Dependency Tree

Universal Dependencies - Icelandic - IcePaHC

LanguageIcelandic
ProjectIcePaHC
Corpus Partdev
AnnotationArnardóttir, Þórunn; Hafsteinsson, Hinrik; Sigurðsson, Einar Freyr; Jónsdóttir, Hildur; Bjarnadóttir, Kristín; Ingason, Anton Karl; Rúnarsson, Kristján; Steingrímsson, Steinþór; Wallenberg, Joel C.; Rögnvaldsson, Eiríkur

Select a sentence

Showing 304 - 403 of 4865 • previousnext

s-304 Einn hlut þykir mönnum skorta, eigi ráð hans með allri sæmd, hann er maður goðorðslaus.
s-305 Var það þá mikill siður taka upp goðorð eða kaupa og gerði hann svo.
s-306 Söfnuðust honum skjótt þingmenn.
s-307 Voru allir til hans fúsir.
s-308 Og er kyrrt um hríð.
s-309 3. Oddi hugnar vel við Óspak, lét hann mjög ráða fyrir búinu.
s-310 Hann var bæði hraðvirkur og mikilvirkur og þarfur búinu.
s-311 Líður af veturinn og hugnar Oddi betur við Óspak en fyrr því hefst hann fleira.
s-312 Á haustum heimtir hann af fjalli og urðu góðar heimtur, missti engis sauðar.
s-313 Líður af veturinn og vorar.
s-314 Lýsir Oddur því hann ætlar utan um sumarið og segir Vali frændi hans skal taka þar við búi.
s-315 Vali segir: ' Svo er háttað frændi eg er ekki því vanur og vil eg heldur annast um okkar og kaupeyri.'
s-316 Oddur snýr Óspaki og biður hann taka við búi.
s-317 Óspakur segir: ' Það er mér ofráð þó flytjist fram er þú ert við.'
s-318 Oddur leitar eftir en Óspakur fer undan og er þó óðfúsi til.
s-319 Og þar kemur hann biður Odd ráða ef hann heitir honum sinni ásjá og trausti.
s-320 Oddur segir hann skal svo fara með hans eign sem hann verður mestur maður af og vinsælastur, sagðist það reynt hafa eigi mun annar maður betur kunna vilja hans varðveita.
s-321 Óspakur biður á hans valdi vera.
s-322 Lúka svo talinu.
s-323 Oddur býr skip sitt og lætur bera vöru til.
s-324 Þetta fréttist og er margtalað um.
s-325 Oddur þurfti eigi langan búnað.
s-326 Vali fer með honum.
s-327 Og þá er hann er albúinn leiða menn hann til skips.
s-328 Óspakur leiddi hann í lengra lagi.
s-329 Áttu þeir mart tala.
s-330 Og er skammt var til skips þá mælti Oddur: ' er einn hlutur er óskilað er.'
s-331 ' Hvað er það?' segir Óspakur.
s-332 ' Ekki er séð fyrir goðorði mínu,' segir Oddur,' og vil eg þú takir við.'
s-333 ' Á þessu er engi gerning,' segir Óspakur,' er eg ekki til þess fær.
s-334 Hefi eg þó meira á hendur tekist en líklegt eg valdi eða vel leysi.
s-335 Er þar engi maður jafnvel til fallinn sem faðir þinn.
s-336 Er hann hinn mesti málamaður og forvitri.'
s-337 Oddur kveðst eigi mundu honum í hendur ' og vil eg þú takir við.'
s-338 Óspakur fer undan og vildi þó feginn.
s-339 Oddur segir á reiði sína ef hann tekur eigi við og skilnaði þeirra tekur Óspakur við goðorðinu.
s-340 Fer Oddur utan og tekst vel hans ferð sem vandi hans var til.
s-341 Óspakur fer heim og var margtalað um þetta mál.
s-342 Þykir Oddur mikið vald hafa þessum manni í hendur fengið.
s-343 Óspakur ríður til þings um sumarið með flokk manna og tekst honum það vel og liðmannlega, kann það allt vel af höndum leysa er hann skylda lög til, ríður af þingi með sæmd.
s-344 Hann heldur kappsamlega sína menn og láta hvergi sinn hlut og er ekki mjög á þá gengið.
s-345 Hann er góður og greiður við alla sína nágranna.
s-346 Hvergi þykir minni rausn risna á búinu en áður.
s-347 Eigi skortir umsýslu og fara ráðin vel fram.
s-348 Líður af sumarið.
s-349 Ríður hann til leiðar og helgar hana.
s-350 Og er á leið haustið fer hann á fjall er menn ganga geldfé og verða heimtur góðar.
s-351 Er ríkt fylgt og missir engis sauðar, hvorki fyrir sína hönd Odds.
s-352 4. Svo bar til um haustið Óspakur kom norður í Víðidal, á Svölustaði.
s-353 Þar bjó kona er Svala hét.
