati , en hefði þurft skiptingu síðustu 10 mín , enda margir kílómetrar að baki . Árni Sig vex með hverjum leik . Formið fer batnandi en hann þarf þó að bæta aðeins við . Hæfileikar hans eru óumdeildir og hann var alltaf líklegur til að skora í gær . Fékk færi í blábyrjun leiks en var óheppinn með hvernig boltinn skoppaði , auk þess sem Arnór fylgdi honum fast á hæla . Árni var duglegur að elta stungur og uppskar mark eftir að hafa sett pressu á varnarmann og markmann . Auk þess átti hann fínan skalla eftir hornspyrnu en var dæmdur brotlegur . Hann fékk boltann mikið í fæturna í leiknum sem er akkúrat það sem við þurfum að gera . Í raun ætti það að vera forgangsatriði að koma boltanum í lappirnar á Árna í hverri sókn ( Target man ) . Binni spilaði sinn fyrsta leik í byrjunarliði með Snerti og vildi greinilega sýna hvað í honum býr . Hann var feiknarlega duglegur og varnarmenn Hamranna áttu í vandræðum með hann , sérstaklega í fyrri hálfeik . Binni er greinilega góður fótboltamaður var í tvígang mjög nálægt því að skora .
EITTHVAÐ nýtt ? Jú , Assange hefur enn ekki verið leiddur fyrir dómara í Svíþjóð , þar sem hann hefur svívirt konur . Hvað gerir Ögmundur dómsmálaráðherra á Íslandi vegna fyrirtækis Assanges í Mosfellsbæ ? Geta nauðgarar , eftirlýstir af Interpol , opnað reikninga á Íslandi ?
Aðalmaður : Ólafur G . Vagnsson , Hléberg Varamenn : Ingibjörg Jónsdóttir , Villingadal
Fjalar Freyr hefur komið við sögu í umræðu um trúboð í skólum áður , þar sem hann hefur m . a . haldið á lofti þeim ósannindum að hér á landi berjist einhverjir fyrir því að banna kennslu um trúarbrögð og tiltók hann þar sérstaklega Siðmennt . Sigurður Hólm svaraði grein Fjalars sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar á þessu ári .
Menntamálaráðherra skipar Námsgagnastofnun fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn . Skulu tveir stjórnarmenn tilnefndir af Kennarasambandi Íslands , einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn af landssamtökum foreldra grunnskólabarna samkvæmt nánari ákvörðun menntamálaráðherra . Menntamálaráðherra skipar einn stjórnarmann án tilnefningar og skal hann vera formaður en varaformaður skal skipaður úr hópi tilnefndra aðalmanna . Varamenn skulu skipaðir með sama hætti .
Við gellzz kíktum á lífið í gær og vorum reyndar mjög svo rólegar en það var svo sem bara í takt við allt , þar sem allt var frekar rólegt og var haldið heim á leið um 3 leytið bara . . Stefnan er svo bara sett á það að hafa það rólegt og gott um páskana og jafnvel glugga aðeins í bók , svona aðeins til að róa samviskuna þar sem það styttist í prófin úff úff
Eru málverjar orðnir sáttir við lestur veðurfregna í m / sek ? Það er kominn um áratugur síðan þetta hófst , ég hef ekki getað vanist þessu ennþá . Það ætti að vera hægt að fara einhvern milliveg , nota hvassviðri , storm og rok á skiljanlegu máli . Golu og kalda má hafa áfram í metrum . Metrarnir og sekúndurnar eiga bara heima á skýrslum , ekki í mæltu máli .
Varðandi skuldastöðu heimilanna og þau úrræði sem fjármálafyrirtæki og stjórnvöld hafa boðið upp á
Asíumenn hafa alveg einstaklega gaman af kvikmyndagerð og þá sérstaklega hvað varðar bardagamyndir . Ég veit ekki hvort þetta sé svona ennþá , en á tímabili komu örugglega út fleiri fáráðnlegar asískar bardagamyndir heldur en amerískar klámmyndir , og þá er nú mikið sagt ! Skipti þá engu hversu út í hött konsept myndarinnar var ; ef plottið hafði að geyma óvin og hetju sem leiddu saman hesta sína í æsilegum slagsmálum var það nógu gott til að gera kvikmynd ! Myndin Crippled Masters frá árin 1982 er skýrt dæmi um þetta . Hún fjallar um 2 menn sem eru þaulþjálfaðir í hinni fornu Kung - Fu bardagalist . Þeir eru síðan sviknir af lærimeistara sínum og hann gerir þá örkumla . Nokkuð líður þar til þeir leggjast á hefndir og leggja saman krafta sína til þess að sigra gamla meistara sinn , annar þeirra handalaus og hinn fótalaus . Þetta er náttúrulega ávísun á meistaraverk ! Þið getið séð brot úr myndinn hérna ( Hægrismellið og veljið " Save Target As . . " ) . Djöfulsins snilld !
Á myndinni eru Ægir , Róbert og Ólafur Arnarsson formaður handknattleiksdeildar Fram .
Að mínu mati er varhugavert að sjá þróunni allt til foráttu . Stórmarkaðsvæðingin hefur gert það að verkum að helstu sölubækur seljast nú í tvöfalt stærri upplögum en fyrir um áratug síðan . Þær ná einfaldlega til fleira fólks . Auk þess eru viðfangsefni næstu ára sannarlega ekki áhyggjur af föstu bókaverði . Stafræn dreifing lesefnis verður æ fyrirferðarmeiri í rekstraráætlunum stóru útgáfufyrirtækjanna á heimsvísu og þar liggja áskoranir dagsins . Dreifing lesefnis í framtíðinni mun ekki ráðast af handföstum bókabúðum , heldur þeim sem munu ná tök á stafrænni dreifingu . Um leið mættu bókabúðir vinna betur með afl sitt sem söluaðilar á breiðum vörulínum með öflugri netverslunum þar sem hægt er að finna og panta allt sem tiltækt er , en það eru nú um 12 . 000 titlar á íslensku . Í stærstu bókabúðunum hérlendis fást hins vegar undir 1 . 000 titlum og það yrði ekkert meira þótt bókaverð yrði bundið . Um leið þarf að byggja upp sambandið við smásalana í dagvöruverslununum allt árið , þannig að samkeppni á bókamarkaði sé árið um kring . Árangur bókaútgáfunnar nú er byggður á hve bækur fást víða , hve markaðsstarf er öflugt og hve vel tekst að höfða til kaupenda með vöruna þrátt fyrir að ráðstöfunartekjur minnki . Jólavertíðin 2009 hefur ekki verið auðveld . En hún hefur líka sannað að sé vel staðið að útgáfu og markaðssetningu og sölumálum eru bækur ein eftirsóttasta vara landsmanna .
Það er mikilvægt að fleiri komi að ákvörðunum í samfélaginu , að upplýsingaflæði sé meira og betra og að þolað sé að það sé ekki bara ein rödd og ekki bara ein skoðun . Það er minni hætta á því að tekin sé kolröng ákvörðun ef hlustað er á sem flest sjónarmið .
Orðrétt er haft eftir fréttinni en bætt við greinarskilum : " Ísland stóð aldrei frammi fyrir því að fara með her á hendur Írökum . En þegar helstu bandamenn Íslands í öryggismálum frá fornu fari , Bandaríkjamenn og Bretar , höfðu ákveðið að ganga til þess verks , enda ómótmælt að Íraksstjórn hafði margbrotið fyrirmæli öryggisráðsins , og færa þær fórnir sem stríðsrekstri fylgja , ákváðu íslensk yfirvöld að lýsa yfir stuðningi við þessa hefðbundnu bandamenn sína .
" Ég fagna því að norrænu grannríkin og aðrar vinaþjóðir skuli vera reiðubúin að styðja okkur í að reisa við efnahag landsins eftir hið skyndilega hrun íslensku bankanna . Yfirlýst samstaða Norðurlandanna er okkur ákaflega mikils virði . Ég vona einnig að skoðanaskipti okkar verði fyrsta skrefið í átt til efldrar samvinnu Norðurlandanna til að takast á við hina alþjóðlegu fjármálakreppu sem gæti ógnað stöðugleika í fleiri ríkjum , " sagði Geir H . Haarde á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Helsinki í gær sem haldinn var í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem verður fram haldið í dag .
Kristín A . Árnadóttir , sendiherra Íslands , afhenti hr . Nguyen Minh Triet forseta Vietnam trúnaðarbréf sitt sem sendiherra þann 9 . desember í Hanoi . Sendiherra átti jafnframt fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Víetnam , aðstoðarráðherra iðnaðar - og viðskiptamála og aðstoðarráðherra landbúnaðar - og sjávarútvegsmála .
Þið eruð eflaust forvitin að vita út á hvað þessi kúr gengur ?
Hellóó heyriði mamma heldur að hún hafi skráð mig úr þjóðkirkjunni einu sinni en hún er ekki viss . Vitiði hvernig ég sé hvort ég er skráð þar , og ef ég er það , hvert á ég að snúa mér til að skrá mig úr henni ? : )
Svaf lengi í morgun enda kíkti maður á kaffihús í gær til kl . 1 og skemmti sér líka svona rosalega vel hehe
Bölþorn jötunn er faðir Bestlu , móðir fyrstu goðanna .
En jæja , það er nebbla ekki mikið meira að frétta af mér , bara vinna og vinna og næla mér í pening ! ! ' Eg bið að heilsa ykkur í bili , og farið varlega í hálkunni ef það er , eða farið bara varlega almennt já ! Hafið það gott , og reyni að blogga aðeins fyrr næst , dáldið langt þarna á milli . Bæjú ! ! !
Er hætt að blogga í bili , nenni þessu ekki . . So sorry guy ' s . . Hver á eftir að sakna mín ? Ef enginn commentar tek ég því þannig að enginn muni sakna mín . . Ég get samt alveg sagt ykkur hvernig hlutirnir eiga eftir að vera hjá mér næstu daga / mánuði . Ég á eftir að læra , DJAMMA , vinna , vinna meira þar sem sumir eru fátækir námsmenn , fara norður um áramótin , byrja að hjóla út um allt þar sem pabbi er að koma með hjólið mitt í bæinn , hitta vini mína eins mikið og ég get , fara í átak , hætta í átaki og byrja aftur í því og svo hætta enn aftur . . En það sem ég á eftir að gera mest af öllu er að láta mér líða vel , hugsa jákvætt og brosa daginn út og inn . . Njóta þess að vera til , þó ég sé ekki endilega alltaf að gera akkurat það sem mig langar mest að gera . . Þangað til einhverntíman . . Kveðja Sigguling . .
Þetta er úr hinni mögnuðu bók um visku Tolteka indjánanna , Lífreglurnar fjórar
vá hvað ég er búin að vera einkúka núna í næstum 10 daga eins og þið flestar vitið þá var ég í hálskirtlatöku , sem er nú svo sem ekki frásögufærandi , ég var þekkt á spítalanum sem sjúklingurinn með stóru nefkirtlana , ég held að hver einasta hjúkka og sjúkraliði sem ég talaði við vissu hver ég var út af þessu . . . .
Pabbi og Sigga litla eru úti við lambhús og eru fljót að koma auga á okkur er við komum niður gilið . Ég er viss um að oft hefur verið litið upp í gil í dag frá bænum . Pabbi er áreiðanlega glaður að sjá að ekkert hefur hent hrossin okkar í nótt .
