s-1
| Bæjarar voru þegar án Arturo Vidal og David Alaba og máttu þeir ekki við meiðslum sem þessum. |
s-2
| Haraldur Franklín Magnús er einn þriggja GR-inga sem leika á móti á Englandi í október. |
s-3
| Hann segir þó að örninn geti numið allt land á ný eða þar sem hann finnur kjöraðstæður. |
s-4
| Um helgina hefjast Veitur handa við að leggja nýja stofnæð vatnsveitu undir Miklubraut, rétt vestan Kringlumýrarbrautar. |
s-5
| Stúlkan hafði komið heim úr skólanum og var að hjóla um húsið sem er að mestu tómt. |
s-6
| Það verður líka örugglega meiri sóknarbolti hjá okkur en í fyrri leiknum, sagði Jóhann Berg. |
s-7
| Trump hvikaði hvergi frá stuðningi við Kavanaugh en fór fram að Ford fengi að segja sína hlið. |
s-8
| Það er nauðsynlegt að leiðtogar Úkraínu leggi aftur áherslu á umbætur í landinu, sagði Lagarde. |
s-9
| Galdelli er sakaður um að hafa þóst vera Bandaríski leikarinn Gerorge Clooney í því skyni að markaðssetja fatalínu. |
s-10
| Hér heima elskum við kúgara okkar svo mikið að við höldum þeim við kjötkatlana hvað sem það kostar. |
s-11
| Hún fór fram í rýnihópum þar sem fólk var látið spila nýju leikina. |
s-12
| Góðar samverustundir með skemmtilegu fólki geta virkað eins og bestu vítamínsprautur í skammdeginu. |
s-13
| Þungfært er innansveitar í Vopnafirði og á Vopnafjarðarheiði en ófært er um Hólasand. |
s-14
| Það sem ég vissi ekki þá var að stressið var rétt að byrja. |
s-15
| Fylgjendur bannsins halda því fram að með lögleiðingu þá muni neysla kannabisefna aukast. |
s-16
| Endanleg ákvörðun um þetta verður tekin á leiðtogafundi NATO í Varsjá í næsta mánuði. |
s-17
| Síðan hringdi hann aftur og bauð mér að vera með sér á plötunni. |
s-18
| Í kadettflokki stúlkna áttum við tvo keppendur, Oddnýju Þórarinsdóttur og Eydísi Magneu Friðriksdóttur. |
s-19
| Í samtali við mbl.is segir Dagur að úrskurður kjararáðs hafi hleypt atburðarásinni af stað. |
s-20
| Fyrst áttum við samt að rétta honum skilríkin okkar, segja kennitölu og sakaferil. |
s-21
| Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, hefur áhuga á að fá Giggs til starfa á meðan bandarískir eigendur félagsins vilja gefa Guidolin meiri tíma, enda tímabilið nýhafið. |
s-22
| Með þessari aðferð eru öll umhverfisáhrif metin, ekki bara útblásturinn, allt frá námuvinnslu, í gegnum framleiðsluferilinn, með notkun vörunnar og loks er það förgunin. |
s-23
| Tímamót áttu sér stað í íslensku samfélagi í gærkvöld þegar ríkisstjórn landsins féll, ekki vegna peninga eða ágreinings stjórnmálamanna, heldur vegna þess að konur höfðu hátt. |
s-24
| Fólki gekk illa að komast leiðar sinnar en einhverjir freistuðust samt til þess að reyna að aka heim í snjókomunni þrátt fyrir að hafa fengið sér í glas. |
s-25
| Ég hélt að lífið yrði allt í lagi, eins og það var í Víetnam; eini munurinn yrði kannski maturinn, segir Le Thi The. |
s-26
| Hann bendir þó á að háværar raddir hafi verið uppi um það árið 2013, þegar hvalveiðar voru hafnar að nýju, að áhrif ákvörðunarinnar á ferðaþjónustu yrðu slæm. |
s-27
| Kunnátta á bókstöfum og hljóðum þeirra er ein af grunnstoðum fyrir lestur, samanber kenningar fremstu vísindamanna í heiminum á sviði lestrar, þeirra Stanislas Dehaene og Joels Talcott. |
s-28
| Hann er með mikið úrval sem hann hefur prófað hjá sér, segir Ólafur Sturla og bendir á að Blomkvist Planteskole sé á sömu breiddargráðu og Reykjavík. |
s-29
| Hann er hins vegar í sjálfskipaðri útlegð og hefur áður sagst ekki þora að snúa aftur heim af ótta við að hann fengi aldrei aftur að fara úr landi. |
