Dependency Tree

Universal Dependencies - Icelandic - IcePaHC

LanguageIcelandic
ProjectIcePaHC
Corpus Partdev
AnnotationArnardóttir, Þórunn; Hafsteinsson, Hinrik; Sigurðsson, Einar Freyr; Jónsdóttir, Hildur; Bjarnadóttir, Kristín; Ingason, Anton Karl; Rúnarsson, Kristján; Steingrímsson, Steinþór; Wallenberg, Joel C.; Rögnvaldsson, Eiríkur

Select a sentence

Showing 904 - 1003 of 4865 • previousnext

s-904 ' En eg hugði,' segir Egill,' þér skyldi sjá gerð þykja merkileg og svo mun vera ef þú hyggur fyrir þér því það muntu muna á Rangárleið einn kotkarl markaði þrettán kúlur í höfði þér og tókstu þar fyrir þrettán lambær og ætlaði eg þér skyldi þessi minning allgóð þykja.'
s-905 Þorgeir þagnaði en þeir Skegg-Broddi og Járnskeggi vildu engum orðum skipta við Egil.
s-906 Þá mælti Ófeigur: ' vil eg kveða yður vísu eina og hafa þá fleiri minnum þing þetta og málalok þessi er hér eru orðin:
s-907 Egill segir: ' Vel máttu hælast um það engi einn maður mun meir hafa siglt á veður jafnmörgum höfðingjum.'
s-908 eftir þetta ganga menn heim til búða sinna.
s-909 Þá mælti Gellir til Egils: ' Það vil eg við séum báðir saman við okkrum mönnum.'
s-910 Þeir gera svo.
s-911 eru dylgjur miklar það er eftir var þingsins og una bandamenn allilla við þessi málalok.
s-912 En þetta vill engi hafa og rekst það þar um völluna.
s-913 Ríða menn heim af þinginu.
s-914 11. finnast þeir feðgar og var Oddur þá albúinn til hafs.
s-915 Þá segir Ófeigur Oddi hann hefir selt þeim sjálfdæmi.
s-916 Oddur segir: ' Skilstu manna armastur við mál.'
s-917 Ófeigur segir: ' Eigi er enn öllu skemmt frændi.'
s-918 Innir allan málavöxt og segir honum er konu heitið.
s-919 Þá þakkar hann honum liðveisluna og þykir hann langt hafa fylgt umfram það er honum kom í hug vera mætti og segir hann skal aldrei skorta .
s-920 ' skaltu fara,' segir Ófeigur,' sem þú hefir ætlað en brullaup þitt skal vera á Mel sex vikum.'
s-921 Eftir það skilja þeir feðgar með kærleikum og lætur Oddur út og gefur honum byr norður á Þorgeirsfjörð og liggja þar kaupmenn fyrir áður.
s-922 tók af byr og liggja þeir þar nokkurar nætur.
s-923 Oddi þykir seint byrja og gengur upp á eitt hátt fjall og sér annað veðurfall er fyrir utan, fer aftur til knarrarins og bað þá flytjast út úr firðinum.
s-924 Austmenn spotta þá og kváðu seint mundu róa til Noregs.
s-925 Oddur segir: ' Hvað megið til vita nema þér bíðið vor hér?'
s-926 Og er þeir koma út úr firðinum þá er þegar byr hagstæður.
s-927 Leggja þeir eigi segl fyrr en í Orkneyjum.
s-928 Oddur kaupir þar malt og korn, dvelst þar nokkura hríð og býr skip sitt og þegar hann er búinn þá koma austanveður og sigla þeir.
s-929 Gefur þeim allvel og koma á Þorgeirsfjörð og voru kaupmenn þar fyrir.
s-930 Siglir Oddur vestur fyrir landið og kemur á Miðfjörð.
s-931 Hafði hann þá í brott verið sjö vikur.
s-932 Er búist til veislu og skortir eigi góð tilföng og nóg.
s-933 Þar kemur og mikið fjölmenni.
s-934 Þar komu Gellir og Egill og mart annað stórmenni.
s-935 Fer veislan vel fram og skörulega.
s-936 Þóttust menn eigi betra brullaup þegið hafa hér á landi.
s-937 Og er veisluna þraut, þá eru menn út leiddir með stórgjöfum og var þar mest fram lagið er Gellir átti í hlut.
s-938 Þá mælti Gellir við Odd: ' Það vildi eg við Egil væri vel gert því hann er þess maklegur.'
