s-303
| Þegar upplýsingar sem þessar liggja fyrir er ljóst að rannsaka þarf málaflokkinn hér á landi. |
s-304
| Þetta er nýskeð og svo sem ekkert sem við vitum um orsök þessa slyss. |
s-305
| Þetta er þannig tilkomið að við viljum gera eitthvað meira varðandi jafnrétti í skólanum. |
s-306
| Hugo Chavez sat á forsetastóli í fjórtán ár frá 1999 til dauða síns árið 2013. |
s-307
| Við erum bara öðruvísi en karlar að mörgu leiti og það er allt í lagi. |
s-308
| Það stendur mikið til hjá Volkswagen því fyrirtækið fagnar innan skamms 40 ára afmæli sínu. |
s-309
| Vladimir Tufegdzic frá Zemun( Serbíu)( lék með Víkingi júlí–sept. 2015) |
s-310
| Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. |
s-311
| Stofnunin bendir á að spá hennar frá 2016 hafi nokkurn veginn staðist: Brexit-óvissan hafi virkað eins og hemill á hagkerfið og vöxtur orðið minni en ella voru horfur á. |
s-312
| En þegar hann varð hundrað ára og ríkisstjórnir þeirra landa sem mynduðu fylkingu Bandamanna í heimsstyrjöldinni tóku að keppast við að heiðra hann fyrir framlag sitt ákvað hann að leysa frá skjóðunni. |
s-313
| Í frétt á vef ráðuneytisins bendir Ásmundur á að hinar Norðurlandaþjóðirnar og önnur Evrópuríki hafi þegar innleitt tilskipun Evrópusambandsins um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna eða endurspeglað efni hennar í landsrétti sínum. |
s-314
| Róbert Wessman og Árni Harðarson voru í dag sýknaðir af kröfu Björgólfs Thors Björgólfssonar vegna millifærslu fjögurra milljóna evra af reikningi Actavis Group inn á reikning Salt Investmens, félags í eigu Róberts. |
s-315
| Í síðustu tveimur kosningum hafa samtökin kynnt stuðning sinn við frambjóðendur miklu seinna og gefur þetta til kynna að NRA sé nú að reyna að sameina liðsmenn sína bakvið Trump frekar en Clinton. |
s-316
| Á þeim tíma sem Alexis átti að mæta í lyfjapróf þá var hann í Manchester að ljúka skiptum sínum frá Arsenal til Manchester United og gleymdist að koma þeim upplýsingum til enska knattspyrnusambandsins. |
s-317
| Þau tóku hins vegar fram að ágreiningur sem komin var upp varðandi inntak yfirlýsingarinnar breytti engu um kaupin sem slík, enda töldu þau að mætti leysa úr þessum ágreiningi með farsælum hætti. |
s-318
| Lögum var breytt í Þýskalandi árið 2007 og þar var fylgt ráðgjöf frá bönkunum, segir Frey og líkir því við að bóndi fái ráðgjöf frá refnum um hvernig eigi að verja hænsnahúsið. |
s-319
| Stúlkan trúði ákærða fyrir miklum erfiðleikum í sínu einkalífi en ákærði tók stúlkuna undir sinn verndarvæng og aðstoðaði á ýmsan hátt, meðal annars með því að afhenda henni lykil að heimili sínu. |
s-320
| Fyrsta frumsýning á nýju ári verður 23. febrúar og er það um að ræða fjölskyldusýninguna Gallsteinar afa Gissa eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur með nýrri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. |
s-321
| Er þeim séð fyrir nægum mat, enda þurfa þær að borða um 30 kíló af mat á dag hvor, en fæða þeirra samanstendur af loðnu og síld. |
s-322
| Philadelphia náði að stöðva Atlanta Falcons á heimavelli, 24–15, og Green Bay Packers fékk á sig 47 stig gegn Tennessee Titans sem vann öruggan sigur, 47–25. |
s-323
| Skoði að auki hvort Facebook eða aðilar samningsbundnir Facebook hafi beitt sér gegn gagnrýnendum, embættismönnum sem leituðust við að setja reglur um starfsemi miðilsins eða hafi leynt upplýsingum frá almenningi. |
s-324
| Vélin hefur ekki hikstað í þá tvo áratugi síðan það var fyrst kveikt á henni, og gerir það ekki heldur á sinni síðustu plötu, Lies are more flexible. |