ÍBV 2 - 0 Leiknir R . 1 - 0 Bjarni Rúnar Einarsson ( ' 18 ) 2 - 0 Ingi Rafn Ingibergsson ( ' 19 ) Leikur ÍBV og Leiknis fór rólega af stað á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum en það voru gestirnir sem áttu fyrsta skotið að marki . Kári Einarsson fékk þá boltann rétt fyrir utan teig Eyjamanna en gott skot hans rétt framhjá marki Alberts Sævarssonar . Kári átti svo annað skot eftir klaufagang í spili ÍBV , en það skot var laust og beint á Albert sem átti auðvelt með að verja . Fyrsta tilraun ÍBV að marki kom ekki fyrr en á 10 . mínútu en þá átti Arnór Eyvar Ólafsson fasta sendingu inn í teig Leiknissmanna en Valur Gunnarsson í markinu var mættur og handsamaði boltann áður en nokkuð gat gerst . Lítið gerðist svo þangað til á 15 . mínútu þegar Þórarinn Ingi Valdimarsson fékk boltann úti á kanti eftir sendingu frá Italo Jorge Maciel , sendi þá inn á Atla Heimisson sem var kominn í ágætisfæri en Halldór Kristinn Halldórsson gerði vel í að koma sér fyrir boltann og bjarga í horn . Eyjamenn vildu svo fá vítaspyrnu þegar Bjarni Rúnar Einarsson féll í teig gestanna en dómari leiksins vildi ekki sjá það og dæmdi réttilega ekkert . Eftir um 20 mínútna leik fær Bjarni Rúnar svo boltann fyrir utan teig Leiknismanna eftir gott uppspil ÍBV . Bjarni skaut þá að marki með vinstri fæti og boltinn virtist á leiðinni framhjá þar til hann átti viðkomu í varnarmanni Leiknismanna . Boltinn fór þá í þveröfuga átt og að marki þar sem Valur kom engum vörnum við . Heimamenn komnir í 1 - 0 . Strax mínútu síðar er brotið á Atla Heimissyni rétt fyrir utan teig gestanna en dómari leiksins lét leikinn halda áfram , Ingi Rafn Ingibergsson fékk þá boltann einn og óvaldaður inni í teig og hamraði hann upp í þaknetið með góðu skoti . Óverjandi fyrir Val Gunnarsson . Fallegt mark og ÍBV komnir í 2 - 0 . Tvö mörk á um einni mínútu . Leiknismenn áttu svo sitt fyrsta alvöru færi þegar há sending kemur inn á teig ÍBV þar sem Elínbergur Sveinsson var aleinn en sendingin örlítið of há þannig Elínbergur nær ekki að stýra boltanum og hann yfir markið . Ingi Rafn komst svo í ákjósanlegt færi eftir glæsilega sókn Eyjamanna . Arnór Eyvar á þá sendingu á Atla sem kemst framhjá Halldóri Kristni , sendir boltann svo fyrir markið þar sem Ingi Rafn var mættur en Valur í markinu lokaði vel og varði boltann í horn . Gestirnir heppnir að fá ekki á sig annað mark . Mikill hiti komst í leikinn í kjölfarið og meira varð um tæklingar og brot . Fyrsta gula spjaldið fékk svo að líta dagsins ljós þegar Atli Heimisson vinnur boltann eftir skallaeinvígi og brunar upp völlinn og er í ákjósanlegri stöðu til að senda boltann á Augustine Nsumba sem væri kominn einn í gegn . Atli er þá togaður niður af Guðlaugi Andra Axelssyni sem fékk að líta gula spjaldið fyrir vikið og var þetta það síðasta markverða sem gerðist í fyrri hálfleik . Sólin byrjaði að skína í upphafi seinni hálfleiks og eftir um 10 . mínútna leik í seinni hálfleik voru Leiknismenn óheppnir að minnka ekki muninn . Matt Garner braut þá af sér rétt fyrir utan vítateig og uppskar fyrir það gult spjald . Leiknismenn tóku þá fasta spyrnu inn á teig þar sem boltinn átti viðkomu í leikmönnum beggja liða og fór þaðan í slánna . Albert handsamaði svo boltann auðveldlega eftir það . Stuttu seinna fengu Eyjamenn svo hörkufæri þar sem Arnór Eyvar komst með boltann upp að vítateig gestanna en Valur í markinu náði að bægja hættunni frá . Atli Heimisson lá þá meiddur eftir í teignum og var í kjölfarið skipt útaf . Ingi Rafn fékk svo gult spjald fyrir að keyra ansi harkalega inn í Jakob Spangsberg framherja Leiknismanna . Greinilegt var að þónokkur hiti var kominn í leikinn en dómari leiksins gerði vel að halda mönnum á mottunni . Eftir um 25 . mínútna leik í seinni hálfleik komust gestirnir úr Breiðholtinu svo inn í teig ÍBV . Elínbergur Sveinsson var þar mættur en Albert Sævarsson sá við honum . Úr þessu lá Þórarinn Ingi Valdimarsson eftir í eigin teig eftir viðskipti sín við Elínberg . Dómari leiksins sýndi Elínbergi svo gula spjaldið eftir að hafa rætt við aðstoðardómarann . Eyjamenn vildu svo sjá Elínberg sendan snemma í bað þegar um korter var eftir að leiknum þegar hann tók Þórarinn Inga niður er hann brunaði upp kantinn . Dómarinn leiksins ákvað þó að sleppa honum við rauða spjaldið við lítinn fögnuð heimamanna . Honum var svo skipt útaf strax eftir þetta . Seinni hálfleikur var mun slappari og skemmtanagildið minna . Bæði lið skiptust á að halda boltanum án þess að skapa sér nein alvöru færi . Það var ekki fyrr en þegar komið var í uppbótartíma þegar Leiknismenn fengu hörkufæri . Kári Einarsson átti þá góða sendingu inn í teig Eyjamanna þar sem Jakob Spangsberg var mættur en skalli hans endaði í hliðarnetinu . Þetta reyndist það síðasta sem gerðist í leiknum og 2 - 0 sigur ÍBV á Leikni staðreynd . Ummæli eftir leik Ingi Rafn Ingibergsson - Leikmaður ÍBV , , Ég er mjög sáttur við sigurinn . Þetta var erfiður leikur og allir frekar þungir . Spilamennskan af okkar hálfu var allt í lagi , við hefðum getað drepið þá alveg með smá heppni . Það sem skipti máli var að við vorum fastir fyrir aftast og gáfum þeim lítinn séns til að skora . Fyrir mig skiptir engu máli hver skorar mörkin meðan þau eru skoruð yfir höfuð en auðvitað er alltaf gaman samt að skora . " Halldór Kristinn Halldórsson - Leikmaður Leiknis , , Ég er frekar svekktur . Við byrjuðum leikinn af krafti og áttum nokkur hörkuskot í byrjun leiksins . Þá tóku ÍBV yfirhöndina og gátum við lítið gert við því . Að mínu mati áttum við seinni hálfleikinn og með smá heppni hefðum við getað skorað þessi mörk sem við þurftum . "
Lesa má meira um siglingarnar og fylgjast með ferðum flotans er hann siglir til Gaza á heimasíðum Hreyfingarinnar fyrir frjálsri Gaza ( www . freegaza . org ) og Tyrkneska hjálparsjóðsins ( ihh . org . tr ) .
Speki dagsins : Sálin sínar sorgir syngur , særa þær nú sjálfið
Heimspeki Charles Schultz Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts . Þú þarft ekki að svara spurningunum . Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst : 1 . Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum . 2 . Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu . 3 . Nefndu tíu einstaklinga , sem hafa unnið Nobels verðlaunin . 4 . Nefndu sex leikara og leikkonur , sem unnu Óskars verðlaunin á síðasta ári . Hvernig gekk þér ? Niðurstaðan er , að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins . Þetta eru ekki annars flokks afreksmenn . Þeir eru þeir bestu á sínu sviði . En klappið deyr út . Verðlaunin missa ljómann . Afrekin eru gleymd . Viðurkenningarnar og skírteinin eru grafin með eigendum sínum . Hér eru nokkrar aðrar spurningar . Sjáðu hvernig þér gengur með þær : 1 . Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu . 2 . Nefndu þrjá vini , sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum . 3 . Nefndu fimm einstaklinga , sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt . 4 . Hugsaðu um fimm einstaklinga , sem kunnu að meta þig að verðleikum . 5 . Hugsaðu um fimm einstaklinga , sem þér þykir gott að umgangast . Auðveldara ? Lexían : Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir , sem hafa bestu meðmælabréfin , mestu peningana eða flestu verðlaunin . Heldur þeir , sem finnst þú skipta mestu máli . Hafðu ekki áhyggjur af því , að heimurinn sé að farast í dag . Það er nú þegar morgun í Ástralíu . ( Charles Schultz )
Á myndinni má sjá frosið lík Big Foot , höfðingja Lokota Siouz - indjánanna . 300 föngum , mönnum , konum og börnum var slátrað af hermönnum Bandaríkjahers að Wounded Knee í Suður Dakóta 29 . desember 1890 .
I do admit that the Icelandic financial - and business - community behaved criminally with the support of our " democratically " elected ( bought ) government . By not resisting this development we do bare heavy responsibility .
Creditinfo Lánstraust hf . er ábyggilega ekki eins slæmt fyrirtæki eins og bankarnir , ríkisbankarnir , gömlu bankarnir sem hrundu eða þeir sem nú starfa . Þrátt fyrir gott starfsfólk eru þar starfandi vondu kallarnir í þjóðfélaginu sem mismuna fólki jafnvel því sem er á þeirra eigin vanskilaskrá . Bankarnir gleyma aldrei neinu , þeir eru eins og fíllinn , muna allt og hefna sín .
Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður Evrópu . Flatarmál hans er um 13 . 600 ferkílómetrar eða rúm 13 % af Íslandi . Ríflega helmingur þjóðgarðsins er jökull og þar er að finna samvirkni jarðelds , jarðhita og myndunar jökla , landmótun jökla og vatnsfalla . Markmiðið með stofnun og rekstri þjóðgarðsins er að vernda Vatnajökul og landsvæði honum tengd . Sex gestastofur og þjónustumiðstöðvar verða í þjóðgarðinum eða nálægt honum . Vatnajökulsþjóðgarði er skipt í fjögur svæði : Norðursvæði , Austursvæði , Suðursvæði og Vestursvæði . Vatnajökulsþjóðgarður nær til þess svæðis sem áður taldist til Þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum . Þau eru meðal stærstu og hrikalegustu árgljúfra á Íslandi , um 25 km á lengd , 0 , 5 km á breidd og fara víða dýpra en 100 m . Í gljúfrunum er fjöldi fagurra fossa . Þar er Dettifoss sem er vatnsmesti og voldugast foss í Evrópu , 45 m hár og 100 m breiður . Mikið er um sérstæðar jarðmyndanir í gljúfrunum , þau skera gígaröðina Randarhóla við Hafragil og Hljóðakletta er að finna nyrst í Vesturdal . Hljóðaklettar eru hluti gígaraðar sem áin hefur þvegið allt lauslegt utanaf . Einnig má njóta hrífandi gróðurvinja , bullandi linda og dýralífs í Jökulsárgljúfrum . Ekki er ólíklegt að sjáist í smyril eða fálka ef vel er að gáð . Í þjóðgarðinum eru tveir þjónustukjarnar , í Ásbyrgi og Vesturdal . Landverðir bjóða upp á gönguferðir og umhverfistúlkun skv . dagskrá sem auglýst er á staðnum . Vel merktar gönguleiðir liggja um svæðið . Þjóðgarðurinn var stofnaður 1973 . Heimasíða Vatnajökulsþjóðgarðs Miklavatn í Skagafirði . Votlendi með miklu fuglalífi . Vegna fuglaverndunar er óheimilt að fara um svæðið frá 15 . maí - 15 . júlí . Friðlýst 1977 . Friðland í Svarfaðardal . Neðsti hluti Svarfaðardalsár á móts við höfuðbólin Tjörn og Velli . Víðlendar og gróskumiklar flæðiengjar með óshólmum og bökkum sem skarta miklu fuglalífi . Fallegt friðland í búsældarlegri sveit og ægifögru umhverfi . Friðlýst 1972 . Herðubreiðarfriðland . Gróðurvin á hálendinu . Hvannabreiður og eyrarrós setja svip á gróðurlandið . Fjalla - Eyvindur og Halla bjuggu sér þar griðastað um tíma . Friðlýst 1974 . Vestmannsvatn á mörkum Aðaldals og Reykjadals . Grunnt vatn með iðjagrænum bökkum og hólmum og fjölskrúðugu fuglalífi . Friðlýst 1977 . Hveravellir . Eru um miðbik Kjalvegar hins forna í um 650 m hæð y . s . Mikið hverasvæði þar sem gefur á að líta fjölbreytilegar hveramyndanir ( hrúður ) . Kjalvegur var alfaraleið milli suður - og norðurlands og þar hefur löngum verið áningarstaður þeirra sem leið eiga milli landshluta . Sagnir herma að útilegufólk hafi hafst við á Hveravöllum , þeirra frægust eru Fjalla - Eyvindur og Halla og eru rústir á svæðinu nefndar eftir þeim . Friðlýst 1960 . Kattarauga . Tjörnin Kattarauga er alldjúpur pyttur sem í eru tveir fljótandi hólmar sem reka undan vindi . Mikið og stöðut rennsli er í gegnum tjörnina . Í botni tjarnarinnar er lindarauga sem glittir í þegar logn er og bjart verður . Af lindarauganu dregur tjörnin nafn sitt . Gróður á svæðinu er dæmigerður íslenskur mýrargróður . Friðlýst 1975 . Dettifoss , Selfoss , Hafragilsfoss og nágrenni . Fossaröð í Jökulsá á Fjöllum ( sjá undir Jökulsárgljúfur ) . Friðlýst 1996 . Askja . Sigdæld og eldstöðvar í Dyngjufjöllum . Botn Öskju er þakinn úfnum apalhraunum . Í suðausturhorninu er Öskjuvatn sem varð til við jarðfall í eldsumbrotum 1875 . Öskjuvatn er dýpsta stöðuvatn landsins , rúmlega 200 m á dýpt . Miklar eldstöðvar eru í Öskju og þeirra á meðal er gígurinn Víti . Vatnið í Víti er heitt og þar er vinsælt að fara í bað . Eldsumbrot í Öskju hafa verið nokkur á sögulegum tíma og áttu þau m . a . sinn þátt í að hrekja fólk frá Austurlandi á síðustu öld . Síðast gaus Askja 1961 þegar Vikrahraun rann . Bandarískir geimfarar voru þjálfaðir á þessu svæði vegna þess að landslagi þótti svipa til landslags á tunglinu . Stórbrotin og mikilfengleg náttúra Öskju verður ógleymanleg öllum þeim sem hana sækja heim og óhætt er að segja að hér sé einstakur staður á jörð . Friðlýst 1978 . Skútustaðagígar . Gervigígaþyrping við sunnanvert Mývatn . Friðlýst 1973 . Hrútey í Blöndu . Gróskumikil eyja og rómuð fyrir fuglalíf . Vinsælt útivistarsvæði . Friðlýst 1975 . Böggvisstaðafjall við Dalvík . Vinsælt útivistarsvæði . Gjöfult berjaland að sumri og skíðaaðstaða að vetri . Friðlýst 1994 . Mývatn og Laxá . Mývatn er grunnt og vogskorið með gróskumiklum hólmum og eyjum . Lífríkasta vatn landsins og einstæð náttúruperla . Vatnið nýtur jafnfram sérstöðu á heimsmælikvarða . Vatnið dregur nafn sitt af mývargi sem gerir sumum lífið leitt en gegnir lykilhlutverki fyrir viðgang gróðurs og dýra . Hvergi í heiminum er að finna á einum stað slíkan fjölda andategunda . Auk þess verpa nær allar fuglategundir landsins á þessum slóðum . Þörungagróður er líka um margt einstakur í vatninu og er hann undirstaða dýralífsins . Kísilþörungar eru t . d . óvenju fjölbreytilegir og hafa myndað 5 - 10 m þykkt lag af kísilþörungaeðju á botni vatnsins . Kúluskítur eru hnefastórir hnoðrar grænþörunga sem liggja á botninum og eru eitt af sérkennum vatnsins . Umhverfið skartar sköpunarverkum jarðelda og umbrota sem verða vegna landreks á þessum slóðum . Náttúrufegurð Mývatns dregur þangað fleiri ferðamenn yfir sumartímann en til flestra annarra staða landsins . Við Mývatn er gestastofa þar sem ferðamenn geta sótt sér fróðleik um náttúrufar svæðisins . Svæðið er verndað með sérlögum nr . 36 / 1974 . Hluti svæðisins þ . e . Mývatnssveit og öll Laxá hefur verið verndaður samkvæmt samþykki um votlendi sem hefur alþjóðlegt gildi , einkum fyrir fuglalíf ( Ramsar ) .
