Dependency Tree
Universal Dependencies - Icelandic - PUD
Language | Icelandic |
---|
Project | PUD |
---|
Corpus Part | test |
---|
Select a sentence
s-1
| Svo snemma sem árið 1926 hafði Meyer skrifað Irène Joliot-Curie og lagt til að Rona ynni með henni svo hann gæti lært að gera eigin pólonsýni á tilraunastofunni sinni. |
s-2
| Þegar Hans Pettersson gat tryggt fjármagn til að greiða kostnað Rona leyfði Joliot-Curie henni að koma og læra að einangra pólon við Curie-stofnunina í París. |
s-3
| Rona þróaði bætta aðferð við að meðhöndla pólongjafa og mynda alfageislun. |
s-4
| Henni fór að hlotnast viðurkenning sem sérfræðingur í greininni og hún flutti þessa færni, og lítinn disk með póloni, aftur með sér til Radínstofnunarinnar. |
s-5
| Þessi diskur gerði Rona kleift að búa til tilraunasýnishorn af póloni, sem var notað í mörgum síðari rannsóknum stofnunarinnar. |
Text view
•
Download CoNNL-U