s-325
| Í bréfi félaga Hauks, þar sem fjölskyldu hans er vottuð samúð þeirra, segir að þeim þyki miður að geta ekki rætt beint við fjölskylduna vegna samskiptaörðugleika og stríðsins. |
s-326
| Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæ er með tveggja högga forystu í karlaflokki eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu en hann lék á 67 höggum í gæreða fjórum höggum undir pari. |
s-327
| Íslenska krónan er að verða að stærri hindrun en áður í íslenska hagkerfinu, og er þegar farin að magna upp áhættuna í kerfinu, eins og þetta horfir við mér. |
s-328
| Í byrjun desember komst Hæstiréttur Bandaríkjanna að þeirri niðurstöðu að bandarískum stjórnvöldum væri heimilt að hrinda í framkvæmd endurskoðuðu ferðabanni ríkisborgara frá sex ríkjum þar sem múslimar eru í meirihluta. |
s-329
| Þegar maður kemur hingað reglulega, eins og við Gummi höfum gert, þá kynnist maður líka nýja fólkinu og það er bara heilmikill fjöldi, segir Gylfi. |
s-330
| Gary tjáði Vísi í morgun að hann færi ekki í þessum glugga en ef hann væri ekkert að spila í júlí þá yrði hann að skoða sín mál á nýjan leik. |
s-331
| Ég tek þetta létt á æfingunum í örfáa daga. |
s-332
| Hann gerði þetta einungis til þess að bæta ímynd sína. |
s-333
| Það er þó aldrei of seint að prófa eitthvað nýtt. |
s-334
| Hvernig gat þetta eiginlega komið fyrir fjölskyldu mína? |
s-335
| Vinstri grænir mældust með næst mest fylgi eða 21,4 prósent. |
s-336
| Erlangen, Minden og Coburg eru í efstu þremur sætunum. |
s-337
| Auðvelt er að koma í veg fyrir skyrbjúg að sögn Gunton. |
s-338
| Þó eru hlutfallslega fáir auglýsendur sem beina skilaboðum sínum til kvenna. |
s-339
| Viðkomandi væri gert ljóst að framferði hans yrði engan veginn liðið. |
s-340
| Hún var sakfelld fyrir brot sitt í héraði og síðar Landsrétti. |
s-341
| Á móti er farið að blotna í efsta laginu um sunnanvert landið, allavega á láglendi og þá er stóra spurningin hvort blotinn nær að binda snjóinn nægilega til að draga úr eða hindra skafrenning eða hvort vindurinn hafi vinninginn. |
s-342
| Þetta háði Eyglóu augljóslega fyrstu 50 metrana en hún átti mjög góða seinni ferð og þó að Íslandsmetið hafi ekki fallið synti hún nógu hratt til að ná sextánda og síðasta sætinu inn í undanúrslitin sem fara fram í nótt. |
s-343
| Indverska geimskutlan, sem ber nafnið Reusable Launch Vehicle, er um sjö metrar að lengd og vegur um 1,75 tonn en vísindamenn stofnunarinnar vonast til þess að smíða tilraunaskutlur sem verða allt að sex sinnum stærri á næsta áratuginum. |
s-344
| Alls voru 186 brot þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en ekki hafa verið skráð jafn mörg tilvik síðan lögum og verklagi lögreglu vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna var breytt árið 2006. |
s-345
| Þá er þess sérstaklega getið að KFC hafi ekki gripið til neinna aðgerða þrátt fyrir að hafa tekið á móti undirskriftalista með nöfnum 350.000 neytenda sem kröfðust þess að fyrirtækið gæfi út skýra stefnu um útrýmingu sýklalyfjaleifa úr kjúklingabitunum sínum. |
s-346
| Allt var með kyrrum kjörum uns 70 ára gamall, sem beið í röð eftir að fá að smakka ost, sá annan mann vinda sér upp að borðinu þar sem boðið var upp á ostinn og ná sér í bita. |
s-347
| Sjóður á vegum Och-Ziff keypti 6,6 prósenta sent hlut í Arion banka í lokuðu útboði — en greint var frá viðskiptunum daginn áður en lánshæfiseinkunnin var lækkuð, sem var í gær, er fram kemur á vef Kjarnans. |
s-348