Fleira var það nú kannski . . . en þetta er það helsta
og boðið sér veturvist og sagt , að hún væri ein af álfafólki því ,
Tyrklandsfarar athugið . . . . nú er komið að því að borga bolina sem við ætlum að fá fyrir ferðina . Munið að borga þá fyrir fimmtudaginn næst komandi ( 28 . júní ) , þetta er 1000 kjéll . . . . þið eruð búin að fá reikningsnúmerið sent í pósti , það er á keðjunni og á útskriftarsíðunni .
Bókaútgáfan Codex hefur gefið út ritið Viðskipti með fjármálagerninga eftir Aðalstein E . Jónasson .
Jæja ætla að sjá hvort að ég nái að safna upp glötuðum bloggkröftum en þangað til held ég bara áfram að telja niður . . . " bara " 14 vikur eftir .
Sendi mínar bestu jóla - og nýárskveðjur till ykkar allra . Takk BB fyrir að gera mér auðvelt fyrir að fylgjast með því sem gerist heima , veit ekki hvernig ég færi að án ykkar : ) Sólveig
Í höfði mínu hljómar lag sem kom út á plötu árið 1984 . Af því að ég hef ekkert sérstakt að segja , er ég að hugsa um að kanna hvort eitthvert ykkar , kæru lesendur , þekkið plötuna og hljómsveitina sem flutti . Ekki væri verra að fá nafnið á laginu . Sá / sú sem svarar rétt fær titilinn " Gáfnaljós vikunnar " auk þess sem sá sami / sú sama má bjóða mér í kaffi . Texti lagsins er svona : Bo Bo Bee , Bo Bee , Bo Bo - Bo Bee , Bo Bee , Bo I couldn ' t bear to be special , I couldn ' t bear , couldn ' t bear . I couldn ' t bear , right ? So don ' t look at me and say , that I ' m the very one , Who makes the cornball things occur , the shiver of the fur . Don ' t expect so much of me , I ' m just an also - ran , There ' s a mile between the way you see me and the way I am . So don ' t stare at me that way , of course it gives me pride , but I won ' t take on the risk , of letting down the sweet sweet side . Did you mean to humble me ? So you did it unsuspectingly ! Oh words are trains , for moving past what Really has no name . Bo bo bee , bo be , bo I couldn ' t bear to be special , I couldn ' t bear , couldn ' t bear . So don ' t look at me and say , that I ' m the very one , Who makes the cornball things occur , the shiver of the fur . . . . right ? Góða skemmtun .
Við hin nýja Nauthólsveg , sem áður hét Hlíðarfótur , er eitthvað skrítið á seyði sem ekki hefur sést á Íslandi áður . Þar eru merktar á veginn til og frá Valssvæðinu stöðvunarlínur fyrir reiðhjól sem ná fram fyrir stöðvunarlínur fyrir bíla .
Eftir kaffi tóku stúlkurnar þátt í ævintýraleik þar sem birtust ýmsar ævintýrapersónur eins og ofurhetja , ofurfroskur og nornir . Stúlkurnar áttu að koma ofurhetjunni til bjargar en það var búið að ræna fjársjóðnum hennar . Þetta reyndist hin mesta skemmtun og ekki skemmdi fyrir þegar kom í ljós að fjársjóðurinn innihélt sykurpúða sem þær fengu að grilla við lítinn varðeld .
Ekkert kaffi á fyrstu . Vélin dáin . Stelst á aðra hæð á eftir .
Auk þess : 4 . greinin fjallar bara um myndefni , þannig að ef ég dreifi bara rituðu efni á 4 . greinin ekki við .
Þegar sagt er 7 - 10 dagar þá á að standa við það eða láta vita með til dæmis SMS . Það að hafa síma sem ekki er svarað í og heimasíðu sem ekki virkar er undarlegt í þjónustufyrirtæki . Finnst þér þetta þjónusta sem er ásættanleg Bjarni ?
þá eru prófin búin , ég búin að fá einkunnirnar mínar og gekk svona glimrandi vel ! Reyndar ekki það erfiðasta sem ég hef tekist á við , skil það núna afhverju það á að fara breyta þessu námi en hvað með það , ég er 7 einingum ríkari og 7 einingum nær því að fá meistaraprófið mitt , þá á ég bara 10 einingar eftir
nú er einn af minum uppáhalds dögum lokið , en það er sprengidagurinn , umm umm umm það er svo gott að borða þá gjörsamlega lovitt
Ja rosa goðir timar nuna og styttist oðum i meðferðina sem verður i þessum manuði , hun verður liklegast i Geneva , Sviss og verður það spennandi að sja hvort kraftaverkið okkar gerist þa !
En þar sem það er ekkert víst að ég sjái ykkur öll aftur á næsta ári , þá langar mér bara til að þakka ykkur fyrir veturinn !
Ágætis innsýn í hugarheim og áhrif slíkra söfnuða .
Kylfingar lenda oft í því að fá ekki góða legu á boltann þrátt fyrir að vera á braut . Birgir Leifur Hafþórsson sýnir í . . . Meira
Ef peningaþvætti á rússneskum rúblum hefur farið fram hér á landi og Björgúlfur yngri hefur verið þvottahússtjóri , þá eru allir fjármunir Wessman illa fengið fé .
Atkvæði sem greidd eru utan kjörfundar skulu hafa borist kjörstjórn í því sveitarfélagi sem kjósandinn er á kjörskrá fyrir kl . 22 á kjördag , 27 . nóvember 2010 eða til landskjörstjórnar Alþingishúsinu við Austurvöll , Skála , 150 Reykjavík .
Þorgerður mín er komin á visst skeið núna . Maður er bara sífellt í einhverjum prófum hjá henni . Hún tekur sig til annaðslagið og stendur svoleiðis á orginu , vill að ég geri eitthvað sem ég geri auðvitað ekki , og hún ekki sátt ! ! ! Sem betur fer þá er þetta nú ekkert rosalega algengt , en hefur gerst nokkrum sinnum síðustu vikur . Það góða við hana er að hún er ekkert að öskra mjög lengi í einu , ef ég læt hana vera þá tekur þetta svona 5 mínútur og svo er það búið . Hún fer reyndar oft í fílu við mig í kjölfarið og það tekur aðeins lengri tíma . Hún er nú samt alls ekki fílupoki , sem betur fer . Hún er afar létt í lund og það er ótrúlega lítið mál að fá hana til þess að brosa aftur .
Blindrafélagið vill hvetja fólk til að sýna leiðsöguhundunum og notendum þeirra skilning og tillitssemi á ferðum þeirra og minnir á að leiðsöguhundar eru ekki gæludýr heldur nauðsynlegt hjálpartæki .
Upphrópanirnar eru slíkar að það gerir ekkert annað en að skaða málstað jafnréttissinna . Það er grátlegt að jafnréttisbaráttan sé á því plani sem þessi umræða hefur verið á .
Þakka stelpunum fyrir skemmtilega reynslu og vonandi að við höldum hópinn sem lengst < 3
Um nám í fornleifafræði Fornleifafræði fjallar fyrst og fremst um fortíðina en í vaxandi mæli er aðferðum hennar einnig beitt til að greina samfélög nútímans . Fornleifafræði getur verið söguleg eða forsöguleg . Söguleg fornleifafræði miðast við það þegar myndmál eða textar eru aðgengilegir sem grunngögn við hlið fornleifa en forsöguleg fornleifafræði miðast eingöngu við aðgang að fornminjum .
En það er nú allt í góðum gír hjá fjölskyldunni eins og venjulega .
Mér hefur reyndar verið þetta ljóst um nokkurt skeið við það horfa utan frá á flokkinn . Ég hef bent á það að " sumir " sem sitja á þingi eigi að hverfa til annarra starfa þar sem þeir gera samfélaginu gagn . Persónugeri þetta ekki . Svona er þetta bara .
Minni er merkilegt fyrirbæri , hvernig líka mann misminnir og stundum snýr maður minnisatriðum á hvolf . Minnið er sérkennileg skjóða .
Ég sé að fleirum en mér er farið að leiðast þetta niðurbrot og kvartsemi sem hefur viðgengist hérna . Ok , við skitum á okkur ; bankamenn , ráðamenn og almenningur ( að því marki sem okkur var hleypt að ) .
En út í boltann . . . . þá mæta magnagellur , ÍR , í borginni á laugardaginn . . . . eða við skulum vona að leikurinn verði spilaður þar sem það er ekki einu sinni öruggt að við náum í lið . . . 6 eða voru það 7 gellur í byrjunarliðinu sem komast ekki með þar sem þær eru í útlöndum eða geta ekki verið með af öðrum ástæðum . Frekar leiðinlegt að geta ekki farið með okkar sterkast lið í svona leik þar sem við erum búnar að berjast fyrir því að ná þessu markmiði . . . . en einhver sagði að NEYÐIN KENNIR NAKTRI KONU AÐ SPINNA og við hljótum að redda þess einhvern veginn
AHAHAAHAHAHA ! vá ég hló upphátt - svona tólf sinnum ! þú ert meistari í að orða hlutina rétt og mikið hjartanlega er ég sammála þér ! " glæsilegt - latex - glyðru - númer " er eitthvað sem við þráum allar ekki satt ? kv . Adda
2 . I DAG : Tad eru tvo nokkud stor Mall ( storar byggingar med fullt af verslunum ) rett hja okkur . Annad teirra a ad vera tad staersta i portugal . . . forum tangad i dag eftir aefingar dagsins . . . crap mall . . . fundum ekkert sem var ahugavert . . . . Forum i Bio ( i hinu mallinu ) eftir tessi gridarlegu vonbrigdi sem mallid var . . . The Wicker man med Nicholas Cage . . . . og tar foru 2 klst af lifi okkar . . . . . gersamlega soad . . . timi sem aldrei verdur baettur . . . . crap movie ! ! ! Tessi dagur er buinn ad vera ein vonbrigdi ut i gegn . . . nema golfid hja mer . . . . tad var gott i dag . . . . setti nidur 40m pitch i dag . . . a fyrstu holunni . . . alger snilld Svo var framhaldid eftir tessu
Sagðist hann hafa rætt þessar hugmyndir við viðskiptaráðherra og hann hefði skipað nefnd til að vinna drög að frumvarpi til laga um greiðsluaðlögun einstaklinga . Nefndin ætti að hafa hliðsjón af norrænni löggjöf og reynslu í þessum efnum .
Kristján B . og Baldur Kr . til hamingju með inngönguna
Fór í litun síðasta föstudag og augnbrúnalitun og plokkun , það kemur bara vel út Er að hugsa um að fá mér neglur í fyrsta skipti fyrir útskriftina !
Stjórn Ferðamálafélags Flóamanna hefur sent sveitarstjórn Flóahrepps eftirfarandi áskorun vegna virkjanabrölts Landsvirkjunar við Urriðafoss : " Ferðamálafélag Flóamanna skorar á sveitarstjórn Flóahrepps að standa við fyrri ákvörðun um að leggja fram . . . Meira
11 . 12 . 2008 Samningar um áframhaldandi samstarf Garðabæjar og tveggja grunnskóla , sem bjóða upp á nám á ensku samkvæmt alþjóðlegri námskrá innan veggja grunnskóla Garðabæjar voru undirritaðir í dag . . . .
