Dependency Tree

Universal Dependencies - Icelandic - IcePaHC

LanguageIcelandic
ProjectIcePaHC
Corpus Parttest

Select a sentence

Showing 302 - 401 of 5157 • previousnext

s-302 Mátti hún eigi fyrr úr hvernum komast en hún óð úr þangað er lengra var og grynnra.
s-303 En þá er hún kom úr, þá vildu menn færa hana úr skónum.
s-304 En er sokkunum var ofan steypt skónum, þá fylgdi þar bæði skinnið og holdið.
s-305 Þá bauð ógn mikla þeim er yfir stóðu af því öllum þótti von miklu meir mundu brunnir vera niður fæturnir en upp of leggina.
s-306 Hétu þau síðan á hinn sæla Þorlák biskup hann skyldi þeim líkn veita og miskunn með sínu árnaðarorði hún mætti heil verða.
s-307 Síðan var hún færð úr sokkunum og var þar miður brunnið er áður hugðu til meira bruna.
s-308 Varð hún síðan heil á einum mánaði þar er áður vættu þeir henni trautt lífs en þótti hún ráðin til örkumla þótt hún rétti við og lofuðu guð og hinn sæla Þorlák biskup.
s-309 Á hinu sama hausti eftir þetta varð atburður dóttir þessar konu er brunnið hafði féll geigvænlega og lestist lærleggurinn og laust í æðiverk í fótinn og mátti hún ekki stíga á fótinn og nær ekki sofa.
s-310 Var hún færð í Reykjaholt og var hún þar mjög lengi og batnaði ekki.
s-311 Var hún ávallt borin fram og innar.
s-312 Þá var það sagt frá of aftan menn höfðu heitið á hinn sæla Þorlák biskup til ársbótar og veðrátta batnaði og vel þótti við hafa skipast.
s-313 Þá fékk henni mikils, meyjunni, og hét hún á hinn sæla Þorlák biskup hann miskunnaði henni.
s-314 En á hinni sömu nótt eftir sýndist henni maður í svörtum klæðum og strauk um fótinn.
s-315 En of morgininn er hún vaknaði, þá gekk hún með staf en var skamms bragðs alheil og fór jartein brátt of allt land og lofaði hver maður guð og sælan Þorlák biskup.
s-316 Prestur einn er farið hafði fyrir ástar sakar sækja helgan dóm hins sæla Þorláks biskups féll enn fall mikið er hann fór heim á leið og varð honum svo illt við hann þóttist nálega ekki mega stíga á fótinn þann er niður hafði komið og mátti hann nær ekki á mat og ekki sofa hinn fyrra hlut nætur fyrir ofverkjum þeim er í fætinum voru.
s-317 Þá hét presturinn af öllum hug á hinn sæla Þorlák biskup hann léti honum batna síns meins.
s-318 Eftir það sofnaði hann mjög brátt og vaknaði síðan of morgininn snemma alheill með öllu og fór hann þegar hinn sama dag leiðar sinnar, fagnandi og lofandi guð og hinn sæla Þorlák biskup.
s-319 Á hinum sama hafði enn orðið atburður verk miklum laust í hönd manni og fylgdi síðan þroti svo mikill menn höfðu eigi séð jafnmjög blása á jafnlangri stundu hönd eins manns eða fót.
s-320 Varð hann hættur af með öllu.
s-321 Síðan var heitið fyrir honum á hinn sæla Þorlák biskup til heilsubótar.
s-322 En svo skipaðist við það áheit á einni nótt tók bæði úr hendinni allan verk og þrota og var hann heill upp frá þeirri stundu sem hann hafði áður verið eða betur.
s-323 Maður fór vestan úr fjörðum þann vetur hinn sama, er áður er frá sagt, sækja helgan dóm hins sæla Þorláks biskups.
s-324 maður var fótveill, hann hafði fallið af baki þrim vetrum áður og hafði meiðst þjóleggurinn og hann í hvílu mikinn hlut hinna fyrstu missera eftir er hafði orðið.
s-325 En síðan lágu ávallt verkir í og leitaði hann þó vinna við.
