s-202
| Það var hvort leyfa ætti akstur í gegnum Vonarskarð. |
s-203
| Það er alveg eðlilegt að menn geti verið ósammála um það. |
s-204
| Ég skil að vísu ekki að nokkrum manni skuli detta það í hug að ætla að fara að leyfa mönnum að aka þar í gegn, en það er bara efnislegt. |
s-205
| Forseti hringir. |
s-206
| Þannig var þetta í sumum tilvikum. |
s-207
| Ég vildi því gjarnan að hv. þingmaður kæmi aðeins betur að þessu, ég veit að hann vill ekki fara offari. |
s-208
| Herra forseti. Það er nákvæmlega það sem við skulum gera. |
s-209
| Það var tekin um það ákvörðun á sínum tíma hvað var það, 2006 eða 2007? að leggja hinn afkastamikla og dýra streng Danice og stórbæta þar með fjarskiptasamband Íslands við útlönd og auka öryggi. |
s-210
| Það var meðal annars og ekki síst gert vegna þess Gripið fram í. að það var forsenda þess að hér gæti risið upp gagnaveraiðnaður, Gripið fram í. sem margir hafa trú á og ég hef enn trú á að geti átt eftir að blómgast. |
s-211
| Síðan varð hér eitt stykki hrun, fyrirtæki lentu í miklum erfiðleikum og auðvitað héldu fjárfestar að sér höndum og nýtingin á strengnum óx ekki eins og menn höfðu vonast til og gert ráð fyrir. |
s-212
| Hvað átti þá að gera? |
s-213
| Hv. þingmaður kemur sér undan því að svara því, hefur bara stór orð uppi og hrópar að öðrum. |
s-214
| En hvað átti að gera? |
s-215
| Átti að slökkva á strengnum? |
s-216
| Átti að láta setja hann á nauðungaruppboð með ríkisábyrgð á hluta af lánunum; og við í samstarfi við Færeyinga meðal annars um hluta af málinu? |
s-217
| Nei, auðvitað var það ekki hægt. |
s-218
| Auðvitað gengu menn í að leysa þetta mál. |
s-219
| Það var ekkert annað að gera og hv. þingmaður ætti að venja sig af því að vera með stóryrði um hluti sem hún ætti kannski aðeins að hugsa um áður en hún tjáir sig. |
s-220
| Gripið fram í. |
s-221
| Herra forseti. Ég og hv. þm. Pétur Blöndal höfum í meginatriðum valið okkur þá lífsskoðun og þann flokk sem við tilheyrum bæði út frá því að við viljum frekar hafa kerfið einfalt, búa til einfaldan ramma þannig að við veitum einstaklingum og fyrirtækjum sem mest svigrúm og möguleika til að nýta og njóta sinna eigin krafta. |
s-222
| Það mun skila arði og skilar þegar arði fyrir allt samfélagið. |
s-223
| Varðandi síðari spurningu hv. þingmanns er ég frekar andsnúin því að fara alltaf í það sem ég hef kallað stagbætt kerfi. |
s-224
| Við sjálfstæðismenn þurft að sitja undir þeim ásökunum að við höfum alltaf reynt að standa vörð um kvótakerfið og ekki viljað breyta því frá upphafi. |
s-225
| Það er kolrangt. |
s-226
| Við fórum meira annars af stað í auðlindanefnd upp úr aldamótunum síðustu og settum á veiðileyfagjald í samvinnu og sátt við þá sem þá áttu hlut að máli. |
s-227
| Við settum af stað byggðakvóta. |
s-228
| Það er hægt að gagnrýna hann en hann var samt tilraun til þess að koma til móts við helstu gagnrýnisraddirnar. |
s-229
| Ég er sammála því að strandveiðarnar séu góðra gjalda verðar. |
s-230
| Það er ákveðin rómantísk hugsun á bak við þær en þær eru og verða ólympískar veiðar. |
s-231
| Ég hef verið að draga það fram. |
s-232