| Eins eftir páskana og stórar helgar á sumrin og maður sér að rauðvínsdrykkja hefur aukist en mér sýnist að sterka áfengið sé á undanhaldi, segir Karl Norðdahl verkstjóri hjá Grænum skátum en þar eru menn með puttana á púlsinum. |
s-349
| Lagt er til að fenginn verði óháður og vanur fundarstjóri til að stjórna fundinum þar sem búast má við átakamiklum fundi; tillaga er um að Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður, verði fenginn í verkið, segir í tilkynningunni: |
s-350
| Samtök breskra lögfræðinga til stuðnings Ísraelsríkis og bandarísk samtök sem berjast gegn gyðingahatri hafa skrifað Jon Ola Sand, framkvæmdastjóra Eurovision, bréf þar sem hann er hvattur til að reka hljómsveitina Hatara, íslensku keppendurna í ár, úr keppni. |
s-351
| Í fyrrasumar lýsti hann yfir óánægju með fréttaflutning fréttastofu RÚV af fjárkúgunarmálinu svokallaða, þar sem tvær systur reyndu að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. |
s-352
| Að telja rangt fram í þá veru sem hér hefur verið tæpt á getur haft verulegar fjárhagslegar afleiðingar fyrir verktakann og verkkaupann. |
s-353
| Flestir flokkar eru reknir með 0–5 starfsmönnum í dag og samtals eru 13 fastráðnir starfsmenn hjá þeim átta flokkum sem eiga fulltrúa á Alþingi. |
s-354
| Þetta hefur verið hundur en ég hef engan grunaðan, segir Sigurður Sigurjónsson, bóndi á Ytri-Skógum í Rangárþingi eystra, í samtali við Vísi. |
s-355
| Með því að skoða bílaleigubíla einu sinni á ári má ætla að sé hægt að draga úr líkum á að atvik sem þetta komi upp. |
s-356
| Arsenal er að ganga í gegnum erfiða tíma í boltanum eins og staðan er, en liðið hefur tapað fimm af síðustu sjö leikjum í öllum keppnum. |
s-357
| Fyrstu um sinn hafi hann aðallega notast við gámaflutninga, hann hafi afhent hafnarverkamanni í Rotterdam pakka og svo einfaldlega sótt þann sama pakka í Reykjavík. |
s-358
| En þegar hún gerði sínar uppgötvanir og fann ójafnréttið brenna á eigin skinni var tíminn réttur og hún var einmitt manngerðin til að sinna þessari baráttu. |
s-359
| Borgin Suriago í samnefndu héraði varð hvað verst úti í skjálftanum, hvers upptök voru aðeins nokkra kílómetra frá borginni, á einungis 10 kílómetra dýpi. |
s-360
| Hryðjuverkaárásum hefur fjölgað í landinu síðan að herinn steypti þáverandi forseta landsins, Múhameð Morsi af stóli en margir stuðningsmanna hans kenndu kristnum mönnum um valdamissi forsetans. |
s-361
| Brittanny skoraði 40 stig á 60 prósentum, þetta heldur bara áfram að vera satt ef Brittanny spilar vel þá á Keflvík töluverðann meiri möguleika að vinna, sagði Darri. |
s-362
| Hann er hjá sama plötufyrirtæki og ég en það heitir Key Records þannig að þetta var svona fjölskyldutúr. bætir hann við en hann segir túrinn hafa gengið mjög vel. |
s-363
| Jón segir að í Evrópu takist á öfl frjálslyndis og samvinnu annars vegar og einangrunarhyggju hins vegar, merki þess séu farin að sjást hér á landi í kringum EES samninginn. |
s-364
| Már Guðmundsson, Gylfi Zoëga og Katrín Ólafsdóttir studdu tillöguna en Arnór Sighvatsson og Þórarinn G. Pétursson greiddu atkvæði gegn henni og kusu heldur að vextir yrðu lækkaðir um 0,25 prósentur. |
s-365
| Og það fór drjúgur tími í gerð þessara búninga sem voru ansi margir og þá má ekki við neinum mistökum sem gætu orðið sýningunni og leikhúsinu dýrkeypt, segir hún. |
s-366
| Í janúar á þessu ári var svo skjalfest að framhaldsskólum sé heimilt að taka mið af fleiri gögnum en lokaeinkunnum úr grunnskóla eins og niðurstöður samræmdra prófa. |
s-367
| Hún neitar því að hægt sé að kalla þetta nokkurs konar frí, en segir þau fá lausa klukkustund hér og þar, sem flestir nýta til þess að hvíla sig. |
