Dependency Tree
Universal Dependencies - Icelandic - PUD
Language | Icelandic |
---|
Project | PUD |
---|
Corpus Part | test |
---|
Annotation | Jónsdóttir, Hildur |
---|
Select a sentence
s-1
| Það voru nokkrar fornar siðmenningar við strendur Miðjarðarhafsins og nálægðin við hafið hafði mikil áhrif á þær. |
s-2
| Það var hægt að fara yfir það til að stunda viðskipti, hernema lönd og heyja stríð, auk þess sem það var uppspretta matar (með veiðum og öflun annars sjávarfangs) fyrir mörg samfélög í aldanna rás. |
s-3
| Vegna sameiginlegs loftslags, landlegu og aðgangs að hafinu var menning og saga menningarheima við Miðjarðarhafið gjarnan samofin að einhverju marki. |
s-4
| Tvær merkustu siðmenningarnar við Miðjarðarhafið í fornöld voru grísku borgríkin og Fönikía, sem bæði lögðu undir sig stóra hluta strandlengjanna við Miðjarðarhaf. |
s-5
| Síðar, þegar Ágústus stofnaði Rómverska keisaradæmið, kölluðu Rómverjar Miðjarðarhafið Mare Nostrum („hafið okkar“). |
Text view
•
Download CoNNL-U