s-30
| Teigen og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn John Legend, eignuðust sitt annað barn í fyrra en henni leið betur og er ein ástæðan sú að hún er á lyfjum. |
s-31
| „Hann talar um Repúblikana á þingi í þriðju persónu. |
s-32
| Sveitarfélögin sex standa í dag að sameiginlegri félagsþjónustu og brunavörnum. |
s-33
| Þorsteinn á sjálfur tvo drengi, 6 og 10 ára. |
s-34
| Þetta mun halda áfram næstu áratugina svo mikið er víst. |
s-35
| Þetta voru yfir 60 símtöl í gærkvöldi,“ segir Júlíus. |
s-36
| Hvorki forsætisráðherra né forseti virðast hafa verið viðstödd setningu hennar. |
s-37
| Greiningardeildir hafa spáð hófstilltum vexti í ferðaþjónustu á næsta ári. |
s-38
| Í janúar 2015 hlaut hún sjö mánaða dóm fyrir sama brot. |
s-39
| Þá unnu Haukar stórsigur á Aftureldingu, 27: 14. |
s-40
| Möguleiki Fram felst í því að skora yfir 30 mörk. |
s-41
| Þetta leiðir bæði af flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskum lögum sem sett eru á grundvelli hans. |
s-42
| Á meðal þeirra sem biðu eftir úthlutun á sama tíma og Palli voru tvær ungar konur. |
s-43
| Til að mynda þessir Sýrlendingar en í heimalandi þeirra hefur geisað stríð í rúmlega fimm ár. |
s-44
| Leikstjóri myndarinnar er Christopher Nolan en þetta er þriðja Nolan-myndin sem Eggert starfar við. |
s-45
| Suður-Kóreumenn efldu varnir sínar í morgun með því að koma fyrir fjórum nýjum flugskeytaskotpöllum. |
s-46
| Þá fengu sex einstaklingar styttri dóma vegna síns þáttar í málinu, en sjö voru sýknaðir. |
s-47
| Við vorum að spila á móti betra liði, einu besta liðinu í heiminum í dag. |
s-48
| Miðjumenn: Fanndís Friðriksdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Guðmunda Brynja Óladóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir. |
s-49
| Ingibjörg segir að nöfn sakamanna geti átt erindi við almenning en alls ekki í öllum tilvikum. |
s-50
| Þá sé óvíst hvenær lánið verði greitt niður að fullu og félagið fari að greiða tekjuskatt. |
s-51
| Nær engar rökræður eru um þetta nú þegar lokahnykkur í losun hafta nálgast, sem verður að teljast með nokkrum ólíkindum. |
s-52
| Ég tilkynnti Þorsteini Má í símtali þá niðurstöðu en við höfðum verið í símasambandi um stöðu málsins á fyrstu mánuðum ársins 2013.“ |
s-53
| Víkingur vann sinn fyrsta sigur í deildinni en lokatölur urðu 0: 3 eftir að staðan í hálfleik var 0: 0 |
s-54
| Við venjulegar kringumstæður lenda mistök sem þessi að endingu fyrir dómstólum ef ekki er úr þeim bætt með frumvarpi frá viðeigandi ráðherra. |
s-55
| Af framgöngu Slash þurfti í raun ekki að hafa áhyggjur fyrirfram enda stutt síðan hann heiðraði okkur síðast með nærveru sinni. |
s-56
| „Við ætlum ekkert að blekkja sjálfa okkur með því að halda að við séum komnir í baráttu um einhverja titla. |
s-57
| Það hefur kannski vantað upp á hjá okkur,“ segir Damir en Blikaliðið er aðeins búið að skora þrettán mörk. |
s-58
| Þá fjölgar störfum hratt, atvinnuleysi er lítið og atvinnuþátttaka er orðin meiri en hún var mest á þenslutímanum fyrir fjármálakreppuna. |
s-59
| Þeir fengu hluta lánsupphæðarinnar greidda út en afganginn ætlaði Landsbankinn að fjárfesta þannig að fólkið þyrfti ekki að greiða af láninu. |
s-60
| Langafi minn, Þórður Sveinsson, var geðlæknir á Kleppi, þar sem afi minn og systkini hans fæddust og ólust upp. |
s-61
| Stjórnvöld vonast til þess að ferðamenn streymi til þessa fátæka og róstursama héraðs. |
s-62