s-939 ' Svo þykir mér,' segir Oddur,' sem faðir minn hafi gert vel við hann áður.'
s-940 ' Bættu þó um,' segir Gellir.
s-941 Ríður Gellir í brott og hans fólk.
s-942 Egill ríður í brott og leiðir Oddur hann á götu og þakkar honum liðveislu' og mun eg eigi svo vel gera til þín sem vera ætti en reka lét eg í gær suður til Borgar sex tigu geldinga og yxn tvö.
s-943 Mun það heima þín bíða og skal aldrei forverkum við þig gera meðan við lifum báðir.'
s-944 skiljast þeir og líkar Egli stórvel og binda sitt vinfengi.
s-945 Fer Egill heim til Borgar.
s-946 12. Þetta haust hið sama safnar Hermundur liði og fer út til Hvammsleiðar og ætlar til Borgar brenna Egil inni.
s-947 Og er þeir koma út með Valfelli þá heyra þeir sem strengur gjalli upp í fellið og því næst kennir Hermundur sér sóttar og stinga undir höndina og verða þeir víkja aftur ferðinni og elnar honum sóttin.
s-948 Og er þeir koma fyrir Þorgautsstaði þá verður hefja hann af baki.
s-949 Er þá farið eftir presti í Síðumúla og er hann kemur þá mátti Hermundur ekki mæla og var prestur þar hjá honum.
s-950 Og einn tíma er prestur lýtur honum þá lætur í vörunum: ' Tvö hundruð í gili, tvö hundruð í gili.'
s-951 Og síðan andast hann og lauk svo hans ævi sem hér er sagt.
s-952 Oddur situr í búi sínu með mikilli rausn og unir vel konu sinni.
s-953 Alla þessa stund spyrst ekki til Óspaks.
s-954 maður fékk Svölu er Már hét og var Hildisson og réðst til bús á Svölustaði.
s-955 Bjálfi hét bróðir hans, hálfafglapi og rammur afli.
s-956 Bergþór hét maður er bjó í Böðvarshólum.
s-957 Hann hafði reift málið þá er Óspakur var sekur ger.
s-958 Svo bar til eitt kveld í Böðvarshólum þá er menn sátu við elda þar kom maður og drap á dyr og bað bónda út ganga.
s-959 Bóndi verður þess var Óspakur er þar kominn og sagðist eigi mundu út ganga.
s-960 Óspakur eggjar hann mjög út ganga en hann fer eigi því heldur út og bannar öllum mönnum út ganga og skilur svo með þeim.
s-961 En um morguninn er konur koma í fjós þá eru þar særðar níu kýr til bana.
s-962 Þetta fréttist víða.
s-963 Og enn er fram líða stundir ber svo til maður gengur inn á Svölustöðum og í hús það er Már hvílir í.
s-964 Það var snemma um morgun.
s-965 maður gengur sænginni og leggur með saxi svo þegar gekk á hol.
s-966 Þetta var Óspakur.
s-967 Hann kvað vísu:
s-968 Og í því er hann snýr til dyranna hleypur hann upp Bjálfi og rekur á honum tálguhníf.
s-969 Óspakur gengur til þess bæjar er heitir á Borgarhóli og lýsir þar víginu, fer síðan á brott og spyrst ekki til hans um hríð.
s-970 Víg Márs fréttist víða og mæltist illa fyrir.
s-971 Það bar til nýlundu stóðhross hin bestu er Oddur átti, fimm saman, fundust dauð öll og ætluðu menn Óspaki það verk.
s-972 er það langa hríð ekki spyrst til Óspaks.
s-973 Og um haustið menn gengu geldingum fundu þeir helli í hömrum nokkurum og þar mann dauðan og stóð hjá honum munnlaug full af blóði og var það svo svart sem tjara.
s-974 Þar var Óspakur og hugðu menn sárið mundi hafa grandað honum, það er Bjálfi veitti honum, enda farið síðan af bjargleysi og lauk svo hans ævi.
s-975 Ekki er þess getið eftirmál yrðu um víg Márs um víg Óspaks.
s-976 Oddur býr á Mel til elli og þótti hinn mesti ágætismaður.
s-977 Eru Miðfirðingar frá honum komnir, Snorri Kálfsson og mart annað stórmenni.