s-326 En er hann var á leiðinni og fór smám, þá er hann mátti svo, þá kom hann of aftaninn fyr kyndilmessu á þann er Laugarvatni heitir og var þar of nóttina.
s-327 Þá var fætinum orðið erfitt af langri göngu, er hann hafði gengið áður of daginn, og var þá verkur mikill í fætinum.
s-328 Þá hét hann einkum á hinn sæla Þorlák biskup, skyldi hann láta ferð sína fram koma og hann mætti nekkverja umbót þiggja síns meins.
s-329 Síðan sofnaði hann nakkvað og vaknaði of morgininn allstirður og hrumur og fór til kirkju og baðst fyrir.
s-330 En hann varð heill of messu og kenndi hann gerla svo var sem hendi tæki fyrir þá er verkurinn fór úr fætinum og gekk hann síðan hinn sama dag óhaltur og orðinn alheill þá, og sýndi hann þá fótinn Páli biskupi og öllum þeim mönnum er þar voru við staddir og var það öllum auðsýnt mjög mundi vanmeta verið hafa.
s-331 Var þá lýst þeirri jartein í kirkju og sungið Te deum og hringt öllum klukkum og lofuðu allir guð sem kunnu framast og hinn sæla Þorlák biskup.
s-332 Í Ölfusi varð atburður maður meiddist í leik og gekk hönd hans úr liði og þurfti marga menn til áður í liðinn kæmist.
s-333 Síðan fór hann heim of aftaninn.
s-334 En of morgininn eftir laust æðiverk í höndina svo hann mátti ekki sofa og hann fékk trautt legró.
s-335 Hét hann síðan af öllum hug á hinn sæla Þorlák biskup til hjálpar sér og heilsubótar.
s-336 Eftir það rann á hann höfgi og hann síðan í þeim höfga hinn sæla Þorlák biskup og mælti við hann og tók eigi á honum.
s-337 ' Títt gerist yður ', sagði hann,' heita á leið fram og enda eigi það er þér heitið.'
s-338 Síðan vaknaði hann og var þá alheill og minntist á síðan í hug sér hví hinn sæli Þorlákur biskup mundi þann ákenning gert hafa of heit hans og mundi þá síðan hann hafði heitið á hinn sæla Þorlák biskup of sumarið áður fyrir augum bróður síns en hafði eigi í hug komið enda.
s-339 Sendi hann síðan í Skálaholt hvort tveggja heitfé og urðu allir fegnir er þessa jartein heyrðu sagða og gerðu guði þakkir og sælum Þorláki biskupi.
s-340 Á einum var griðungur mannýgur er trautt máttu karlar reka naut fyrir honum.
s-341 En þá barst svo engi karlmaður var á bænum en nautin þurfti heim reka.
s-342 Varð síðan til kona ein vel tvítug, heldur kná, og vel visk fara eftir nautum og hafði staf í hendi.
s-343 En er hún kom í nánd við nautin, þá gerði griðungurinn á mót henni.
s-344 En hún laust hann síðan þegar með stafnum.
s-345 En griðungurinn gekk eigi undan og vildi stanga hana.
s-346 En hún varð á milli hornanna griðungsins og tók síðan höndum of háls griðunginum og hélt sér svo.
s-347 En griðungurinn vildi hana ávallt ofan færa.
s-348 Hún tók þá síðan mæðast mjög og var þá við sjálft hún mundi verða laust láta.
s-349 Þóttist hún þá ráðin til örkumla eða til bana því hún fann eigi griðungurinn mæddist.
s-350 Hét hún þá síðan á hinn sæla Þorlák biskup til hjálpar sér.
s-351 Eftir það brá hún knífi og leitaði skera á hálsinn slíkt er hún mátti.
s-352 En er henni var minnst von, þá féll griðungurinn og rétti frá sér alla fætur og hugði hún þá fjörbrot á vera.
s-353 Komst hún síðan nauðulega heim.
s-354 En þá er eftir nautunum var farið, þá gekk griðungurinn eftir nautunum svo hægur og hýr hann gaf þá öngum manni gaum.
s-355 En á of allt sumarið eftir það er atgangurinn hafði verið.
s-356 atburður varð enn maður lét gelda hest er hann átti, ungan og góðan.