| Snorri kom í mark á einni klukkustund, 23 mínútum og 33 sekúndum. |
s-63
| Stjórnir félaganna munu koma saman strax eftir helgi og huga að næstu skrefum. |
s-64
| Dómurinn taldi hins vegar fullsannað að hann hafi tekið þátt í aðgerðum hryðjuverkasamtakanna ISIS. |
s-65
| Við erum mjög skammt komin í umræðunni um meðferðir við lífslok og dánaraðstoð. |
s-66
| Vísir greindi fyrstu frá umræðunum og þar má hlusta á viðtalið í heild. |
s-67
| Madjer leyfði Mahrez ekki að svara en hóf þess í stað mikinn reiðilestur yfir blaðamanninum. |
s-68
| Á svæðinu var einnig Davines sjampóbar þar sem partýgestir gátu blandað eigið sjampó. |
s-69
| AFP fréttastofan hefur eftir embættismanni í héraðinu að líklega hafi mun fleiri dáið. |
s-70
| Við verðum að brjóta niður þessi síló á milli kerfa — með tækninni!“ |
s-71
| Hreindýrin sem lifa í dag eru talin öll vera afkomendur þeirra dýra sem voru sett í land í Vopnafirði. |
s-72
| Vísað er til þess sem rakið var að framan um læknisfræðilegar rannsóknir á ákærða með tilliti til sakhæfis hans. |
s-73
| Rúnar Arnórsson, sá eini sem komst í gegnum niðurskurð keppenda, féll niður í 44. sæti á lokahringnum. |
s-74
| Tveir erlendir ferðamenn leituðu eftir aðstoð lögreglunnar á Vestfjörðum á mánudag eftir að hafa lokast inni á milli snjóflóða. |
s-75
| Hluti þess fjár sem er varið til rannsókna á háskólastigi er veitt til háskóla af fjárheimild málaflokksins háskólar. |
s-76
| Hann snéri sér þá að eiginmanni hennar Emmanuel og sagði: Hún er í svo góðu formi. |
s-77
| Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, teflir fram nokkuð breyttu byrjunarliði sé tekið mið af byrjunarliði Íslands í síðustu landsleikjum. |
s-78
| Anna segist ekki þekkja neitt annað en að hugsa vel um heilsuna því þannig hafi hún verið alin upp. |
s-79
| Hann var í Oddfellowreglunni frá 1985 og var m.a. yfirmeistari Stúku nr. 19, Leifs heppna 2010–2012. |
s-80
| Að baki framboðinu eru vel smurðar kosningavélar stjórnmálaflokka sem vita nákvæmlega hvernig er hægt að spila með trúgjarnt fólk. |
s-81
| Næstflest hjólreiðaslys urðu þegar hjólreiðamaður hjólaði þvert yfir akbraut. |
s-82
| Bara stormur eins og kemur reglulega á haustin. |
s-83
| Ég ákvað að hafa ekki þjálfara í ár. |
s-84
| Vélin er um 238 hestöfl og togið er mikið. |
s-85
| Það þarf að setja pening í heilbrigðiskerfið yfir höfuð. |
s-86
| Vegna mikils áhuga eru höfundar byrjaðir á seríu þrjú. |
s-87
| Skýrslu um niðurstöður könnunarinnar má finna hér að neðan. |
s-88
| Erling segir þó enga ástæðu til að hafa áhyggjur. |
s-89
| Eldri en 18 ára greiða venjulegt komugjald á stöð. |
s-90
| Ég verð að fá að hlæja að þessu. |
s-91
| Ég hendi mér beint í það, segir Egill og hlær. |
s-92
| Krafist var meira en fjögurra ára fangelsis yfir honum fyrir alvarlega líkamsárás. |
s-93
| Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, prýddi forsíðu tímarits Smartlands. |
s-94
| Almenningssalerni voru opnuð á ný við skiptistöð Strætó í Mjódd á föstudag. |
s-95
| Þá hafnaði hæstiréttur í Bandaríkjunum beiðni stjórnvalda um að grípa inn í. |
s-96
| Vegagerðin áætlar að hefla Meðallandsveg en ekki fyrr en í næstu viku. |
s-97
| Þar fyrir utan eru keyptir nokkur þúsund dagskammtar af svefnlyfjum fyrir vistmenn. |
s-98
| Framendinn var að detta af honum og annað frambrettið að rifna upp. |
s-99
| Mikilvægt er að ljúka heildarstefnu um heilbrigðismál með framtíðarsýn um heilsu þjóðarinnar. |
s-100
| Heldurðu að hann fari fljótlega til einhvers af stóru liðunum í Evrópu? |