Ég leyfði stubbunum mínum að ráða hvað þeir fengju í kvöldmatinn í tilefni af því að þeir eru að losna við móður sína í nokkra daga á morgun . Hvað ætli litlu dýrin hafi valið ? Soðna ýsu með kartöflum , rúgbrauði og gulrótasalati Af öllu því sem þeir gátu valið var það þetta sem þeir vildu
Svo fór ég og dóttir mín á Lakkrís festivalið , þar á meðal allra borðanna , voru þrír básar / borð með ÍSLENSKU NAMMI ! ummmmm það var boðið upp á íslenskt nammi og það var svo gott og einnig var boðið upp á sænskt , finnskt , hollenskt svo eitthvða sé nefnt . Svo er við komum heim , löggðum bílnum á bílastæðinu og gengum yfir bílastæðið þá var hryngt og ég spjalla við vinkonu mína svo er við göngum yfir götuna að húsinu , þá spyr hún hvernig hafiði það , og þá upplifi ég mig svo hamingju sama og sæla , svo ég segi henni ég var ´ jú að koma frá lakkrísfestivalinu , og þar var íslenskt nammi á boðstólnum , svo ég er búinað fá fullt af íslensku nammi og ég er svo hamingjusöm . Man ekki eftir að hafa orðið hamingjusöm / alsæl af nammi áður , Það var svo skrítið að finna breytinguna . við höfðum með okkur nammi til yngstu dótturinnar sem treysti sér ekki með , hún var slöpp og s ´ ´ u elsta fékk að sjálfsöggðu að smakka nammið líka , og svo keypti ég nokkra poka sem við spöruðum til Páska
Sæl Áslaug , ég finn svo ynnilega til með ykkur , ég mundi ekki vilja vera í ykkar sporum , ég hef fylgst aðeins með ykkar baráttu og fynnst þú algjör hetja , að standa ennþá upprétt í þessu sjúkdómsforhlaupi , ég get ekki ýmindað mer hvernig þetta er , en þið eigið alla mína samúð , ég mun halda áfram að biðja fyrir ykkur og kveikja á kerti fyrir Þuríði . Kveðja Stína
Ég hef mikið verið að lesa undanfarið og reyndar alveg óvenjumikið núna . Ég kaupi flestar þær bækur sem mig langar í en yfirleitt þegar þær eru komnar í kilju . Það er svo miklu auðveldara að halda á þeim fyrir sjóndapurt fólk eins og mig ( ég les ekki með gleraugun þegar ég ligg í rúminu ) og miklu léttari að ferðast með ( ég tek bækurnar alltaf með mér í vinnuna og les í kaffitímum ) . Um daginn las ég Land tækifæranna eftir Ævar Örn Jósepsson . Ég hef alltaf verið mjög hrifin af honum og bókin stóðst alveg væntingar . Ég er núna í þríleiknum um fólkið á Neshov , Berlínaraspirnar , Kuðungakrabbarnir og Á grænum grundum eftir einhverja norska gellu . Þær eru ágætar . Ég er alveg að verða búin með bók númer tvö ætla að vinda mér í síðustu bókina eftir að ég verð búin að lesa bækurnar sem ég ÆTLA að fá í jólagjöf . Ég er líka að lesa Ódáðahraun eftir Stefán Mána og hún kom mér á óvart . Ég las nefnilega Skipið eftir hann og líkaði hún ekki , fannst hún hreint rugl en Ódáðahraun er mjög góð , allavega enn sem komið er .
Hér er svo upptaka frá símafundi Alcan sem Dow Jones Newswires byggja sína frétt á . Smellið hér og farið á 01 : 09 : 35 þar heyrið þið spurningar blaðakonu Dow Jones Newswires og svör forstjóra Alcan . Lesa afganginn af þessari færslu »
Yfir 80 konur á aldrinum 18 til 34 ára skoðuðu myndir af 49 karlmönnum á svipuðum aldri og voru beðnar að leggja mat á hvort þeim þættu karlarnir aðlaðandi og karlmannlegir .
Í dag var Sanne , kennarinn minn , að tala um hvað hún hefur gert í lífinu og gefa okkur gullmola til að taka með okkur út í lífið . Og ég verð að viðurkenna að þegar tilfinningaflæðið var orðið svo mikið að ég gat ekki meir þá fór ég bara að tárast og læti ! Hún er komin í mjög háan flokk hjá mér og jaðrar við að fera fyrirmyndin mín að mörgu leyti ! ( mamma og pabbi . . . you still rock ) Þessi kona er snillingur og einfaldast að segja að hún dregur fram það allra besta í mér .
En at morgni , er menn vakna á skipum konungssonar , sjá þeir inn á sundinu lengra liggja sjau skip , ok þar í er svá lystiliga skrautligr dreki , at hans líka þóttust þeir aldri fyrr sét hafa , hvárki at stærð né búnaði . Allr var hann stáli sleginn ok gulli laugaðr fyrir ofan sjómál , þar með stafnar hans út skornir með miklum meistaradóm ok prýddir inu skærasta gulli ok víða svá í skurðina silfri smelt . Hann var ok fagrliga steindr ok málaðr með alls konar ýmisligum litarhætti , grænum ok hvítum , gulum ok bláum , bleikum ok svörtum . Á þessum fríða knerri stóð maðr við siglu , mikill at vexti ok aldraðr at líta . Hann var í kápu þeiri , er öll var hlöðum búin . Sverð hafði hann í hendi bjart ok bitrligt .
" Nobody made a greater mistake than he who did nothing because he could do only a little . " - Edmund Burke Loksins finn ég lífsmottóið mitt á netinu . En gaman . Núna er ég enginn mannlífsfræðingur en er fólk ekki fyndið ? Öll erum við voða svipuð , það sem okkur finnst gott ( ís ) og skemmtilegt ( bíó ) , leiðinlegt ( vaska upp ) og sársaukafullt ( reka tánna í ) er allt meira og minna það sama . Það er smá breytileiki í smáatriðunum en að öllu jöfnu erum við öll mennsk og viljum bara hafa það gott . Samt snýst líf fólks um að keppast við að vera flottara en næsti maður , með fínna dót og fallegri börn . Það sem ég skil ekki er hvernig gátum við þróast með svona svaka mikið ego ? Okkar tegund vann þrátt fyrir mikinn keppnisanda milli einstaklinga . Þrátt fyrir það að vera sífellt að keppast við frænku okkar og frænda þá náðum við að berjast við öll ljónin , tígrisdýrin , styggja fílunum frá og flóðhestunum . Síðan föttuðum við allskonar kúl , tókum aðrar tegundir inn á heimilið og fengum þau til að stjana við okkur : rúlluðum þessu upp . Eina ástæðan fyrir því að ég trúi þessu er að ég er ein af okkur . Aftur að Burke . Það væri skiljanlegt að ef eina lausnin á vanda heimsins væri fyrir hvert mannsbarn að heimsækja Mars einhverntíman á lífsleiðinni , þá féllist manni kannski hendur . Vandinn er bara ekki svo mikið vesen . Lausnin á vandanum er til . Nýji vandinn er að fólkið nennir ekki að taka þátt í lausninni því það heldur að það sem það geri skipti engu máli . Fólk neitar að skilja að það er bara pínulítill hluti af risa heild . Og að margt smátt gerir eitt stórt . Þetta er örugglega minnst dáði málsháttur okkar menningar . Einhver ætti að gera skoðunakönnun um þennan málshátt og skrifa um það doktorsritgerð .
Á hljóðmyndasíðu Magnúsar Bergssonar er margvíslegt efni á boðstólnum . Nú síðast birti hann hljóðritið fælna Fugla þar sem er heldur betur handagangur í öskjunum .
Það er einmitt það sem stingur hvað mest í augun við að lesa tillögur RSÍ ; þessi þjónkun við auðvaldið í formi þess að launafólk þurfi sífellt að fá leyfi og hafa samráð við launaskammtandi yfirmenn sína til þess að setja fram kröfur fyrir sjálft sig og aðra . Nú standa yfir kjaraviðræður milli Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands og ekki er annað að sjá á endalausu langlundargeði ASÍ - fólks gagnvart SA - körlunum en að forystumenn launafólks ætli sér að bjóða hinn vangann ad infinitum í anda heimspeki miðstjórnar Rafiðnaðarsambandsins . " Forystufólk " launafólks hefur ekki einu sinni þann vott af sjálfsvirðingu að boða aðgerðir í tilefni þess að SA hefur sett þau fáránlegu skilyrði að ef launafólk vilji fá almennilega borgað verði að friðþægja kvótagreifa og - greifynjur .
Bróður minn , Kjartan , var innan handar í sósugerðinni . Fyrst var smátt skorinn skarlottlaukur steiktur í smjöri - kryddað vel með salti og pipar . Steikt þar til laukurinn var mjúkur og glansandi . Þá var bætt við kjúklingasoði og hvítvíni og skvettu af grand marnier . Leyft að sjóða aðeins niður . Síðan var vatni , sykri , appelsínusafa úr hálfri appelsínu bætt við ásamt meiri hvítvíni og kjúklingasoði . Sósan var þá samtals rúmur hálfur lítri af vökva . Þvínæst var pela af matreiðslurjóma bætt saman og sósan soðin upp að nýju . Þá var sósan þykkt með smjörbollu gerða úr smjörinu / andafitunni af pönnunni . Að lokum var bætt soðinu úr fatinu sem öndin var bökuð í . Sósan var að sjálfsögðu reglulega bragðbætt með salti og pipar og síðan 3 matskeiðum af glájanum sem penslað var á öndina . Það þarf vart að hafa fyrir því að nefna það - en sósan var himneskt .
Svo er ljóst að það eru Vinstri grænir sem taka kosningaúrslitunum langverst , samanber þennan reiðilestur Bjarna Harðarsonar þar sem hann talar um Besta flokkinn sem skammarlega atlögu að lýðræðinu og grein Ármanns Jakobssonar þar sem hann líkir Besta flokknum við graftarbólu .
GAY PRIDE er næstu helgi og stelpur það verður sko djammað fram á rauða nótt
Er það sem ég vil að búi í hjarta mínu
Flokkar í Evrópu eiga víða í erfiðleikum vegna minnkandi áhuga á stjórnmálum . Í þeim umbótum sem þeir hafa unnið að á síðustu árum og áratugum hefur þó aldrei hvarflað að þeim að fara " íslensku " leiðina og taka upp opin prófkjör . Peningar og pólitík eru nefnilega talin eiga litla samleið . Reyndar svo litla að auglýsingar stjórnmálaflokka eru alls staðar bannaðar í sjónvarpi og útvarpi í Evrópu fyrir kosningar . Auglýsingar eru nefnilega mjög fjárfrekar og beinlínis æpa á " styrktaraðila " utan flokkanna , með öðrum orðum að stjórnmálamenn verði keyptir .
Þeim var greinilega sama þótt við værum vinaþjóð . Hefðu þeir brugðist svona við gagnvart stórþjóð , hefðu strax komið fram efasemdir um að hægt væri almennt fyrir aðrar þjóðir að eiga viðskipti í gegnum London , sem þó er alþjóðleg fjármálamiðstöð . Tvímenningarnir úr Downingstræti töldu að spörkin í okkur sköpuðu enga slíka hættu . Þeir hafa þó ekki bitið úr nálinni með það . Að því kemur - fyrr en síðar - að umræður skapast um einmitt þetta . Um það hvort óhætt sé að láta London vera vettvang viðskipta , þegar sýnt er að yfirvöldin beita hryðjuverkalögum tilefnislaust og eftir ( pólitískum ) hentugleikum .
Éttu svo helvítið og drekktu bjór með og ekki hika að tala um kellingar !
Jóhannes A . Levy útskýrði nánar stöðuna á umsókninni um löggildingu starfsheitisins .
Anyways , ætla kannski að opna bók áður en ég fer að lúlla . Það væri allavega ansi jákvætt , svona í ljósi þess að það fer að styttast í próf enn og aftur . . .
Haldið verði málþing um sveitarstjórnarmál ( sjá lið 2 ) . Rætt um fund um lýðræðisvæðingu í Arabalöndum , Sigríður skoðar málið . Rætt um fund á vegum málefnahóps um lýðræðislegt hagkerfi , t . d . á sviði félagslegs hagkerfis ( lýðræðisvæðing lífeyrissjóða ) með þátttöku verkalýðsfélaga .
Í 4 . kafla EES samningsins eru hinsvegar nokkuð rúmar reglur um verndarráðstafanir sem aðildarríki mega grípa til ef aðstæður krefjast þess .
Vegna dræmrar mætingar á undanfarnar forsýningar hjá okkur ( sú seinasta var Shutter Island ) gæti litið út fyrir að Kick - Ass verði sú seinasta hjá okkur í bili . Miðasalan á sýninguna fór upp fyrir rúmri viku síðan og hafa miðarnir farið út á miklu minni hraða en við ( s . s . aðstandendur síðunnar ) bjuggumst við . Ef mætingin reynist ekki vera góð núna á . . .
Þorri kjósenda ! ! Þú sýnir hófsemi í dulnefnavali ! En skoðanakönnun skömmu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna sýndi að allur þórri þeirra sem merktu við nei - kostinn töldu að þau væru aö hafna ÖLLUM IceSavegreiðslum !
Halldór Ásgrímsson , forsætisráðherra , átti í dag fund með japönskum þingmönnum í Tókýó og hélt erindi um efnahagsmál á Íslandi . Að því loknu var rætt um samskipti ríkjanna og ítrekaði forsætisráðherra mikilvægi þess að sem allra fyrst yrði lokið við gerð loftferðarsamnings til að greiða fyrir auknum viðskiptum og ferðamannastraumi milli landanna . Þá undirstrikaði hann ósk íslenskra stjórnvalda um að gerður yrði tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japans . Á fundinum ræddu þingmenn einnig orkumál við forsætisráðherra , öryggismál og hvalveiðimál .
