Dependency Tree

Universal Dependencies - Icelandic - IcePaHC

LanguageIcelandic
ProjectIcePaHC
Corpus Partdev
AnnotationArnardóttir, Þórunn; Hafsteinsson, Hinrik; Sigurðsson, Einar Freyr; Jónsdóttir, Hildur; Bjarnadóttir, Kristín; Ingason, Anton Karl; Rúnarsson, Kristján; Steingrímsson, Steinþór; Wallenberg, Joel C.; Rögnvaldsson, Eiríkur

Select a sentence

Showing 504 - 603 of 4865 • previousnext

s-504 Hann var í svartri ermakápu og var hún komin sliti.
s-505 Ein var ermur á kápunni og horfði á bak aftur.
s-506 Hann hafði í hendi staf og brodd í, hafði síða hettuna og rak undan skyggnur, stappaði niður stafnum og fór heldur bjúgur.
s-507 Þar var kominn Ófeigur karl, faðir hans.
s-508 Þá mælti Ófeigur: ' Snemma gangið þér frá dómum,' segir hann,' og er yður eigi einn hlutur vel gefinn svo er allt snarlegt og snöfurlegt um yður.
s-509 Eða er hann sekur, Óspakur?'
s-510 ' Nei,' segir Oddur,' eigi er hann sekur.'
s-511 Ófeigur mælti: ' Eigi er það höfðinglegt ginna mig gamlan.
s-512 Eða hví mundi hann eigi sekur?
s-513 Var hann eigi sannur sökinni?'
s-514 ' Sannur víst,' segir Oddur.
s-515 ' Hvað er þá?' segir Ófeigur.
s-516 ' Eg hugði hann mætti bíta sökin.
s-517 Eða var hann eigi banamaður Vala?'
s-518 ' Engin mælir því í mót,' segir Oddur.
s-519 Ófeigur mælti: ' Hví er hann þá ei sekur?'
s-520 Oddur segir: ' Vörn fannst í málinu og féll niður.'
s-521 Ófeigur mælti: ' Hví mundi vörn finnast í máli svo auðigs manns?'
s-522 ' Það kölluðu þeir rangt væri heiman búið,' segir Oddur.
s-523 ' Eigi mun það vera er þú fórst með málið,' segir Ófeigur.
s-524 ' En vera kann þér meir lagður fésnúður og ferðir en algott tilstilli um málaferli.
s-525 En þó ætla eg þú berir eigi satt upp fyrir mig.'
s-526 Oddur segir: ' Eg hirði aldrei hvort þú trúir eða eigi.'
s-527 ' Svo kann vera,' segir Ófeigur,' en þegar vissi eg er þú fórst heiman úr héraði rangt var til búið málið.
s-528 En þú þóttist þér ærinn einn og vildir engan mann spyrja.
s-529 muntu og vera þér nógur einn um þetta mál.
s-530 Er bæði þér mun vel takast enda er slíkum allvant um er allt þykir lágt hjá sér.'
s-531 Ófeigur mælti: ' ein er hjálpin í þínu máli ef þú nýtur mín við.
s-532 Eða hversu féspar mundir þú vera ef nokkur leiðrétti málið?'
s-533 Oddur segir: ' Ekki sperði eg ef nokkur vildi ganga í málið.
s-534 ' Ófeigur mælti: ' Þá láttu koma í hendur karli þessum sjóð nokkurn digran því margra manna augu verða féskjálg.'
s-535 Oddur fær honum mikinn fésjóð.
s-536 Þá spurði Ófeigur: ' Hvort var fram færð lögvörnin eða eigi?'
s-537 ' Fyrr gengum vér frá dómunum,' segir Oddur.
s-538 Ófeigur segir: ' Það eina heldur fram er þú gerðir óvitandi.'
s-539 skiljast þeir og gengur Oddur heim til búðar sinnar.
s-540 6. er þar til taka Ófeigur karl gengur upp á völluna og til dómanna, kemur Norðlendingadómi og spyr hvað þar fari fram málum manna.
s-541 Honum er sagt sum voru dæmd en sum búin til reifingar.
s-542 ' Hvað líður um mál Odds sonar míns eða er því lokið ?'
s-543 ' Lokið sem mun,' segja þeir.
s-544 Ófeigur mælti: ' Er hann sekur orðinn, Óspakur?'
s-545 ' Nei,' segja þeir,' eigi er hann það.'
s-546 ' Hvað veldur því?' segir Ófeigur.
s-547 ' Vörn fannst í málinu,' segja þeir,' og var rangt til búið.'
s-548 ' ,' segir hann Ófeigur,' munuð þér lofa mér ganga í dóminn?'
s-549 Þeir játta því.
s-550 Hann gengur í dómhringinn og sest niður.
s-551 Ófeigur mælti: ' Hvort er dæmt mál Odds, sonar míns?'
s-552 ' Dæmt er það sem mun.' segja þeir.
s-553 ' Hví gegnir það?' segir Ófeigur,' er villt upp borið um sökina á hendur Óspaki?
s-554 Drap hann eigi Vala saklausan?
s-555 Nam það við eigi væri málið brýnt?'
s-556 Þeir segja: ' Vörn fannst í málinu og féll niður.'
s-557 ' Hvernig er vörn ?' segir Ófeigur.
s-558 Þá er honum sagt.
s-559 ' Svo víst,' segir hann.