| Menn munu reyna að veiða meira á sem skemmstum tíma, það getur farið allt niður í tvo tíma eða tvo daga hverju sinni. |
s-233
| Það mun síðan kalla á þrýsting á stjórnmálamenn um að bæta við. |
s-234
| Þá verður það tekið af einhverjum öðrum. |
s-235
| Varðandi framsalið hefur hv. þingmaður margoft komið inn á hvað það er mikilvægt. |
s-236
| Já, framsalið er mjög mikilvægt. |
s-237
| Ég mun koma betur að því í síðara andsvari mínu og fara yfir það sem hv. þingmaður sagði. |
s-238
| Það er algjörlega fullkomið framsal, takmarkalaust, gegn því að allur fiskur fari á markað. |
s-239
| Það er umræða sem ég bíð með þar til í síðara andsvari mínu. |
s-240
| Herra forseti. Það er ekki annað hægt en að brosa þegar einn af framámönnum Framsóknarflokksins kemur upp og segir: Æ, treystið þið ríkisstjórninni? |
s-241
| Hver á þessa ríkisstjórn með húð og hári? |
s-242
| Gripið fram í: Ekki þessa. |
s-243
| Erum við ekki að tala um rúmlega tveggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar sem Framsóknarflokkurinn kom á laggirnar út af því að það var komin heift í Framsóknarflokkinn gagnvart Sjálfstæðisflokknum? |
s-244
| Gripið fram í. |
s-245
| Það þurfti að einangra Sjálfstæðisflokkinn, hann var um tíma í þessu kompaníi að ekki mátti ræða við Sjálfstæðisflokkinn af því að það var svo ómálefnalegt. |
s-246
| Um að gera að hleypa Samfylkingunni og Vinstri grænum að, fyrst sem minnihlutastjórn. |
s-247
| Framsókn kokgleypti náttúrlega allt, átti að fá stjórnlagaþingið og atvinnumálin og skjaldborgina um heimilin og hvað hafa þeir? |
s-248
| Þeir hafa ekkert fengið. |
s-249
| Framsóknarflokkurinn hefur ekki fengið neitt. |
s-250
| Gripið fram í. |
s-251
| En við sitjum uppi með ríkisstjórnina. |
s-252
| Gripið fram í. |
s-253
| Það eina sem við getum gert er að koma ríkisstjórninni út úr sjálfheldunni sem hún er í og reyna að nálgast hvert mál málefnalega. |
s-254
| Ekki út frá þessum klassísku skotgröfum sem við höfum allt of lengi verið í, heldur að reyna að taka hvert mál fyrir í einu. |
s-255
| Þannig reynum við að gera varðandi Icesave. |
s-256
| Þannig gerðum við við gagnaverið og það er rétt sem ég var minnt á áðan, Framsóknarflokkurinn lyfti ekki litla fingri til þess að koma gagnaverunum í gegn heldur þurfti Sjálfstæðisflokkurinn með hluta af Samfylkingunni að ýta því í gegn og nokkrir Vinstri grænir fengu að vera með meðan fjármálaráðherrann sat hjá. |
s-257
| Þannig er hægt að gera hlutina. |
s-258
| Ég og hv. þingmaður sem heitir því fallega nafni Gunnar Bragi Sveinsson Gripið fram í: Kommon! Hlátur í þingsal. deilum sömu skoðun; að vilja koma ríkisstjórninni frá hið snarasta. |
s-259
| Við skulum ekki gleyma uppruna ríkisstjórnarinnar, hún er upprunnin frá Framsókn og hún á ríkisstjórnina með húð og hári. |
s-260
| Frú forseti. Ég þakka hv. þingflokksformanni, Gunnari Braga Sveinssyni, fyrir góða og heiðarlega ræðu og nokkuð aðra ræðu en við höfum heyrt af hálfu annarra framsóknarmanna hér í dag. |
s-261
| Ég vil sérstaklega fagna mjög skýrum orðum hans um Hæstarétt, að hann eigi ekki að sniðganga, að við eigum að virða það sem frá honum kemur. |
s-262