s-357 En hestinum kom blóðrás mikil. En eftir það sullur æsilegur og svall allur kviðurinn á hestinum svo eigi mátti ganga mat sér of síðir og gerðust vogföll mikil og hol á svo stór maður mátti stinga í hnefa sínum og þar kom of síðir fúnaði kviðurinn og voru skornar af allar skauðirnar af hestinum og þótti eigi von lifa mundi lengi.
s-358 Eftir það hét er átti hestinn gefa hálfan hestinn hinum sæla Þorláki biskupi ef fram kæmist.
s-359 Síðan færði hann á braut hestinn, en hríð á mikil.
s-360 En hinn sæli Þorlákur biskup gætti svo til hestsins á einum hálfum mánaði varð alheill hesturinn og svo skauðirnar á sem öðrum geldum hestum.
s-361 En leysti síðan hestinn til sín of vorið er heitið hafði og endi vel heit sitt eftir ráði Páls biskups og þökkuðu menn guði þessa jartein og hinum sæla Þorláki biskupi.
s-362 Maður fór þenna hinn sama vetur eftir upptekning hins sæla Þorláks biskups óvarlega með hest og brast niður ís undir öllum saman þar er vatnfall var undir og djúp.
s-363 Komst maðurinn brátt upp úr vökinni en hesturinn komst eigi upp.
s-364 Fór maðurinn síðan heim til bæjarins skyndilega og kallaði á menn og greip járnsleggju í hönd sér og rann fyrir og braut ísinn en víddi vökina og er honum var minnst von þá slapp sleggjan úr hendi honum í vökina og djúpið.
s-365 Komu þá menn og komst þá upp hesturinn brátt.
s-366 En sleggjan náðist ekki og merktu þeir til hvar sleggjunnar var von, settu upp drangstein á landinu gagnvert og eigi allnær vatnfallinu og gengu heim síðan.
s-367 En þeim er sleggjuna hafði niður fellt þótti ill slysför sín en fjárskaði búanda og hét síðan á hinn sæla Þorlák biskup sleggjan skyldi nást.
s-368 En fám nóttum síðar kom hann til þar er sleggjan hafði týnst og þá er hann vildi hyggja eigi félli marksteinninn, þá stóð þar sleggjan við steininn sem maður hefði nýsett niður.
s-369 Varð hann síðan allshugar feginn og tók sleggjuna og hafði heim og sagði þessa fagurlega jartein öllum mönnum þeim er við voru staddir og lofuðu allir guð og hinn sæla Þorlák biskup.
s-370 Annar atburður varð enn þessum glíkur í Skálaholti.
s-371 Þar brotnaði þelahögg er gröf var grafin.
s-372 En þá var fengin til öx mikil höggva þelann.
s-373 En er gröfin var grafin til loks, þá gleymdist öxin og var öngum seld til varðveislu. En er eigi var saknað fyrr en tveim nóttum eða þrimur síðan en verið hafði margt þeirra manna þar við statt er óvænna þótti til fundarins.
s-374 Var heitið síðan viku síðar en horfið hafði öxin á hinn sæla Þorlák biskup til þess aftur skyldi koma öxin, bæði söngvum og kertisgerð.
s-375 En einni nótt liðinni þá fannst öxin í rekkju þess manns er áður hafði varðveitt of veturinn og var þá sem nýlögð væri niður.
s-376 En þar hafði áður oftlega leitað verið svo víst var þá var eigi þar.
s-377 Þótti öllum atburður mikils verður þeim er við voru staddir og var Páll biskup í þessu heiti með öðrum mönnum og virði þessa jartein því meira sem hann kunni görr sjá en flestir aðrir.
s-378 Í Odda varð atburður at nautahellir féll og urðu þar undir tólf naut, þau öll höfðu þegar bana, og var nálega hvert bein þeirra brotið og engi iður ósökuð í þeim.
s-379 En almáttigur guð lét fylgja minnilega huggun þessum fjárskaða í jartein þeirri er hann lét verða fyrir hinn sæla Þorlák biskup.
s-380 Þar varð undir bjarginu með öðrum nautum uxi mikill og góður.