Prógrammið hjá ManUtd er heldur erfiðara , heimaleikir á móti Man City og Arsenal , og útileikir gegn Wigan og Hull . Allt getur gerst enn . . . já já
Þá er komið að því hinn margfrægi Björgvins bjór er tilbúinn og klár til afhendingar og er hann afhentur hjá Áka á Akureyri og er það Leifur sem afhendir á Dalvík og er opið hjá þeim samkvæmt samkomulagi og vonandi eiga menn eftir að njóta vel undir áhrifum Beggs hvernig sem á það er litið enda góðir humlar þar á ferð . Hann er glæsilegur þessi og góður í maga og ekki skemmir myndin frá mér fyrir á flöskunni . Áki afgreiðslumaður á Akureyri stoltur af ölinu Það var hlaðið vel í Rav 4 í dag Óskar var virkilega sáttur við ölið og verður það örugglega í boði með skötuni á morgun .
Lýsa mér já ég er 28 ára lítil saklaus , sæt og hress stelpuskjáta sem langar að kynnast sætum , heiðarlegum , traustum , góðum og skemmtilegum strák á aldrinum 25 - 40 ára Karlmenn yfir 40 ára sleppið að senda póst takk . . . . . . Endilega sendið mér póst eða á spjallinu þið tapið ekki á því ég LOFA ; ) Er hjarthlý , skemmtileg og barngóð manneskja sem þið mynduð tapa á ef þið látið ekki í ykkur heyra : ) Er mikið fyrir hand og fótbolta æfði handbolta sjálf svolítið lengi ; )
Slóð efnisins verður áfram rakin eins og unnt er en það kann að hafa horfið af markaðnum eftir að stúlkan lést og lögreglurannsókn hófst .
Jæja , ókei , kvikindisskapur í mér ; æ aumingja grey maðurinn vildi ég sagt hafa . Það er mögulegt að hann hafi bara verið í losti og ekki alveg með réttu ráði .
Af því að það er kreppa og hart í ári ákváðum við að gera eitthvað frumlegt þessi jól og smíða og föndra jólagjafirnar . Nákvæmari lýsingar get ég ekki gefið á þessari stundu enda eiga jólagjafir að koma á óvart . Okkur vantar ákveðið efni til jólagjafagerðar sem er ekki fáanlegt á landinu og ekki útlit fyrir að það fáist gjaldeyri til að flytja það inn . Lúxusvara segja þeir . En vilji maður kaupa eitthvað leikfangadrasl framleitt í Kína , þá eru einokunar hillurnar hans Jóns Ásgeirs fullar af því . Svona er tilveran utan ESB í dag .
Losað um með nýjum lögum Með batnandi afkomu varð minni hætta á sveitarþyngslum af ómögum , og var þá dregið úr opinberu forræði varðandi búsetu . Með lögum um þurrabúðarmenn frá 1888 , sem komu í stað tilskipunar um lausamenn og húsmenn frá 1863 , þurftu menn að sanna með vottorði tveggja skilríkra manna , að þeir væru reglumenn og ráðdeildarsamir og að þeir ættu tiltekin lágmarksefni . Var vald sveitarstjórnar til að synja manni búðsetu því gert skilyrt . Utan kaupstaðar eða verslunarstaðar máttu menn ekki byggja þurrabúð , nema lóð fylgdi búðinni með matjurtagarði og húsakynni væru sæmileg .
Hvað myndu Súnníar og Sjítar halda lengi friðinn á Íslandi ? Eða halda menn að þúsundir af þessu fólki hérlendis færi umsvifalaust að lesa þjóðleg fræði á íslenzku ?
Nú er tími til að líta í eigin barm og spyrja hvað hægt sé að gera til að bæta leik liðsins . Það eina sem mér finnst er að ekki megi gera - er ekki neitt . Annars orðaði Gandhi þetta mun betur en ég þegar hann sagði :
Ég býst við því að ég hvílist nóg þegar ég er dauður og grafinn .
Eg er ordin svo brennd ad eg likist hunts tomatssosu !
Samarbejdspolitik . Danskir lögreglumenn skála við Gestapo á Hótel D ' Angleterre i Kaupmannahöfn . Ljósm . úr bókinni Medaljens Bagside .
Síðan voru þau með aldeilis frábæra jólaglögg sem vakti mikla lukku hjá Skandinövum og Ítölum sem þarna voru , enda allir vanir einhverju þessu líku fyrir jólin . Menn voru þó sammála um að þetta væri besta glögg sem þeir hefðu fengið . Elín sauð rúsínur möndlur , appelsínur , negul , kanelstengur , og guð veit hvað , saman í þrjá tíma . Rauðvínið var síðan hitað með ásamt vodkaslettu .
Sko í fyrsta lagi þá vissum við alvega að það myndi aukast fjöldi innflytjenda til muna 1 . maí síðastliðin þegar landamærin opnuðust fyrir nýu aðildarríkjunm EES . . Við þekkjum hvaða vandamál eru í nágrannalöndunum í sambandi við þessi málefni og nú er svo komið í mörgum af þessum löndum að erfitt er að finna ráð til að sporna gegn þessum vandamálum . En samt gerðu þessir blessuðu stjórnmálamenn okkar ekki nokkurn skapaðan hlut til þess að gera ráðstafanir áður en skaðinn er skeður . . Svo er bara útlendingunum kennt um og sagt að við viljum ekki fleiri útlendinga . . og bara endalaus neikvæðni . . Sko . . við gleymum því studnum að við vorum að biðja um vinnuafl . . við þurftum og þurfum á vinnuaflinu að halda . . og svo erum við bara með skít og leiðindi í garð fólksins sem kemur itl þess að svara kalli sem við gerðum sjálf . . það er ekki eins og þau hafi grátbeðið um að koma til landsins og fá að vinna . . þeim bauðst þetta tækifæri og tók það .
- Tónlistardagskrá : Sigrún Hjálmtýsdóttir , Björgvin Halldórsson , Karlakórinn Ernir , Karlakórinn Vestri , Eyþór Gunnarsson og Þórir Baldursson . Stjórnandi : Guðni Franzson .
Merkilegt hvernig tónlist getur endurvakið upp " gamlar tilfiningar " um hið liðna . Minnir mann á góða og slæma tíma . . T . d . núna er ég að hlusta á Chevelle . Comfortable Liar , Send the Pain Below , The Red og Dont Fake This . Algjör snilldar lög allt saman . Minnir mig bara á síðastliðið vor og fylleríinu í kringum það með Tása Káta ( a . k . a The Swan ( a . k . a Þráinn Svan ) ) . Það var brutal sjit . Fyllerí í pottinum hjá Binna sem endaði í partý hjá mér og lúmskum sms sendingum hjá honum ( Swaninum ) til kvenþjóðarinnar . Rórur útum allt . . Stuttu eftir það slagsmál milli mín og Þráins sem endaði með því að ég reif bolinn hans , drap símann minn á snilldarlegan hátt og geðheilsunni var einning fargað . Ég keypti samt nýjann bol handa honum og gaf mér nýjan síma í sumargjöf . En geðheilsunna vældi ég til baka .
a ) Ritgerð byggð á birtu efni eða efni samþykktu til birtingar . Slík ritgerð skal að jafnaði byggð á a . m . k . þremur vísindagreinum sem hafa verið birtar , eru samþykktar eða tilbúnar til birtingar í viðurkenndum ritrýndum tímaritum . Skal doktorsefni vera fyrsti höfundur að a . m . k . tveimur slíkum greinum en þó að jafnaði öllum þremur . Skulu ekki færri en 2 greinar vera endanlega samþykktar til birtingar . Ávallt skal vera skýrt hver þáttur doktorsnema er í viðkomandi verkefni og skal rannsóknarnámsnefnd bera ábyrgð á að sannreyna með doktorsnefnd að hlutverk doktorsnema sé fullnægjandi í samræmi við ofangreind ákvæði .
Í gær þá joinaði ég svokallað " Vondumyndakvöld " með Aroni Frey , T - DaddyShaker , Siffa og JóniÁrna ( ? ) þar sem ég hafði ekkert betra að gera . Vondumyndakvöld er svona viðburður hjá strákunum þar sem þeir hittast og leigja alveg ógeðslega leiðinlega mynd . Þetta reyndist svo hin mesta skemmtun sem ég hef upplifað síðan Katla fór til Ítalíu , , eða í u . þ . b 2 daga ( Y ) híhí , .
Aðalfund skal halda árlega að hausti og skal boða til hans skriflega eða með tölvupósti með minnst viku fyrirvara og telst fundurinn þá löglegur án tillits til fundarsóknar . Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins . Á fundinum skýrir formaður frá starfi félagsins á árinu , reikningar félagsins skulu lagðir fram til samþykktar , stjórn kjörin og fjallað um tillögur til lagabreytinga .
Íííííí helgarfríí . . . . alveg elska ég það Var að koma úr Skýjaborg . . . opið hús Var í skólanum til hálf 3 , fór svo beinnt í Keflavík með mÖmmu & Fanney . . ætlaði kaupa mér buxur , en neeei þá kom ekki sendingin eða eikkvað rugl En jáá vorum bara á einhverju búðarRöLLti * OoooG guð minn almáttugur alla mína daga en ég held bara að móðir mín þurfi að taka bílprófið aftur . . Alltaf að rugla einhvað í umferðinni ! ! HaHa vorum í bílastæði á Hafnargötunni og það var bíll fyrir framan okkur og aftann , og mamma baraa gat engann veiginn bakkað útúr þessu Svooo við bara þurftum að chilla inní bíl þangað til annaðkvor bíllinn færi , mamma fór ekkva inní Glitter á meðan , svo leið og bíllinn fór hljóp ég og Fanney inní búðina og náðum í mömmu , hahaha vaaa steikt , ég opnaði bra hurðina á búðinni . . " Mammma koddu NÚNA " og hun bara strunnsaði út , fólkið í búðinni hefur öruglega haldið öööö já veit ekki hehehhe vá þetta var fyndið , , hLóhLó & hLó
Jei fór á geggjað vel heppnað jólahlaðborð á Steakers í gær með leikskólanum og viti menn það mætti engin í rúllupylsukjólum bara pínu þröngum pilsum hehehe fengum geggjað gott nautakjöt og meðlæti umm nammi namm svo þegar við vorum búin að borða í 3 tíma þá var haldið í bæinn og tekið pöbba rölt en það gat engin ákveðið sig hvert hann vildi fara þannig að það var farið á 5 eða 6 staði til að skoða þá fengum ég og Bjarney nóg og fórum á På Byen og vorum þar og skemmtum okkur konunglega svo hálftíma seinna komu allir hinir og þá varð fyrst kátt í höllinni þvílík stemming svo klukkan hálf 4 tókum við náttugluna heim og það var gott að komast í sitt ból eftir góðan dag . Aðeins 20 dagar til stefnu . . . . Laugan : " alltaf léttur "
Bent hefur verið á nokkrum sinnum frá hruni að hætta kunni að vera á öðru bankahruni . Fyrst þegar til stóð að við tækjum á okkur allan ómengaðan IceSave gjafapakka hv . fjármálaráðherra . Nú síðast vaknaði svo þessi umræða þegar stefndi í að Hæstiréttur myndi fella allan gengismun gjaldeyristengdra lána á bankana , þ . m . t . þann sem er í hartnær hreinni eigu okkar allra , svonefnds " NBI " .
Nei , Egill , þetta kom okkur jafn mikið við 2005 og það gerir núna . En þá vildirðu ekki taka afstöðu . Núna segir þú um eina manninn sem reyndi að veita þessum auðjöfrum viðnám : Ojbjakk .
Húsbíllinn þeirra sem áður gegndi hlutverki sjúkrabíls . Á síðustu vikum er hann búinn að fara með þeim hringinn í kringum landið .
Fengum þar fría bjóra og svona út á einhverja boðsmiða . Það var fínt . Ég var nú búin að drekka alveg nóg þannig ég hætti snemma og var kominn með svo mikinn hausverk að ég ákvað að fara heim . Ég var samt ekki sú eina sem var svona léleg heldur var Júlía það líka . . . við vorum nú líka pínu fegnar bara daginn eftir
En öllum til upplýsingar : Innlendar bækur munu hækka nú í haust vegna þess að jafnvel þótt prentað sér innanlands þar sem launin hækka ekkert , en lækka heldur , hækka öll aðföng . Kennslubækur hafa hækkað . En þá ber þess að geta að alla þessa öld hafa bækur lækkað að raungildi . Frá því 2001 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 45 % en launavísitalan um 64 % ( þótt hún fari nú aftur lækkandi ) . Á sama tíma hefur skráð listaverð sambærilegara bóka í Bókatíðindum ekkert hækkað , krónutalan stóð í stað frá 2000 til 2008 .
Jæja nú er ég að fara að klæða mig og fá mér kaffi . KNÚS
Tilgangur Evrópusambandsins með því að veita RegioStars verðlaunin er að finna góð dæmi um svæðisbundin þróunarverkefni og að vekja athygli á þeim sem slíkum og að þau geti orðið öðrum svæðum fyrirmyndar .
Örvinglað fólk hleypur út í banka til að reyna að bjarga sparifé sínu sem það telur sig eiga á hættu að missa . um leið missa fjárfestar trú á bankanum og hann fer að hríðlækka í verði á markaði . Við þetta þá er næstum öruggt að bankinn er orðinn gjaldþrota vegna þess að hann getur ekki greitt út öll innlán og fjárfestar eru farnir að kasta hlutabréfum í bankanum til þeirra sem vilja taka við á hvaða gengi sem er . Ef ríkið eða aðrir bankar grípa ekki inn í og ábyrgjast hann , þá fer hann á hausinn . Hvað gerist þá ef bankinn fer á hausinn ? Jú öll útlán bankans eru innkölluð . Það þýðir að allir sem eru með lán hjá bankanum verða að greiða þau upp strax , ef ekki þá er gert eignarnám hjá þeim . þetta eignarnám gæti leitt til þess að fjöldi fólks missi heimili sín . jafnvel þeir sömu og ætluðu að verja peningana sína sem lágu inn á bankabókum .