s-354 Þar var honum veittur beinleiki.
s-355 Hún var væn kona og ung.
s-356 Hún talar tíl Óspaks og biður hann sjá um ráð sitt' hefi eg það frétt þú ert búmaður mikill.'
s-357 Hann tók því vel og tala þau mart.
s-358 Féllst hvort öðru vel í geð og lítast þau vel til og blíðlega.
s-359 Og þar kemur tali þeirra hann spyr hver ráða eigi fyrir kosti hennar.
s-360 ' Engi maður er mér skyldri,' segir hún,' er nokkurs er verður, en Þórarinn Langdælagoði hinn spaki.'
s-361 Síðan ríður Óspakur til fundar við Þórarin og er þar tekið við honum vel eins.
s-362 Hann hefir uppi sitt erindi og biður Svölu.
s-363 Þórarinn segir: ' Ekki kann eg girnast til þíns mægis.
s-364 Er margtalað um þínar meðferðir.
s-365 Kann eg það sjá ekki í tveim höndum hafa við slíka menn, verður annaðhvort taka upp hennar og láta hana fara hingað, ella munuð þið gera sem ykkur líkar.
s-366 mun eg mér engu af skipta og kalla eg ekki þetta mitt ráð.'
s-367 Eftir þetta fer Óspakur á brott og kemur á Svölustaði og segir henni svo búið.
s-368 gera þau ráð sitt og fastnar hún sig sjálf og fer hún með honum á Mel en þau eiga á Svölustöðum og menn til fyrir vera.
s-369 er Óspakur á Mel og hélt rausn í búinu.
s-370 Hann þótti þó vera ódældarmaður mikill.
s-371 líður af veturinn og um sumarið kom Oddur út í Hrútafirði.
s-372 Hafði honum enn orðið gott til fjár og mannheilla, kemur heim á Mel og lítur yfir eignir sínar, þykir vel varðveist hafa og gest vel .
s-373 Líður á sumarið.
s-374 Það er eitt sinn Oddur vekur til við Óspak vel muni fallið hann tæki við goðorði sínu.
s-375 Óspakur segir: ' ,' segir hann,' þar er hlutur er eg var ófúsastur til með fara og síst til fær.
s-376 Er eg þess og albúinn en það ætla eg mönnum þó tíðast það gert annaðhvort á leiðum eða þingum.'
s-377 Oddur segir: ' Það vel vera.'
s-378 Líður sumarið leiðinni fram.
s-379 Og leiðarmorguninn er Oddur vaknar litast hann um og sér fátt manna í skálanum.
s-380 Hefur hann sofið fast og lengi, spratt upp og veit menn eru gersamlega úr skálanum.
s-381 Honum þótti þetta undarlegt og talar þó fátt.
s-382 Hann býst um og nokkurir menn með honum, þótti þetta undarlegt og ríða til leiðarinnar.
s-383 Og er þeir komu þar þá var þar mart manna fyrir og voru þá mjög brott búnir og var helguð leiðin.
s-384 Oddi bregður í brún, þykir undarleg þessi tiltekja.
s-385 Fara menn heim og líða þaðan nokkurir dagar.
s-386 Það var enn einn dag er Oddur sat undir borði og Óspakur gegnt honum og er minnst varir hleypur Oddur undan borðinu og Óspaki og hefir reidda exi í hendi sér, biður hann laust láta goðorðið.
s-387 Óspakur segir: ' Eigi muntu þurfa með svo miklu kappi sækja.
s-388 þegar hefir þú goðorð er þú vilt og vissi eg eigi er þér væri alvara við taka.'
s-389 Rétti hann þá fram höndina og fékk Oddi goðorðið.
s-390 Var kyrrt um hríð og héðan gerist fátt með þeim Oddi og Óspaki.
s-391 Er Óspakur heldur ýgur viðskiptis.
s-392 Grunar menn um Óspakur mundi hafa ætlað sér hafa goðorðið en eigi Oddi ef eigi hefði verið kúgað af honum hann mætti eigi undan komast.
s-393 verður ekki af búsumsýslunni.
s-394 Oddur kveður hann engu.
s-395 Mæltust þeir og ekki við.
s-396 Það var einn dag Óspakur býr ferð sína.
s-397 Oddur lætur sem hann viti það eigi.
s-398 Skiljast þeir svo hvorgi kveður annan.
s-399 Óspakur fer á Svölustaði til bús síns.
s-400 Oddur lætur sem ekki orðið og er kyrrt um hríð.
s-401 Þess er getið um haustið fara menn á fjall og skaut mjög í tvö horn um heimtur Odds frá því er verið hafði.
s-402 Hann skorti haustheimtu fjóra tigu geldinga og þá alla er bestir voru af hans.
s-403 Er víða leitað um fjöll og heiðar og finnast eigi.

Text viewDownload CoNNL-U