s-381 En er menn komu til hellisins, þá sáu menn það undan bjarginu tók höfuð uxans þess hins mikla og það var kvikt en nálega var mannhæð bjarginu er á uxanum .
s-382 Þá var til farið höggva bjargið af uxanum og verið mikinn hluta dags.
s-383 Þá var heitið á hinn sæla Þorlák biskup uxinn skyldi við rétta og hétu þeir gera kerti til dýrðar hinum sæla Þorláki biskupi það er tæki um uxann.
s-384 En er bergið var fært af uxanum, þá var hann reistur upp og studdur meðan hann fór út úr hellinum en þá gekk hann þegar einn saman til annars hellis og át þegar mat sinn hinn sama aftan og var ekki bein brotið knýtt og þótti það af þveru frá glíkindum vera öllum þeim mönnum, er deili vissu á, er eigi var hvert bein brotið í honum sem öðrum nautum þeim er undir slíkum þunga höfðu verið.
s-385 En kertið var fimm álna langt og brann af helgum dómi hins sæla Þorláks biskups hans messudag og lofuðu allir guð og hinn sæla Þorlák biskup.
s-386 Hallur Gissurarson, góður prestur og göfugur, hafði kverkamein og sótti oft mjög svo hann mátti nálega ekki mæla og öngum mat niður koma en sjaldan meinlaust með öllu.
s-387 En er hann fór leiðar sinnar of sumar svo hann kenndi þessa meins og var honum bæði meint niður svelga og svo drekka en meinst hósta þá kom hann í Skálaholt of farinn veg og baðst fyrir helgum dómi hins sæla Þorláks biskups of stundar sakar.
s-388 En áður hann gengi á braut þá tók hann til trafanna er á klæðum þeim voru er tjaldað var of kistuna og reið á kverkarnar í kross og söng þetta: ' Sancte Thorlace ora pro nobis.'
s-389 Síðan gekk hann á braut úr kirkjunni.
s-390 En er hann kom til hests síns, þá hrækti hann og varð honum þá ekki illt við eftir því sem vandi var á.
s-391 Þá treystist hann enn framar guðs miskunn og jartein þá er hann þóttist fengið hafa og tók þá hósta eftir því sem þá er honum var mest mein við verða.
s-392 Fann hann þá síðan hann var þá til loks heill orðinn og sagði hann sjálfur þessa jartein Páli biskupi svo margir heyrðu á og lofuðu allir almáttkan guð er slíkar dýrðir lætur verða fyrir sælan þjón sinn Þorlák biskup.
s-393 atburður varð á þeim er í Gröf heitir, skammt frá Skálaholti, mjög á ofanverðum dögum hins sæla Þorláks biskups misseratali því er hann hafði hér heima gullsylgja týndist er átti eiginkona þess manns er þar bjó i Gröf.
s-394 Var síðan leitað vandlega hvervetna þar er í hug kom og von þótti vera og fannst eigi sylgjan.
s-395 Þá var síðan heitið á helga menn bæði föstum og ölmusugjöfum, söngvum og kertagjörð og fannst þó eigi sylgja.
s-396 Þá var leitt spurningum víða því það þótti mörgum mönnum glíklegast stolið mundi vera og spurðist hvergi til.
s-397 Dofnaði þá yfir síðan og gat engi maður sylgjunnar.
s-398 En þann vetur eftir er heilagur dómur hins sæla biskups hafði verið upp tekinn úr jörðu áður of sumarið og hefir áður verið mjög margt frá sagt, þá skaut því í hug henni húsfreyjunni, er gullsylgjunnar hafði misst, heita á hinn sæla Þorlák biskup sylgjan fyndist eða kvæmi aftur.
s-399 Hét hún gefa hálfvirði sylgjunnar til þakka hans.
s-400 En litlu síðan en hún hafði heitið varð atburður á þeim, er nálægur var þeim bænum er sylgjan hafði týnst fyrir öndverðu, maður var sýslu og reiddi tað á akurland.
s-401 En er hann kom götu þeirri, er þjóðgata var þeirra manna er riðu og gengu, þá hann nakkvað glóa við á götunni.

Text viewDownload CoNNL-U