Hvernig ætli miðbær Reykjavíkur verði eftir 50 ár ? Verða einhver nöfn veitingahúsa á íslensku ? Verða flest veitingahúsin asísk ?
Jæja , þá eru jólin búin , og ekki úr vegi að setja inn nýjan nagla . Hann er enginn venjulegur nagli í þetta skiptið , því hann er svampur . . . og hann er Svampur Sveinsson ( aka SpongeBob SquarePants ) . Svampur býr á Bikiníbotnum , í ananas , og vinnur á skyndibitastaðnum Klemmaborgara . Ástæða valsins ætti því að vera augljós ; það þarf alvöru nagla til að höndla að vinna á skyndibitastað !
haha , þið eruð fyndnar . Ella , mér bregður næstum jafnmikið þegar það er dinglað eða bankað þannig að ég held að það bjargi ekki öllu að læsa alltaf að sér . Sólrún , ég er voða ánægð að vera ekki ein svona . Það er sérstaklega óþægilegt þegar maður er öskrandi á samstarfsmenn eða bláókunnugt fólk : ) Sök sér með kærastana . . . : )
Mér finnst áhugavert að enginn gerði athugasemd við að þegar ég sagðist ætla að fá mér sígó gaf ég í skyn að það væri v . þ . a . börnin væru ekki heima , eða í lagi v . þ . a . börnin væru ekki heima . Ég fæ mér alveg sígó þó þau séu hérna , þetta var skrifað til að tékka á viðbrögðunum . Sem urðu engin . Sem þýðir einhvers konar samþykki , eða hvað ? Ég reyki vitanlega ekki framan í þau , reyni að forðast að reykja framan í nokkurn óreykjandi mann . Laugardagur . Rok . Rigning . Prófarkarlestur . Bóklestur . Ávaxtapæ . Lifið í friði .
Ok Óttar , ef ekki Kristilegt siðferði sem hefur það sem lykilatriði að elska Guð og elska náungann , hvernig siðferði viltu þá ?
Jaeja , sumarid er komid í Alcalá held ég bara . Nema thad komi páskahret , en ég held thad sé nú bara sérislenskt fyrirbaeri . . Um páskana kemur Thura . Thá verdur gaman , vid munum fara á Perro verde og fá okkur Caipiriñas og fara á Casa Antigua og Gabanna og og og og . . . Thad verdur svo gaman . Salamanca er dásamleg , thetta var ekki misminni hjá mér . Og allir ferdafélagar mínir voru sammála . Eiginlega var thad ekkert vidalega gód hugmynd hjá Erasmus - skrifstofunni ad fara med okkur til Sala , tví vid udrum hundfúl ad thurfa ad fara aftur til Alcalá , ég og Cristina frá Ítalíu grétum saman thegar vid sáum háskólabygginguna sem vid hefdum verid í ef vid hefdum farid til Sala . Beint fyrir framan dómkirkjurnar ( já thad eru tvaer ) og rétt hjá plaza mayor . . En ég gat ekki farid til Salamanca , thad er ekki samningur vid máladeildina thar . . . En Alcalá hefur líka sitt , og ég hlakka til ad sjá Plaza Cervantes í fullum skrúda . Thad er mikid líf hérna , um helgar fara fjolskyldurnar nidur í bae og kaupa blodrur handa krokkunum og saetabraud handa sér og eru langt fram á kvold , oll fjolskyldan saman á borunum og veitingahúsunum og úti á gotu , mjog saett alltsaman . Annars er ég búin ad vera veik í viku meira og minna , en ákvad samt ad fara til Salamanca . Var svolítid slopp alla helgina og á fostudagskvoldid missti ég alveg roddina , thad var bara fyndid , sérstaklega á theim tímapunkti thar sem ég taladi alveg eins og Marge Simpson . Í dag er reyndar stór dagur í lífi mínu , ég fékk mér linsur . Thad er ótrúlega thaegilegt , thó ég finni svolítid fyrir theim . En thad venst víst fljótt . Jaeja , bestu kvedjur , yfir og út .
Persónuleg tengsl höfum við myndað við fjölmarga er að lífsleiknikennslu koma . Þar má helst nefna kennara , námsráðgjafa eða forvarnarfulltrúa í , Menntaskólanum í Reykjavík , Fjölbrautarskólanum í Garðabæ , Menntaskólanum í Kópavogi , Kvennaskólanum í Reykjavík , Fjölbrautarskólanum Ármúla , Iðnskólanum í Hafnarfirði , Borgarholtsskóla og Menntaskólanum við Hamrahlíð .
Hverju myndi það breyta ? Í fyrsta lagi myndu þeir vaxa sjálfir sem menn með afsögn sinni . Í öðru lagi mundu þeir draga úr spennunni í samfélaginu . Í þriðja lagi myndu þeir auka tiltrú þjóðarinnar á að það sé raunverulegur vilji , og jafnvel geta , meðal ríkisstjórnarinnar til að vinna að viðreisn íslensks efnahagslífs . Í fjórða lagi myndi skapast möguleiki á að endurvinna traust erlendra fjármálastofnanna . Í fimmta lagi yrði það trúverðugt að spillingiunni , sem leiddi þjóðina út í þá djúpu efnahagslægð sem við sitjum nú í , verði útrýmt . Í sjötta lagi . . .
Nauðungarsala er oftast sala eða ráðstöfun á eign til innlausnar á verðmæti hennar til greiðslu á skuldum sem á henni hvíla .
Ég hef löngum verið hlynnt því að verðleggja allt sanngjarnt - það sem er einstakt , s . s . gourmet - matur , íslensk náttúra , góð þjónusta , íslensk gæðahönnun , ætti að kosta talsvert en það sem fólk getur fengið alls staðar , skyndibiti , einföld gisting , áfengi , á að vera samanburðarhæft við önnur lönd . Reyndin er hins vegar sú að gumsið er verðlagt sem hágæðavara .
á morgun ætlum við á einhverja pirate sýningu . . ætluðum í kvöld ,
Egill Benedikt Hreinsson prófessor í Verkfræðideild HÍ fjallar um verðmæti orkulindanna og um eignarhald þeirra í samhengi við mat á framtíðarþróun og tengingu við raforkumarkaði í átt til aukinnar samkeppni og virkni . Hann mun leggja tölulegt mat á þetta markaðsvirði með notkun mælikvarða auðlindarentu . Júlíus Jón Jónsson forstjóri Hitaveitu Suðurnesja mun fjalla um fyrirsjáanleg áhrif lagasetningar sem boðuð er í nýju frumvarpi um rekstur veitufyrirtækis með blandaðan rekstur þar sem eigendahópurinn er samansettur af opinberum aðilum og félagi úr einkageiranum . Að loknum framsögum verða fyrirspurnir og umræður .
75 % mæting var á eigendafund Íslands hf . í gær . Á dagskrá var samningur um að allir eigendur myndu ganga í sjálfskuldarábyrgð fyrir láni sem nokkrir úr eigendahópnum höfðu tekið og notað til einkaneyslu og ævintýralegra fjárfestinga .
Dökkar efnahagshorfur stafa ekki síst af neikvæðum ytri aðstæðum . Annars vegar þeirri víðtæku lausafjárþurrð og áhættufælni fjárfesta um allan heim og hins vegar hækkun verðs á nokkrum helstu hrávörumörkuðum . Saman leggjast þessir þættir þungt á efnahag margra ríkja og munu án efa draga úr hagvexti víða um heim með tilheyrandi áhrifum hér á landi .
Já það er heldur betur nóg að gera þessa dagana hjá okkur í Horsens . Alla síðustu viku var hún Guðrún María systurdóttir mín hjá okkur á meðan mamma hennar og systir voru í sundþjálfunarbúðum í Álaborg . Að hafa Guðrúnu var frábært því hún var svo dugleg að leika við Hermann og því ekki hægt að finna eins mikið fyrir leikskólaleysinu . Á föstudaginn komu svo þær mæðgur ( Erla systir og Sigga Stína ) og gistu í 2 nætur . Það var alveg yndislegt að hafa þær hjá okkur og gerðum við margt skemmtilegt þennan stutta tíma sem þær voru allar hér . Föstudagskvöldið , fljótlega eftir að þær komu úr lestinni , kom föðursystir Siggu og Guðrúnar og fjölskylda frá Billund í heimsókn og voru þau fram yfir miðnætti . Á laugardaginn fórum við í Bytorv , þaðan í afmæli til Guðnýjar frænku og enduðum við svo daginn á Jensens böfhus . . . . . semsagt vel nýttur tíminn : ) Í gær eftir að þær mægður fóru þá var letin tekin með trompi . . . . . kúrt upp í rúmi eða sófa , horft á sjónvarp , ryksugað og þveginn þvottur , en annars bara slakað á : )
Fjarlægur kemur hann þó alltaf heim í vonina og er alltaf velkominn .
Ég sit bara hérna inni í tölvustofu að bíða eftir að fara í Íslenskutíma . Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalaaaaaa . . . .
Óstafrænu hannyrðirnar ganga líka vel , sérstaklega eftir að ég henti peysunni sem ég var næstum búin með . Ég sá fyrir mér að ég mundi aldrei ganga í þessari peysu og hönnunin hefði verið mistök . Svo hún fór í ruslið . Aftur á móti gengur prýðilega að sauma Kúna Meskalínu og í baghóveðet mallar góð hugmynd að stólsessum , sem krefst reyndar talsverðs stafræns undirbúnings . Í þetta sinn ætla ég þó ekki að sauma út með gamla krosssauminum heldur gera tilraunir með varplegg , blómstursaum og jafnvel refilsaum . Sennilega hefst þessi vinna ekki fyrr en í sumar því kýrin Meskalína er ákaflega digur og seinsaumuð .
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina :
Mikið hefur verið rætt um rétt almennings um skýra valkosti á undanförnum vikum . Hér er mál sem ég tel að stjórnmálamenn verði að bjóða almenningi upp á skýra valkosti um . Hvaða leið vilja þeir fara , hvaða leið telja þeir vænlegasta .
Eftir að skólarnir hófust snýst lífið hjá mér og frúnni talsvert mikið um barnabörnin . Hingað koma þau þegar skóla lýkur flesta virka daga . Annasamt en samt gaman . Þess á milli sinnir maður ritstjórnarvinnu á heimasíðu Þórs . Og víst er að þar hefur mikið gengið á síðustu daga . Fótboltavertíðinni að ljúka og vetrarstarfið að komast í gang .
Rannsóknarnefndin segir að Icesave - málið sýni að evrópskt fjármála - og eftirlitskerfi þarfnist algerrar endurskoðunar , sérstaklega til að koma í veg fyrir viðlíka alþjóðadeilu og uppgjör , sem Icesave hefur haft í för með sér . DNB sagði í yfirlýsingu í gær að bankinn styddi þá tillögu .
Ef þig langar í það sem við höfum að bjóða og ert reiðubúin ( n ) að leggja eitthvað á þig til að öðlast það , þá ertu tilbúin ( n ) að stíga ákveðin spor . Þetta eru grundvallarreglurnar sem gerðu bata okkar mögulegan .
jæja nú má segja að þetta sé alveg búið en ég skal samt blogga smá um allt sem hefur gerst undanfarið , við erum flest allir að verða 20 ára gamlir þannig þetta er frekar lame hjá okkur að vera með heimasíðu en svona er lifið skritið . . . . já það sem hefur gerst undanfarið eru jól og áramót og það er nú ekkert merkilegt en já það merkilega var að ég fór á bíldudal að hafa mjög gaman um jólin en já það sem ég gerði var að sofa og opna pakkka og já ekki má gleyma einu og það er að borða haha enja robbi og óli voru úti á flórida að drekka og voru fullir um hátiðarnar og má kalla þá alkohólista en samt ekki svona er lífið og það heldur áfram . svo allir hinir drengirnir gerðu lítið enju þeir drukku einhvað áfengi og hansi fékk klukku meira nenni ég ekkki að skrifa því það er alvarlega leiðinlegt og ja bless amigos
Höfundur : Gestur Svavarsson þann 24 . 4 . 07 0 athugasemdir Krækja í færslu
Þeir sem vilja geta eytt miklum upphæðum á landsmót í mat og skartgripi og fékk blaðamaður aðeins að kynnast því . Það jafnast þó líklega lítið á við þær upphæðir sem geta fari milli þeirra sem versla með hesta en góður stóðhestur getur kostað margar milljónir .
Endurtek líka að verðlaun verða veitt í fjórum flokkum ; besti frumsamdi , besti Hafnfirðinga , besti klassíski og aulalegasti . Um verðlaunin má lesa í síðustu færslu . . . aldeilis ekki af verri endanum Koma svoooo . . . . . E . s . Ég stefni ótrauð á tvö hundruð heimsóknirnar , hehe
Meðal þáttakenda á þinginu má nefna Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóra Marorku og handhafa umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2008 , Nicklas Lundblad , Google , Kristinu Persson , frá Sambandi norrænu félaganna , Jörgen Bardenfleth , Microsoft , Ninu Smith prófessor við Árósaháskóla , Tuomas Saarenheimo frá finnska seðlabankanum , Maarit Lindström frá finnska verslunarráðinu , Kjell Bendiksen frá stofnun um orkutækni ( IFE ) , Finn Bergesen jr . frá Samtökum atvinnulífsins i Noregi ( NHO ) .