s-560 ' Sýnist yður það með nokkurum réttindum gefa gaum slíku er engis er vert en dæma eigi hinn versta mann sekjan, þjóf og manndrápsmann?
s-561 Er það eigi ábyrgðarhlutur mikill dæma þann sýknan er dráps er verður og dæma svo í móti réttindum?'
s-562 Þeir sögðu þeim þætti það eigi réttlegt en þó sögðu þeir það fyrir sig lagt.
s-563 ' Svo vera,' segir Ófeigur.
s-564 ' Unnuð þér eiðinn?' segir Ófeigur.
s-565 ' vísu,' segja þeir.
s-566 ' Svo mun verið hafa,' segir hann.
s-567 ' Eða hversu kváðuð þér orði?
s-568 Eigi svona þér skylduð það dæma þér vissuð sannast og réttast og helst lögum?
s-569 Svo munduð þér mæla.'
s-570 Þeir kváðu svo vera.
s-571 Þá mælti Ófeigur: ' En hvað er sannara en dæma hinn versta mann sekjan og dræpan og firrðan allri björg, þann er sannreyndur er stuld og því hann drap saklausan mann, Vala?
s-572 En það hið þriðja er fellur eiðurinn kalla nokkuð sveigt.
s-573 Hyggið fyrir yður hvort meira er vert, þessi tvö orðin er sæta sannindum og réttindum eða hitt eitt er víkur til laganna.
s-574 Svo mun yður sýnast sem er því þér munuð sjá kunna það er meiri ábyrgð dæma þann frjálsan er maklegur er dauðans en hafa áður svarið eiða þér skylduð svo dæma sem þér vissuð réttast.
s-575 megi svo á líta þetta mun yður þungt falla og undan þessi ábyrgð varla komast.'
s-576 Ófeigur lætur stundum síga sjóðinn niður undan kápunni en stundum kippir hann upp.
s-577 Það finnur hann þeir renna augum til sjóðsins.
s-578 Hann mælti þá til þeirra: ' Það væri ráðlegra dæma rétt og satt sem þér hafið svarið og hafa þar í mót þökk og aufúsu hygginna manna og réttsýnna.'
s-579 Hann tók síðan sjóðinn og steypti úr silfrinu og taldi fyrir þeim.
s-580 ' vil eg lýsa vináttubragð við yður,' segir hann,' og eg þó meir fyrir yður í þessu en fyrir mér.
s-581 Og geri eg því svo þér eruð sumir vinir mínir en sumir frændur og þó þeir einir nauðsyn heldur til hver gæti sjálfs síns.
s-582 Vil eg gefa hverjum manni eyri silfurs er í dómi situr en þeim hálfa mörk er reifir málið og hafið þér það bæði féið og firrða yður ábyrgð en spillið eigi særum yðrum er þó liggur mest við.'
s-583 Þeir hugsa málið og líst sannlegt vera við umtölur hans en þykir áður komið í illt efni um eiðabrigðin og kjósa þeir þann kost af er Ófeigur bauð þeim.
s-584 Er þá þegar sent eftir Oddi og kemur hann þar en höfðingjarnir eru þá heim gengnir til búða.
s-585 er þegar fram haft málið og er Óspakur sekur ger og síðan nefndir vottar dómsorði væri á lokið.
s-586 fara menn heim til búða sinna við svo búið.
s-587 Engi frétt fór af þessu um nóttina.
s-588 En Lögbergi um morguninn stendur Oddur upp og talar hátt: ' Hér varð maður sekur í nótt er Óspakur heitir í Norðlendingadómi um víg Vala.
s-589 En það er segja til sektarmarka hans hann er mikill vexti og karlmannlegur.
s-590 Hann hefir brúnt hár og stór bein í andliti, svartar brýnn, miklar hendur, digra leggi og allur hans vöxtur er afburðarmikill og er maður hinn glæpamannlegasti.'
s-591 bragður mönnum í brún mjög.
s-592 Margir höfðu áður enga frétt af haft.
s-593 Þykir mönnum Oddur fast fylgt hafa og giftusamlega til hafa tekist svo sem komið var málinu.
s-594 7. Frá því er sagt þeir Styrmir og Þórarinn talast við.
s-595 Styrmir mælti: ' Mikla sneypu og svívirðing höfum við af þessu máli fengið.'
s-596 Þórarinn segir það eftir líkindum' og munu hér vitrir menn hafa um vélt.'
s-597 ' ,' segir Styrmir,' sérð þú nokkuð til leiðréttu?'
s-598 ' Eigi veit eg það megi brátt verða,' segir Þórarinn.
s-599 ' Hvað helst?' segir Styrmir.
s-600 Þórarinn segir: ' Væri sökin við þá er var borið í dóm og mun bíta.'
s-601 ' það er,' segir Styrmir.
s-602 Ganga þeir þá í brott og heim til búða.
s-603 Þeir heimta saman vini sína og tengdamenn á eina málstefnu.

Text viewDownload CoNNL-U