s-404
| Undarlegt þótti þetta vera því að Oddur þótti féauðnumaður meiri en aðrir menn. |
s-405
| Svo mikill atrekandi var ger um leitina að bæði var leitað til annarra héraða og heima og gerði eigi. |
s-406
| Og um síðir dofnar enn yfir þessu og var þó margrætt um hverju gegna mundi. |
s-407
| Oddur var ekki glaður um veturinn. |
s-408
| Vali frændi hans frétti hann hví hann væri óglaður' eða hvort þykir þér svo mikið geldingahvarfið? |
s-409
| og ertu eigi þá mikill borði ef þig hryggir slíkt.' |
s-410
| Oddur segir: ' Eigi hryggir mig geldingahvarfið en hitt þykir mér verra er eg veit eigi hver stolið hefir.' |
s-411
| ' Þykir þér það víst,' segir Vali,' að það mun af orðið eða hvar horfir þú helst á?' |
s-412
| Oddur segir: ' Ekki er því að leyna að eg ætla Óspak stolið hafa.' |
s-413
| Vali segir: ' ferst nú vinátta ykkur frá því er þú settir hann yfir allt þitt góss. |
s-414
| Oddur kvað það verið hafa hið mesta glapræði og vonum betur tekist hafa. |
s-415
| Vali mælti: ' margra manna mál var það að það væri undarlegt. |
s-416
| Nú vil eg að þú snúir eigi svo skjótt málinu til áfellis honum. |
s-417
| Er það hætt við orði að ómerkilega þyki verða. |
s-418
| Nú skulum við því saman kaupa,' segir Vali,' að þú skalt mig láta fyrir ráða hversu að er farið en eg skal verða vís hins sanna.' |
s-419
| Nú kaupa þeir þessu. |
s-420
| Vali býr nú ferð sína og fer með varning sinn, ríður út til Vatnsdals og Langadals og selur varninginn. |
s-421
| Var hann vinsæll og tillagagóður. |
s-422
| Hann fer nú leið sína þar til er hann kemur á Svölustaði og fékk þar góðar viðtökur. |
s-423
| Óspakur var allkátur. |
s-424
| Vali bjóst þaðan um morguninn. |
s-425
| Óspakur leiddi hann úr garði og frétti margs frá Oddi. |
s-426
| Vali sagði gott af hans ráði. |
s-427
| Óspakur lét vel yfir honum og kvað hann vera rausnarmann mikinn' eða er hann fyrir sköðum orðinn í haust?' |
s-428
| Vali kvað það satt vera. |
s-429
| ' Hverjar eru getur á um sauðahvarfið? |
s-430
| Hefir Oddur lengi fégefinn verið hér til.' |
s-431
| Vali segir: ' Eigi er það á eina leið. |
s-432
| Sumir ætla að vera muni af mannavöldum.' |
s-433
| Óspakur segir: ' Óætlanda er slíkt og er eigi margra brögð.' |
s-434
| ' Svo er og,' segir Vali. |
s-435
| Óspakur mælti: ' Hefir Oddur nokkurar getur á?' |
s-436
| Vali mælti: ' Fátalaður er hann til en þó er fjölrætt um af öðrum mönnum hverju gegna muni.' |
s-437
| ' það er eftir vonum,' segir Óspakur. |
s-438
| ' Á þá leið er,' segir Vali,' er þó höfum við þetta talað, að það vilja sumir kalla eigi óvænt að vera muni af þínum völdum. |
s-439
| Draga menn það saman er þið skilduð stuttlega en hvarfið varð eigi miklu síðar.' |
s-440
| Óspakur segir: ' Eigi varði mig að þú mundir slíkt mæla og ef við værum eigi slíkir vinir þá mundi eg þessa sárlega hefna.' |
s-441
| Vali segir: ' Eigi þarftu þessa að dylja eða svo óður við að verða. |
s-442
| Eigi mun þetta af þér bera og hefi eg séð yfir ráð þitt og sé eg það að miklu hefir þú meiri föng en líklegt sé að vel muni fengið.' |
s-443
| Óspakur segir: ' Eigi mun svo reynast og eigi veit eg hvað tala fjandmenn vorir er slíkt tala vinirnir.' |
s-444
| Vali segir: ' Þetta er og ekki af fjandskap mælt af mér við þig er þú heyrir einn á. |
s-445
| Nú ef þú gerir svo sem eg vil og gangir við fyrir mér þá mun þér létt falla því að eg skal setja ráð til þess. |
s-446
| Eg hefi seldan varning minn víða um sveitir. |
s-447
| Mun eg segja að þú hafir við tekið og keypt þér með slátur og aðra hluti. |
s-448
| Mun það engi maður mistrúa. |
s-449
| Skal eg svo til haga að þér verði engi ósæmd að þessu ef þú fylgir mínu ráði að.' |
s-450
| Óspakur sagðist eigi mundu við ganga. |
s-451
| ' Þá mun fara verr,' segir Vali,' og veldur þú sjálfur.' |
s-452
| Síðan skiljast þeir og fer Vali heim. |
s-453
| Oddur spyr hvers hann hefði vís orðið um sauðahvarfið. |
s-454
| Vali lét sér fátt um finnast. |
s-455