Unglingar , sérþarfir og skólatengd iðja : eigindleg rannsókn á þörfum unglinga á aldrinum 12 - 15 ára í grunnskólum Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Þetta gengur óátalið í þá hjörð sem kallast kjósendur fyrir kosningar . Algerlega heiladautt lið með fuglsminni . Þetta vita sölumennirnir og hegða sér eftir því .
Takk Júlíus . Það er eins og sumir séu fastir í pínulitlum kassa og sjái bara útum lítið gat .
Að undanförnu hefur mér liðið talsvert eins og Þorsteini í þessu myndbandi :
Þessar hótanir hafa verið gerðar í kjölfar yfirlýsinga og aðgerða einstaklinganna varðandi kosningarnar í Kenýa sem haldnar voru þann 27 . desember í fyrra og þeirra mannréttindabrota sem hafa átt sér stað í kjölfar þeirra . Niðurstöður kosninganna eru umdeildar og hafa orsakað pólitísk átök í Kenýa , en þau átök standa að miklu leyti á milli mismunandi þjóðernishópa landsins . Meðlimir Kikuyu þjóðernishópsins eru almennt taldir hafa stutt Kibaki forseta , á meðan meðlimir Luo og Kalenjin þjóðernishópanna eru taldir hafa stutt Raila Odinga , leiðtoga stjórnarandstöðunnar .
Mig er oft búið að langa á djammið en það hefur lítið orðið úr því , vegna þess að ég hef orðið veik , ég hef verið barnapíulaus og þeir sem ég hef ætlað að djamma með hafa orðið veikir . Ég held að allar veirur og bakteríur Danmerkur hljóti að vera á sterum eða eitthvað .
Miðað við eiturlyf er kannabis tiltölulega skaðlaust . Fjöldinn allur af fólki hefur prófað það án þess að verða fyrir varanlegum skaða . En þegar rætt er um hvort lögleiða eigi efnið á ekki síður að beina sjónum að þeim sem ekki komast óskaddaðir frá efninu . Miklu fleiri hafa keyrt án öryggisbeltis og komist upp með það . Mjög margir hafa vanrækt börn sín og komist upp með það . Málið snýst ekki um það hve hamingja stórs hóps er eyðileggingar margra vesalinga virði . Málið snýst heldur ekki um það hvort kannabis komi að gangi við MS eða brjóstakrabbamein . Flest krabbameinslyf eru eitur og engum heilvita manni dytti í hug að nota lækningarmátt þeirra sem röksemd fyrir því að leyfa almenna notkun þeirra . Það dettur m . a . s . fáum í hug að rétt væri að lögleiða almenna notkun rítalíns . Fylgismenn kannabislögleiðingar byggja afstöðu sína að hluta á rökum en hluta á rökleysum og jafnvel blekkingum . Þeir falla í hóp með ýmsu nýaldarliði , hómópötum og öðrum kuklurum þegar þeir krefjast strangrar vísindalegrar nákvæmni þegar kemur að mótrökum en láta af þeirri nákvæmni þegar kemur að því að verja málstaðinn . Skoðum nokkur rök : 1 . Með því að hafa kannabis ólöglegt er verið að búa til neðanjarðarsamfélag sem er grimmilegt og býr til eymd fyrir neytandann og stuðlar að glæpum . Við skulum ekki staldra við hræsnina sem felst í því að kenna löggjafanum um tilvist drullupúka sem maður sjálfur elur . Það er einkennileg röksemd , svo ekki sé meira sagt , að kenna einhverjum öðrum um að til sé framboð þegar maður sjálfur sinnir eftirspurninni . Ef við gefum okkur nú að kannabis sé svona skaðlaust eins og stuðningsmennirnir vilja meina þá er það hvorki sérlega ávanabindandi né hættulegt . Það má því velta fyrir sér hvers vegna neytandinn ætti að sætta sig við ömurleg neysluskilyrði . Hann fer varla að sætta sig við ofbeldi og hótanir og ömurleika til þess eins að verða sér úti um efni sem hann getur hvorteðer verið án . 2 . Með því að tríta kannabisneytendur sem glæpamenn stuðlar maður að því að þeir fari að haga sér sem glæpamenn . Það er alveg óefað að ef við lítum á kannabis sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut þá hverfa ýmsar skuggahliðar neyslunnar . Það er alltaf dálítill drungi á bak við tjöldin og þar renna hlutir saman í eitt og eitra hverjir aðra . En þetta gildir um flest og er ekkert frekar röksemd fyrir lögleiðingu kannabis en barnagirnd . Til eru samtök manna sem krefjast þess að barnagirnd þeirra sé samþykkt og viðurkennd sem eðlileg hneigð . Þeir benda á að þeir eru ekki að skaða neinn ( og sveiflast röksemdir þeirra frá því að þeir dáist að börnum úr fjarska yfir í það að börnin hafi gott af ástum fullorðinn manna ) og að hneigð þeirra sé ofureðlileg og sammannleg og hafi fylgt tegundinni frá örófi alda . Það er líka vitað að undir yfirborðinu blandast barnagirnd sumum viðurstyggilegustu glæpum sem fyrirfinnast . Það , hvort leyfa eigi opinbera barnagirnd , snýst ekki um " afglæpun " nema að litlu leyti . Það er ákvörðun sem byggir á skaðsemi fyrirbærisins sem slíku . 3 . Það er tilgangslaust að berjast gegn kannabisneyslu . Þetta er tapaður bardagi . Það er rétt að baráttan við kannabis hopar úr einu víginu í annað og löggjafinn er í sífelldri leit að þeirri leið sem best kemur að gagni . Það að bardaginn sé erfiður þýðir ekki að uppgjöf sé rökrétt niðurstaða . Ef markmiðið er að minnka neyslu efnanna þá er auðvitað lang farsælast að einbeita sér að forvörnum . Koma í veg fyrir að unglingar og ungt fólk byrji . Það er ekki gert með því að segja að kannabis sé gott og blessað , skaðlausasta vímuefnið á markaðnum , en bara hættulegt börnum . Unglingar munu ekki láta sér segjast við það . Við værum að bregðast skyldum okkar gagnvart okkar minnstu bræðrum ef hér yrði staðan eins og víða í Bretalandi þar sem kannabis eitt og sér er látið óátalið því álitið er að börnum úr ákveðnum hverfum sé hreinlega ekki viðbjargandi . Og það sé betra að láta krakkana mæta rauðeygða og ringlaða í skólann heldur en að láta þá vera í hnífaslag í frímínútum . Það að gera ekki neitt er að dæma félagslega illa stödd börn til þess andlega fangelsi sem kannabis getur verið og taka frá þeim sjálfsbjargarkraftinn ekkert síður en óknyttakraftinn . Félagsleg vandamál hverfa ekki þótt maður hjúpi þau reyk . 4 . Með því að taka hart á kannabisræktun og innflutningi eykst sala á harðari efnum . Þetta er vafalítið rétt en sýnir um leið að kannabisneysla er ekki eins saklaus og fram er haldið . Ef kannabisneytandinn hleypur í sterk efni eins og e - pillur eða læknadóp af því að aðgengi hans að efninu minnkar þá er augljóst að víman er það sem líf þess einstaklings snýst um - og að hann þarfnast hennar og sækist eftir henni , jafnvel á kostnað eigin heilsu og hamingju . Það eru lítil meðmæli með kannabis að það skapi heilan haug af þægum dópistum í dróma . Góður dópisti er ekki endilega daufur dópisti . Daufur dópisti er ekki nema steinsnar frá dauðum dópista . 5 . Kannabis er skaðlausara en áfengi og tóbak . Þetta er meginröksemd þeirra unglinga sem ég heyri verja eigin neyslu . Þeir byrjuðu að reykja og drekka og svo sannfærðust þeir um að kannabisneysla væri skref afturábak í átt til betri heilsu . Þvílík endemis þvæla ! Skaðsemi kannabisefna er óumdeild þegar kemur að unglingum og ungu fólki . En þar er neyslan líka langmest . Unglingur gerir sér enga grein fyrir lúmskum afleiðingum neyslunnar . Fullorðið fólk á í fullu fangi með að gera sér grein fyrir áhrifunum . Það er ekki bara svo að hasshausinn missi áhugann á því að vera að berja fólk niðri í bæ . Hann missir áhugann á flestu sem krefst einhverra átaka og festist í eigin heimi þar sem hann sinnir áhugamálum sínum og reykingunum á kostnað nokkurnveginn alls . Efnin færa honum ekkert sem mikils er um vert og ekki er hægt að verða sér út um með meiri tilkostnaði . En þau taka frá honum margt sem oft reynist erfitt að endurheimta . Kannabis eykur ekki þroska eða hæfileika nokkurs manns , það þvælist bara fyrir .
Nú á ég ekki við það að allar kirkjur séu jafn - slæmar . Ég er bara að reyna að benda á að ef við bindum viljandi fyrir augun á skynseminni þegar við veljum okkur sannfæringu eru sáralitlar líkur til þess að hitta á sannleikann um heiminn . En eins og glöggir menn hafa tekið eftir má skilja dæmisöguna frá því áðan þannig að fiðrildin merki sannleik .
á meðal sonur þinn og sakna hennar æ þetta var bara svo fallegt
Kanski ætti ég samt að taka þennan áfanga aftur og þá get ég tekið þátt í sykurþolsprófinu og þá er ég búin með pakkann .
" ég heyrði etthvern svaka smell , hvað var þetta ? ? ég horfi á alla í fjölskyldunni , þau hafa ekki tekið eftir þessu , þau eru alveg eins og venjulega . Þau sitja þarna og horfa út og eru róleg . Það var nú gott , þá get ég lika verið rólegur . "
Ritheimildir frá 13 . öld um Guðmund biskup Arason eru frumheimildir fjögurra sagna hans frá 14 . öld . Niðurstöður meistaraprófsritgerðar minnar á jarteinum Guðmundar í yngstu gerð sögunnar , sem kennd er við bróður Arngrím , gefa tilefni til að kanna ritunarforsendur Guðmundar sagna nánar í heild og hvers konar hugmyndir kunni að hafa mótað trúarhætti Guðmundar eins og þeim er lýst í eldri heimildum . Hér er því annars vegar um að ræða atburði og ritheimildir 13 . aldar og hins vegar ritheimildir 14 . aldar sem lúta eftir atvikum lögmálum helgisagnaritunar en eru jafn háðar stjórnmála - , guðfræði - og bókmenntaáhrifum ritunartímans og eldri heimildarnar .
Því næst lá leiðin í Kronkron þar sem planið var að kaupa mér gallabuxur . Það mígringdi á okkur þannig að áhrif bjórsins voru ekki lengi að fara . . . sem betur fer . Ég tilkynnti Toma að hann ætti líka að máta þröngar gallabuxur því hann væri pottþétt dead sexy í þeim . Hann tók greinilega
Þar lýsi ég í nokkrum orðum , hvernig farið var í fyrstu gegn þjóð okkar þegar Lífeyrissjóum var leyft , að , , dreyfa áhættu " eins og það var látið heita á sínum tíma . Menn fengu að lána erlendum aðilum og kaupa erlend verðbréf .
Áhrif efnahagssamdráttarins á efnahag heimila og fyrirtækja eru einnig á margan hátt mun djúpstæðari en á fyrri samdráttarskeiðum . Það stafar meðal annars af því að skuldsetning var almennt há og miklu fleiri en áður höfðu tekið lán í erlendri mynt og lán með verðtryggingu . Mikil veiking krónunnar og verðbólguskot í kjölfarið olli því að höfuðstóll lána hækkaði verulega á sama tíma og eignaverð lækkaði . Eiginfjárstaða margra heimila og fyrirtækja breyttist því snögglega til hins verra án þess að fólk fengi rönd við reist .
Og Haukur Hólm í dag ? kemst ekki inn á dv . is . Er staff 365 loksins vaknað og byltingin hafin ?
Bummburubumm bummbumm bummbumm ! Kent töts þiss ! Hvað varð um MC Hammer ?
Það er ekki nóg að við höfum gefið sægreifunum fiskimiðin . Nú nauðpína þeir okkur eigendurna með því að geyma allan gjaldeyrinn erlendis og reyna með því að fella fyrir okkur krónuna . Allir stóru spilararnir í bankahruninu eru líka farnir erlendis og halda sig þar ríkmannlega . Einn ætlar að kaupa Kaupthing Luxembourg og fær það líklega . Þá þarf ekki lengur að leita að bókhaldi hinna þar .
Alltaf verða á vegi mínum fleiri og fleiri , sem eru að missa íbúðir sínar vegna verðtrygginga og okurvaxta . Hvernig má það vera að ríkisstjórnin standi aðgerðarlaus mánuðum saman meðan höfuðstóll meðalhárra íbúðarlána hækkar um 180 - 200 þúsund kr . á mánuði . Það er afar sárt að sjá sparifé unga fólksins loga upp í þessu verðtryggingabáli á 1 - 2 árum .
