is-modern-dev

Universal Dependencies - Icelandic - Modern

LanguageIcelandic
ProjectModern
Corpus Partdev

Javascript seems to be turned off, or there was a communication error. Turn on Javascript for more display options.

index sentence 1 - 6 > sentence 7 - 17

Virðulegi forseti. Mig langar þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og fyrir kippa okkur á Alþingi inn í raunveruleikann í vinnu okkar við fjárlagagerðina og hugsa um hana út frá manneskjunum á bak við þessar tölur sem við erum fjalla um. Mig langar spyrja hv. þingmann um þetta sem hún nefndi með blekkingarskattheimtuna. Ég er sammála þingmanninum, það slær mig líka mjög skringilega hvernig þetta er sett fram í fjárlögum. Sveitarfélög mega til dæmis ekki útbúa fjárhagsáætlanir sínar svona. Þau gjöld sem eru tekin á ákveðnum stað eru mörkuð á þann stað aftur þannig mér finnst líka skringilegt hvernig er hægt setja allt saman í einn pott og svo bara einhvern veginn útdeila. Píratar eru með vettvang til auka beint lýðræði og auka þátttöku til samfélagsins, Betra Ísland, og því langar mig spyrja hvort þið sjáið fyrir ykkur eitthvert kerfi sem gerir skattheimtuna gagnsærri og jafnvel þá fólk geti haft áhrif á hvernig skattpeningum þess er varið eins og fólk getur núna gert með sóknargjöldin, er það ekki?

Download XMLDownload textSentence viewDependency trees