s-978 Jafnan síðan hélst vinátta þeirra feðga með góðri frændsemi.
s-979 Og lýkur þar þessari sögu.
s-980 1 Á einum tíma var einn ríkur maður.
s-981 Hann hafði mikið góss og mikið kvikfé.
s-982 Svo segir þar skammt í frá bjó ein fátæk ekkja er eigi átti meira sér til viðurlífis en eina og heldur vel holda.
s-983 Þessi ríki maður þessi kýr var bæði fögur og feit og mjög sýnileg til hans augna.
s-984 Og þegar upp á staðinn biður hann sinn mann leiða hana honum og slá hana af og matgjöra hana til sinnar máltíðar.
s-985 Hans menn gjörðu sem hann bauð.
s-986 Og segir þegar bóndinn var til borðs genginn var fram borið fyrir hann þetta sama slátur á borðið. Og þegar þessi ríki maður skar af einn bita og lét í sinn munn og vildi hafa etið og svo skjótt sem hann kom í hans munn og hans háls stóð hann fastur og gekk hvorki upp niður.
s-987 Þar af hann.
s-988 Og fjandinn var til reiðu og dró sál hans til helvítis.
s-989 Hér eftir segir prophetinn: ' Þér skuluð eigi reyfa og stela peningum hins fátæka því þeir skulu til helvítis fara og vera þar til enda nema þeir yfir bæti áður en þeir deyja' segir prophetinn.
s-990 Hér megi þér sjá hver voði það er ræna annars manns góssi.
s-991 2 Það var einn kvinna er fastaði við brauð og vatn fyrir Marju messu Magdalena hver er henni vitraðist í svefni svo segjandi til hennar hún skyldi engan pardun taka fyrir sína föstu fyrr en hún væri leyst af þeim syndum og skriftuð af þeim er hún hafði lengi í legið' því þín fasta líkar hvorki Guði mér svo lengi sem þú geymir þær hjá þér'.
s-992 Síðan fór hún og skriftaðist og svo hjálpaðist hún.
s-993 3 Svo segist af einni kvinnu er gekk til krossins og vildi minnast við fætur á krossinum.
s-994 En líkneskið dró frá henni fæturna og bað hana ganga frá sér' því þú ert ekki verðug kyssa mína fætur fyrir syndir er þú hefir gert í þínu hjarta svo lengi og skammaðist upp bera og þú hefir löngu gert'.
s-995 Kvinnan svarar grátandi svo segjandi: ' Hjálp þú mér vor herra.'
s-996 Líkneskjan svarar henni og bað hana skriftast sem skjótast' og svo skaltu hólpin vera' et cetera.
s-997 4 3 Svo segist af íkornanum hann rennur eftir einum manni.
s-998 Maðurinn flýði fast undan fyrir hræðslu sakir og fann eitt tré á hverju er voru mörg epli en undir trénu var djúpur pyttur fullur af ormum og pöddum og öðrum skriðkvikindum og af þessu sama tré nöguðu rótina ii ormar, annar hvítur, en annar svartur.
s-999 Maðurinn hljóp upp í tréð og fæddist á eplunum, og hafði mikið eftirlæti af kvistunum, en gaf engan gaum ormunum, þeim er nöguðu rótina trésins, svo það féll um síðir, en þessi maður féll ofan í pyttinn.
s-1000 Hér af íkornanum undir standa hver eplin eru, lystileg og ýmisleg, hver eru ríkidæmi, matur, og drykkur, konur fagrar, fögur orð, og óhóflegt dramb, en ormarnir ii eru dagur og nótt.
s-1001 5 4 Af einum dómanda er það sagt, er lög sagði yfir öðrum mönnum, hann gaf jafnan harða dóma og vægðar lausa, og misjafnt rétta.
s-1002 Góðir menn báðu hann gjöra líkn inum fátæka, og hann skyldi hafa miskunn á þeim, og hafa ei meir en honum bæri, og þeir mætti lifa í friði fyrir honum, en hann sagðist ekki gjöra framar en lög, en mörg lög eru þau, er miskunn verður fylgja.
s-1003 Litlu hér eftir féll þessi maður í stranga sótt.

Text viewDownload CoNNL-U