| Ég vil líka sérstaklega taka undir það sem hann sagði um breiðu sáttina og við eigum að gefa okkur tíma í að fara í breytingar á stjórnarskránni. |
s-263
| Við vitum að að minnsta kosti þrír samfylkingarmenn munu greiða atkvæði gegn þessu, eða hafa lýst sig andsnúna þessu, auk hæstv. innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, sem hefur lýst sig andsnúinn þessari leið. |
s-264
| Þegar upp er staðið virðist það því vera að framsóknarmenn ætli að tryggja framgang þessa máls og því vil ég spyrja hv. þingmann Forseti hringir. hvort hann telji sig bundinn af því sem frá Forseti hringir. stjórnlagaráðinu kemur. |
s-265
| Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásbirni Óttarssyni fyrir mjög góða ræðu þar sem hann útskýrði marga hluti sem menn hafa verið að spyrja um. |
s-266
| Það er auðvitað ekki hægt að aðgreina þetta mál frá því stóra samhengi sem þetta mál snýst raunverulega um, það er samgönguframkvæmdir og hvernig við getum ýtt þeim áfram. |
s-267
| Þetta sérstaka mál snýr að því hvernig við getum farið af stað með framkvæmdir á Vaðlaheiði. |
s-268
| Hv. þingmaður hélt hér ræður á sínum tíma í tengslum við umræðuna um gjaldtöku í vegamálum varðandi Reykjanesbraut, Vesturlandsveg, Suðurlandsveg og síðan Vaðlaheiði og ég spyr hann hvaða nákvæmu skoðanir hann hafi sett fram á sínum tíma. |
s-269
| Það er fyrsta spurning. |
s-270
| Önnur spurning er hvort hann geti upplýst, a.m.k. mig og þá þingheim líka, hvaða sjónarmið hafi verið reifuð innan samgöngunefndar af hálfu þeirra sem höfðu ákveðnar efasemdir um þessa leið og þetta mál. |
s-271
| Gott væri að fá það upplýst. |
s-272
| Skildi ég hv. þingmann rétt í því að ef þessi framkvæmd kemur ekki til með að gefa af sér þann arð og hagkvæmni sem menn gera kannski ráð fyrir í dag geri hann ráð fyrir því að ríkið muni yfirtaka restina af hlutafélaginu og það muni þá hafa í för með sér útlát fyrir ríkissjóð? |
s-273
| Er þetta réttur skilningur hjá mér í þessari þriðju spurningu minni til hans? |
s-274
| Dregið var í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildar karla í fótbolta fyrir skömmu. |
s-275
| Sigurvegarinn í viðureign KR og svissneska liðsins Grasshopper mætir Apollon Limassol frá Kýpur í næstu umferð. |
s-276
| KR og Grasshopper gerðu 3 3 jafntefli í vesturbænum í gærkvöld og mætast aftur ytra í næstu viku. |
s-277
| Fyrr í morgun var dregið í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem Íslandsmeistarar FH eru meðal þátttökuliða. |
s-278
| FH og írska liðið Dundalk gerðu 1 1 jafntefli í fyrri leik sínum í síðustu viku og mætast aftur í þeirri næstu. |
s-279
| Sigurvegarinn í þeirri viðureign mætir annað hvort BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi í næstu umferð eða SJK Seinäjoki frá Finnlandi. |
s-280
| FH hefur tvisvar mætt BATE áður og tapaði í bæði skiptin en Hafnfirðingur slógu Seinäjoki-menn út í keppninni í fyrra. |
s-281
| Íslandsmótið í golfi verður haldið á Jaðarsvelli á Akureyri um helgina. |
s-282
| Allir bestu kylfingar landsins verða á meðal þátttakenda, 137 keppendur eru skráðir til leiks þar af 31 í kvennaflokki sem er yfir meðaltali síðustu ára. |
s-283
| Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr GR er spáð sigrinum í kvennaflokki og Birgi Leifi Hafþórssyni, GKG, í karlaflokki. |
s-284
| Þessi spá sérfræðinga var kynnt á blaðamannafundi fyrir norðan í hádeginu. |
s-285
| Alls var hægt að fá 120 og niðurstaðan varð þessi: |
s-286
| Karlaflokkur: |
s-287
| 1. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG 98 2. Gísli Sveinbergsson, GK 69 3. Axel Bóasson, GK 50 4. Andri Þór Björnsson, GR 41 5 Þórður Rafn Gissurarson, GR 35 Kvennaflokkur: |
s-288
| 1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 107 2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 87 3. Valdís Þóra Jensdóttir, GL 67 4. Signý Arnórsdóttir, GK, 47 5. Sunna Víðisdóttir, GR 18 Þórður Rafn Gissurarson úr GR og Signý Arnórsdóttir úr GK eru ríkjandi Íslandsmeistarar. |
s-289
| Sýnt verður frá tveimur síðustu keppnisdögunum, á laugardag og sunnudag, á RÚV. |
s-290
| Margir af bestu kylfingum heims ætla ekki að nýta þátttökurétt sinn á Ólympíuleikunum í Ríó sem hefjast eftir 24 daga. |
s-291
| Það er leiðinlegt að þessi staða sé komin upp, og í raun tækifæri sem er farið í vaskinn, segir forseti Golfsambands Íslands. |
s-292
| Jason Day, Dustin Johnson, Shane Lowry, Rory McIlroy, Graeme McDowell, Adam Scott, Louis Oosthuizen, Vijay Singh og Jordan Spieth eru allir í hópi þeirra sem hafa afboðið sig á leikana. |
s-293
| Þarna á meðal eru fjórir bestu kylfingar heims. |
s-294
| En af hverju vilja þeir ekki taka þátt? |
s-295
| „ Í fyrsta lagi þá er það þessi Zika-veira sem keppendur virðast vera smeykir við, en það ætti svo sem ekki að skýra sérstaklega mikið brottfall kylfinga, það ætti þá að skýra brottfall allra íþróttamanna. |
s-296
| Ég hef ekki forsendur til að meta það hvað er mikið til í því eða hættuna af þessari Zika-veiru en það er að minnsta kosti ástæðan sem þeir gefa upp. |
s-297
| Í öðru lagi er það tekjutap þessarra kylfinga og með fullri virðingu fyrir Ólympíuleikunum þá keppa atvinnukylfingar í hverri einustu viku og það að fara til Ríó í tvær vikur eða svoleiðis myndi þýða tekjutap fyrir þá, mér finnst það reyndar frekar ómerkileg ástæða eða afsökun því Ólympíuleikarnir eru bara merkilegri. |
s-298
| Í þriðja lagi er það að Ólympíuleikarnir passa ekki nógu vel við mótadagskrá PGA mótaraðarinnar því að í vikunni eftir að Ólympíuleikunum lýkur þá fer fram síðasta risamót ársins sem er PGA meistaramótið og í hugum atvinnukylfinga þá er draumur þeirra fyrst og fremst að sigra á stórmóti, risa móti í golfi, og því miður held ég að í hugum þeirra séu þessi risamót bara skör hærri heldur en Ólympíuleikarnir eru,“ sagði Haukur Örn Birgisson þegar RÚV ræddi við hann í gær. |
s-299
| Þetta verður í fyrsta skipti sem keppt er í golfi á Ólympíuleikum í 112 ár. |
s-300
| Ákveðið var að bæta íþróttinni við sem keppnisgrein í Ríó í ár og í Tókýó 2020. |
s-301
| „ En vonandi ef golf heldur áfram að vera keppnisíþrótt á Ólympíuleikunum þá mun myndast meiri hefð fyrir því og Ólympíuleikarnir verði þá svona stærsta risa mótið því það er keppt á þessum risamótum á hverju einasta ári og þau eru fjögur á hverju einasta ári en Ólympíuleikarnir eru bara á fjögurra ára fresti og þeir ættu því að vera merkilegri fyrir vikið. |