Tíl sjávar fóru við líka tókum far með honum Nikk sem á nokkurskona glerbát , Fóru við að eyjunni Theodorou sem er friðuð og má bara fara einu sinni á ári á land . ( nema þeir sem gefa geitunum ) En þarna eru serstök geitartegund sem heitir Krí - Krí sem var í útrímingarhættu . Eftir það fóru við að lítilli eyju sem heytir Lazaretta . Þar lögðumst við við landfestar , og ýmist stakk fólk ser í sjóinn og synti í land , fór að snorka eða tók far með lettabátnum . ( bara svo þið vitið það stakk eg mer og svamlaði í sjónum )
Til þess að brúa ágreininginn milli fylgismanna réttindaflokkanna tveggja voru sett inn í inngangsorð beggja samninganna næstum samhljóða ákvæði þar sem segir að aðildarríkin viðurkenni , í samræmi við Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna , að sú hugsjón að menn séu frjálsir og njóti borgaralegs og stjórnmálalegs frelsis , séu óttalausir og þurfi ekki að líða skort , rætist því aðeins að sköpuð verði skilyrði til þess að allir geti notið borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda , jafnt sem efnahagslegra , félagslegra og menningarlegra réttinda .
Ætlaði að tjá mig um greiðslu launa í evrum en gleymdi mér áðan í uppeldisvandamálum skólanna . Ábending Gísli varðandi hugmynd þína um greiðslu launa í evrum , þó ég þykist nú vita að þú hafir sett hugmyndina fram svona í hálfkæringi . Hvort laun eru greidd í evrum eða krónum skiptir ekki máli í reynd það er fjárhæð og kaupmáttur launanna sem skiptir öllu máli auk þess skattkerfis sem við búum við . Ég hef bent þér á áður að laun kennara upp á 300 . 000 kr á mánuði verða að litlu ef þau væru færð yfir í evrur á því gengi sem Seðlabanki Evrópu metur krónurnar okkar á núna . Mér er sagt að skiptigengið þar ytra sé 275 krónur fyrir evruna . Laun upp á 300 . 000 kr ísl gæfu því rétt rúmar 1 . 000 evrur . Við værum þá svo illa settt á afkomumælikvarða í Evrópu að við værum í hópi með Albaníu , Rúmeníu og slíkum löndum ef við tækjum þessi evrulaun okakr til Evrópu . Lausnin er að byggja hér upp hagvöxt , styrkja þannig krónuna og tala svo um að skipta yfir í evrur . Við erum að tala um 15 ár ef við byrjum strax . Við sem þekkjum til á landsbyggðinni og höfum upplifað samfélög sem lifna eða hníga eftir því hvernig gengur í svjávarútvegi höfum þungar áhyggjur af þeirri óvissu sem sjávarútvegurinn býr við af hálfu stjórnvalda . Meðan sú óvissa heldur áfram verður hér enginn hagvöxtur og tíminn í evruna bara lengist og lengist . Þegar krónan verður búin aðs tyrkjast aftur þannig að " aðeins " þurfi 100 krónur til að kaupa evru getum við farið að spá í að skipta yfir í evrur en verðum samt fátæklingar á erlendri grundu .
Þyrluþjónustan býður útsýnisflug frá Geysi á Bell 206L1 þyrlu . Í boði verða þrjár mismunandi ferðir auk þess sem boðið verður upp á sérferðir eftir óskum . Sjáðu Gullfoss , Geysi , Hvítá , Laxárgljúfur og Hagavatn úr þyrlu , ógleymanlegt .
rama : i will let you know when it is time .
Mér er nokkurnveginn sama hvort jólin séu hvít eða ekki , þau koma og fara hvort sem er . En mér finnst logndrífa á aðfangadag samt alltaf eitthvað svo róandi og falleg .
Við fórum svo í gegnum tollinn , þar sem Einar var tekinn í inspection og missti nokkrar vínflöskur í leiðinni og Kristín þurfti að sýna fram á að fiðlan hennar ( sem hún er búin að eiga í mörg ár ) væri í raun og veru ekki keypt úti í Kanada . Á meðan var hún með glænýja tölvu og myndavél sem ekkert var spáð í . Gaman að þessu . . . Ég labbaði hins vegar bara beint í gegn án þess að vera skönnuð og hitti múttu og pabba eftir langa fjarveru . Ég er ekki frá því að það hafi bara verið svakalega gott að sjá þau aftur
Verðlaun í bókmenntasamkeppni AB 1990 fyrir Dvergastein . Verðlaun í smásagnasamkeppni Íslandsdeildar IBBY og Máls og menningar 1994 fyrir smásöguna Ormagull . Leikritið Óvinir ( óbirt verk ) var tilnefnt til Evrópsku leikskáldaverðlaunanna 1994 . Viðurkenningar úr Rithöfundasjóði Íslands 1984 og 1997 . Viðurkenning Íslandsdeildar IBBY 1999 fyrir Berrössuð á tánum . Viðurkenning Tónmenntasjóðs kirkjunnar 2001 .
Bæjarstjóri á Hornafirði . hjaltivi @ hornafjordur . is
Síðan meðfram þessu öllu saman hef ég verið að skrifa rannsóknarverkefnis - ritgerðina mína langt fram á nætur . Byrjaði svo að vinna á mánudaginn og hef verið að vinna allt upp í 16 tíma vaktir þessa viku til að vinna upp fríið sem ég fékk um helgina til að skrifa . . . Helgarfríið verður kærkomið núna næstu helgi !
Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi mannsins , sem haldin var í Stokkhólmi árið 1972 , viðurkenndu ríki nauðsyn verndunar þar sem það skaðar arfleifð allra þjóða heims ef einhver hluti hinnar menningarlegu eða náttúrulegu arfleifðar spillist eða hverfur . Á sama ári var á þingi Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna ( UNESCO ) gerður Sáttmáli um verndun menningar - og náttúruminja heimsins . Hvatinn að því var ákall um að bjarga Abu Simbel ( Egyptalandi ) , Feneyjum ( Ítalíu ) , Moenjodaro ( Pakistan ) og Borobodur ( Indónesíu ) . Ef ekki hefði verið gert samstillt átak á alþjóðavettvangi hefðu þessar minjar glatast fyrir fullt og allt . Af þessu spratt hugmyndin um að öll ríki sem til þess væru reiðubúin deildu með sér ábyrgðinni á því að vernda helstu menningar - og náttúruminjar á jörðinni . Samkomulagið grundvallast á þeirri forsendu að ákveðnir staðir á jörðinni hafi sérstakt alþjóðlegt gildi og eigi sem slíkir að tilheyra sameiginlegri arfleifð mannkynsins . Þjóðirnar eða aðildarríkin , sem standa að samningnum , hafa sameinast í því verkefni að bera kennsl á og varðveita merkilegustu náttúru - og menningarminjar í heiminum . Aðildarríkin , sem standa að samningnum , virða að fullu fullveldi þjóða og forðast að skerða eignarrétt manna sem kveðið er á um í löggjöf viðkomandi þjóðar en líta svo á að alþjóðasamfélaginu í heild beri skylda til að vernda heimsminjar . Íslendingar gerðust aðilar að samningnum í desember árið 1995 . Samningurinn er einstakur að því leyti að í honum eru náttúruvernd og friðun menningarminja tengd saman í einu skjali . Menningarleg sjálfsmynd er nátengd náttúrunni sem hún þróast í . Alveg eins og áhrifa frá náttúrulegu umhverfi gætir oft í skapandi verkum mannkynsins bera sumir stórfenglegustu staðirnir í náttúrunni ummerki mannlegra athafna í árþúsundir . Til þess að fá samþykki á heimsminjaskrá þarf viðkomandi staður að vera einstakur í heiminum . Afmörkun hans þarf að vera skýr af hálfu viðkomandi ríkisstjórnar og full sátt þarf að ríkja um verndun , umsjón og rekstrarfyrirkomulag . Staðir á heimsminjaskránni draga gjarnan að aukinn fjölda ferðamanna þannig að mikilvægi viðkomandi staða eykst í þjóðhagslegu tilliti . Heimsminjaskráin er talin vera afar öflugt tæki til minja - og náttúruverndar ekki síður en til uppbyggingar vandaðrar ferðaþjónustu í hverju landi . Í ágúst 2010 eru 911 staðir á heimsminjaskránni í 151 landi og má sjá hvaða staðir það eru með því að fara inn á vef Heimsminjaskrárinnar . Tveir staðir á Íslandi eru á listanum , Þingvellir sem voru samþykkir sem heimsminjar árið 2004 og Surtsey sem hlaut samþykki inn á listann árið 2008 . Frekara lesefni á Vísindavefnum : Myndir : Þetta svar er að langmestu leyti texti af heimasíðu Þjóðgarðsins á Þingvöllum og birtur með góðfúslegu leyfi .
Félagið hefur þróast . Við stofnun félagsins , fyrir rúmum 20 árum , var það einkum félag forstöðumanna stofnana sem störfuðu einar á landsvísu . Nú eru nær allir forstöðumenn í félaginu . Þessi breyting endurspeglaðist vel í stjórnarkjöri á síðasta aðalfundi þegar inn í varastjórn komu forstöðumenn frá framhaldsskóla , heilbrigðisstofnun og löggæslu . Er það í fyrsta sinn sem slík breidd er í stjórninni og að þar sitji forstöðumenn frá flestum af stærri stofnanaflokkum . Eins og í öðrum félögum sem ekki hafa starfsmann , dreifist vinnan við að gera það sem gera þarf á stjórnarmenn og taka aðalmenn og varamenn jafnan þátt í störfum félagsins . Stjórnin reynir því að vinna markvisst , leggja áherslu á nokkur vel afmörkuð verkefni og einbeita sér að því að koma þeim í framkvæmd . Gert er ráð fyrir hafa sex stjórnarfundi á starfsárinu , þrjá fyrir jól og þrjá eftir jól til að móta stefnu , dreifa verkefnum og annast eftirfylgni .
P . S . î sýrslum Alþjóða heilbrigðissamtakanna ( WHO ) kemur í ljós að færri unglingar á gagnfræðastigi á Norðurlöndum nota kannabis heldur en jafnaldrar í Hollandi þar sem slíkt er ( var ) svo gott sem löglegt .
Fyrir afganginn kaupa þeir hver í öðrum og lýðurinn er látinn sitja á hakanum .
Meistaramóti GSG fór fram í vikunni í blíðviðri og lauk í gær . Bylgja Dís Erlingsdóttir er klúbbmeistari hjá konunum , lék samtals á 365 höggum . Hulda Björg Birgisdóttir varð önnur og Steinunn Jónsdóttir í 3 . sæti . Pétur Þór Jaidee er klúbbmeistari karla , lék á 290 höggum , sem er aðeins 2 höggum . . .
Lausnin er fólgin í því að skoða strimilinn við kassan og gera athugasemd strax
En . . . í Ædol komust Heiða og Helgi áfram ! ! held jeg hafi aldrei á minni 15 og hálfs árs æfi séð jafn hommalegan strák ! ! ! Gvuð þolann ekki ! svo ljótur líka ! alger hommi ! enn Heiða vá hvað hún er góð söngkona ! ! vá hún er líka eins og Barbí ! agalega falleg ! heh . . . . enn jamm síðan kom auglýsing þarna inná milli þarna IKEA aulísíngin ! þarna Gulla frænka er komin í heimsókn ! ! ! besta aulísíngin mín ! heh klikkað fyndið ! og jeg og Gulla heh fórum að leika aulísínguna svona 200 sinnum . . . ógí fyndið ! ! ! bara öskra GULLA FRÆNKA ER KOMIN Í HEIMSÓKN . . .
eiga sér ekkert skylt við fyrripartinn sem ég kom með .
Í umræðunni um Icesave er ein staðreynd sem lítt hefur verið rædd . Staðreyndin er sú að bæði í Bretlandi og Hollandi gerðist Landsbankinn aukaaðili að þarlendum tryggingarsjóðum þegar Icesave var stofnað í þessum löndum . Þetta var gert í því augnamiði að standa jafnfætis þarlendum bönkum varðandi innlánstryggingar enda var slíkt augljóslega talið mikilvægt í markaðssetningu á Icesave .
Ég valdi mér nafnið " huldumenn " , þeim til heiðurs þessum blessuðum peningarónum eins og ég kalla þá . Lögregla sem ég hef haft samband við hefur engan áhuga eða þorir ekki að hafa áhuga á raunverulegu hlið stærsta ráns á Norðurlöndum fyrr og síðar , eða fær skipun um að skipta sér ekki að þessu málinu .
Thad er nú lágmark ad bæjarfulltrúar viti hvernig svona samningar ganga fyrir sig . Gengid er frá samningnum af stjórn fyrirtækisins og skrifad undir MED FYRIRVARA um samthykki sveitarstjórnar . Ferlid hefur tekid upp undir ár og liklega hefur bæjarfulltruinn verid upptekinn vid önnur störf thann tíma .
Nám til M . Ed . - gráðu er starfstengt meistaranám . Námið hentar þeim sem vilja dýpka þekkingu sína í náms - og kennslufræði og sérhæfa sig á tilteknum sviðum kennslu .
Almennt gilda starfsleyfi í 12 ár en starfsleyfi fyrir tímabundinn atvinnurekstur er gefinn út til styttri tíma . Tímabundinn atvinnurekstur er talinn upp í tl . 10 í fylgiskjali 2 með reglugerð 785 / 1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun , með síðari breytingum . Þar er meðal annars niðurrif húsa og annarra bygginga , vinnubúðir , flugeldasýningar og brennur .
Sjóðurinn býður lántakendum sínum upp á margvíslega möguleika til að létta greiðslubyrði lána . Lántakendur eru hvattir til að hafa samband við sjóðinn sem fyrst ef greiðsluerfiðleikar eru til staðar .
Download XML • Download text