| Oddur mælti: ' Nú þarf eigi við að dyljast að Óspakur hefir stolið því að þú mundir hann gjarna undan bera ef þú mættir.' |
s-456
| Er nú kyrrt um veturinn. |
s-457
| Og er voraði og stefnudagar komu þá fer Oddur með tuttugu menn þar til er hann kom mjög að garði á Svölustöðum. |
s-458
| Þá mælti Vali við Odd: ' Nú skuluð þér láta taka niður hesta yðra en eg mun ríða til húss og hitta Óspak og vita að hann vilji sættast og þurfi málið eigi fram að hafa.' |
s-459
| Nú gera þeir svo. |
s-460
| Vali ríður heim. |
s-461
| Ekki var manna úti. |
s-462
| Opnar voru dyr. |
s-463
| Gengur Vali inn. |
s-464
| Myrkt var í húsum. |
s-465
| Og er minnst varir hleypur maður úr setinu og höggur milli herða Vala svo að hann féll þegar. |
s-466
| Vali mælti: ' Forða þér vesall maður því að Oddur er skammt frá garði og ætlar að drepa þig. |
s-467
| Send konu þína á fund Odds og segi hún að við séum sáttir og hafir þú gengið við málinu en eg sé farinn að fjárreiðum mínum út í dali.' |
s-468
| Þá mælti Óspakur: ' Þetta er hið versta verk orðið. |
s-469
| Hafði eg Oddi þetta ætlað en eigi þér.' |
s-470
| Svala hittir nú Odd og segir þá sátta Óspak og Vala' og bað Vali þig aftur hverfa.' |
s-471
| Oddur trúir þessu og ríður heim. |
s-472
| Vali lét líf sitt og var flutt lík hans á Mel. |
s-473
| Oddi þóttu þetta mikil tíðindi og ill. |
s-474
| Fær hann af þessu óvirðing og þótti slyslega tekist hafa. |
s-475
| Nú hverfur Óspakur á brott svo að eigi vita menn hvað af honum verður. |
s-476
| 5. Nú er frá því að segja að Oddur býr mál þetta til þings og kveður heiman búa. |
s-477
| Það verður til tíðinda að maður andast úr kvöðinni. |
s-478
| Oddur kveður annan í staðinn. |
s-479
| Fara menn nú til þings og er þar kyrrt framan til dóma. |
s-480
| Og er dómar fara út hefir Oddur fram vígsmálið og tekst honum það greitt og er nú boðið til varna. |
s-481
| Skammt í brott frá dómunum sátu þeir höfðingjarnir, Styrmir og Þórarinn, með flokk sinn. |
s-482
| Þá mælti Styrmir við Þórarin: ' Nú er til varna boðið um vígsmálið. |
s-483
| Eða viltu nokkur andsvör veita þessu máli?' |
s-484
| Þórarinn segir: ' Engu mun eg mér þar af skipta því mér sýnist Odd nóg nauðsyn til reka að mæla eftir slíkan mann sem Vali var en sá fyrir hafður að eg ætla að sé hinn versti maður.' |
s-485
| ' Já,' segir Styrmir,' eigi er maðurinn góður víst en þó er þér nokkur vandi á við hann.' |
s-486
| ' Ekki hirði eg það,' segir Þórarinn. |
s-487
| Styrmir mælti: ' Á hitt er að líta að yðvart vandræði mun verða og þá miklu meira og torveldara ef hann verður sekur og sýnist mér ásjámál vera og leitum í nokkurra ráða því að sjáum við báðir vörn í málinu.' |
s-488
| ' Fyrir löngu sá eg það,' segir Þórarinn,' og líst mér þó eigi ráðlegt að seinka málið.' |
s-489
| Styrmir mælti.' Til þín kemur þó mest og það munu menn tala að þér verði lítilmannlega ef fram fer málið en vörnin sé brýn. |
s-490
| Er það og mála sannast að vel væri þótt Oddur vissi að fleiri eru nokkurs verðir en hann einn. |
s-491
| Treður hann oss alla undir fótum og þingmenn vora svo að hans eins er getið. |
s-492
| Sakar eigi að hann reyni hversu lögkænn hann er.' |
s-493
| Þórarinn segir: ' Þú skalt ráða og þér mun eg að veita. |
s-494
| En eigi er þetta góðvænlegt og mun illan enda eiga.' |
s-495
| ' Ekki má að því fara,' segir Styrmir, sprettur upp og gengur að dómnum, spyr hvað þar fari fram málum manna. |
s-496
| Honum er það sagt. |
s-497
| Styrmir mælti: ' Svo er háttað Oddur að varnir eru fundnar í máli þínu og hefir þú rangt til búið málið, kvatt heiman tíu búa. |
s-498
| Er það lögleysa. |
s-499
| Áttir þú það á þingi að gera en eigi í héraði. |
s-500
| Ger nú annaðhvort, gakk frá dóminum við svo búið eða vér munum færa fram vörnina.' |
s-501
| Oddur þagnar og hugsar málið, finnur að satt er, gengur frá dóminum með flokk sinn og heim til búðar. |
s-502
| Og er hann kemur í búðarsundið þá gengur maður í mót honum. |
s-503
| Sá er við aldur. |