s-368
| Hún vísaði í áðurnefnda yfirlýsingu þar sem haft er eftir henni að Harpa og Sigur Rós treysti því að peningarnir verði endurgreiddir, enda sé Kári ekki lengur aðili að verkefninu. |
s-369
| Síðast þegar ég vissi þá var allt í standi og maðurinn sem þú vitnar í( Richard), þá fannst honum þetta bara í lagi, segir Kristófer. |
s-370
| Hnausastrengur er einn af alræmdustu stórlaxastöðum landsins og ef að líkum lætur þá er þetta ellefti laxinn sem kemur á land þar í sumar sem er um og yfir 20 pund. |
s-371
| Útlendingar sem hafa barist með þeim verða þó ekki fluttir frá borginni. |
s-372
| Hann greindi frá þessu í grein á Bloomberg View nú í kvöld. |
s-373
| Kensington höllin er nú þegar með yfir 22 herbergi og tvö eldhús. |
s-374
| Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, tekur undir með Gísla. |
s-375
| Gaskútarnir voru keyptir hjá Olís og eru frá Kosan Gas í Danmörku. |
s-376
| Frá áramótum á heilsugæslan að vera fyrsti viðkomustaður þeirra sem þurfa heilbrigðisþjónustu. |
s-377
| Þá geti stuðningur við íbúðakaup gert mörgum kleift að fara af leigumarkaði. |
s-378
| Við erum hreinlega að kljást við það að fá fólk til samstarfs. |
s-379
| Birna bendir á að fyrst nú komi þessar upplýsingar fram hjá kærendum. |
s-380
| Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. |
s-381
| Fólk hefur getað notað kerfið til að villa á sér heimildir og svíkja út peninga. |
s-382
| Theodór segir að fyrirtæki hér á landi og víðar séu ekki nægilega meðvituð um öryggismál. |
s-383
| Ég segi þá Nei, nei, ég er að fara með hann. |
s-384
| Í svari MAST kemur fram að stofnunin fékk fyrstu tilkynningu um atvikið mánudaginn 12. febrúar. |
s-385
| Þvert á tímann er heimildarmynd en tekin eftir handriti og Matthías leikur sjálfan sig. |
s-386
| Því miður þekki ég mörg dæmi um fólk með geðsjúkdóma sem hefur tekið eigið líf. |
s-387
| Hann sagði hins vegar að gífurlega stór hópur fólks hefði tekið honum fagnandi. |
s-388
| Haukar eru ódrepandi og með seiglu og skynsemi náðu þeir að saxa niður forskot Akureyringa. |
s-389
| Ný borgarstjórn kemur saman til síns fyrsta fundar klukkan 14.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. |
s-390
| Pushpa segist engin tengsl hafa við fjölskyldu sína enda enginn lifandi af hennar nánustu ættingjum. |
s-391
| Þá voru varamennirnir Gunnar Heiðar og Alvaro Montejo duglegir í að sækja fyrir Eyjamenn. |
s-392
| Er það græðgi að vonast eftir að fjárfesting og ómæld vinna skili örlitlum arði? |
s-393
| Sveitarstjórinn og sveitarstjórnarmenn eru ánægðir með að fá svona ungan mann inn í sveitarstjórn. |
s-394
| Á Vesturlandi er éljagangur og hvasst en þó eru víða aðeins hálkublettir á láglendi. |
s-395
| Áður hafði lögregla sagt að 14–16 hefðu hlotið minniháttar til lífshættuleg sár. |
s-396
| Ef félagsskiptabann Chelsea stendur þá mun félagið ekki leyfa neinum leikmanni að yfirgefa félagið. |
s-397
| Í gær voru þrír menn, grunaðir um að vera samverkamenn Albakrs, handteknir. |
s-398
| Og ekki heldur í Bandaríkjunum eða Japan, ef út í það er farið. |
s-399
| Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hafnar því alfarið að vera ásteytingarsteinn gagnvart lögreglunni í heimilisofbeldismálum. |
s-400
| Við viljum klára tímabilið með stæl og fáum bikarinn afhendan á laugardaginn næsta. |
s-401
| Kuriki hafði klifið tvo aðra rúmlega átta þúsund metra háa fjallstinda, einn síns liðs og án súrefniskúta. |
s-402
| Búið er að taka í notkun 600 fermetra hús með veitingastað og búningsklefum og 500 fermetra útisvæði. |