s-101
| „Læknar hafa ekki þessi verkfæri, bara lyfseðilshefti og sprautu“ sagði Mailis. |
s-102
| Yfirmaður óháðs eftirlits með lögreglunni í Ontario, Gerry McNeilly, ákvarðaði skilyrðin fyrir úttekt sinni í vikunni í kjölfar þess að „alvarleg álitaefni“ komu upp varðandi samskipti lögreglumanna við frumbyggja. |
s-103
| Í úttektinni verða ögrandi Facebook-færslur frá því í september, sem lögreglumenn í borginni í Norður-Ontario eru sagðir hafa skrifað, einnig rannsakaðar. |
s-104
| Yfirmennirnir fengu einnig svokölluð „árangurslaun“ fyrir að uppfylla eða fara fram úr væntingum, 1,5 milljón dala pott sem þeir deildu á milli sín, eða um 15.000 dali á mann að meðaltali. |
s-105
| Fjárframlög til hennar eru yfir 1,4 milljarðar dala og rúmlega 6.000 manns starfa þar. |
s-106
| Alríkisstjórnin birtir óumbeðin samanteknar upplýsingar um árangurslaun og bónusa hjá hverri deild, en síðasta netfærslan er fyrir 2013-2014, þ.e. tveggja ára gömul. |
s-107
| Heildarupphæð árangurslauna og bónusa það ár var 1,5 milljónir dala, álíka mikið og fyrir 2015-2016. |
s-108
| Gomery, sem fór fyrir rannsóknarnefndinni um styrkjahneyksli alríkisstjórnarinnar á árunum 2004 til 2006, segir að slíkir aðilar séu nauðsynlegir svo almenningur geti endurheimt trúna á réttarríkið. |
s-109
| Það leiddi til uppljóstrana á síðustu tveimur dögum um að minnst sex aðrir blaðamenn í Quebec hafi verið undir eftirliti héraðslögreglunnar. |
s-110
| „Það á ekki að veita einstaklingum eða samtökum nokkurn sérstakan aðgang að ríkisvaldinu, eða gefa sérstakan aðgang til kynna, vegna fjárframlaga viðkomandi til stjórnmálamanna eða stjórnmálaflokka“ stendur í leiðbeiningunum. |
s-111
| Dómarinn í réttarhöldunum yfir Duffy vegna svika og trúnaðarbrots úrskurðaði loks að þau hefðu samræmst reglum þingsins þegar hann sýknaði Duffy af öllum ákæruatriðum. |
s-112
| Farsímarnir okkar eru svo miklu meira en símar þessa dagana. |
s-113
| „Þetta er ótrúlegt“ sagði Lindsay Gay, viðskiptavinur SaskTel með ótakmarkað gagnamagn, í síðasta mánuði. |
s-114
| Hann benti líka á að Rogers kynnti nýlega nýtt forritaverkfæri sem hjálpar viðskiptavinum að fylgjast með gagnanotkun sinni. |
s-115
| Það er vegna þessa sem við komum alltaf aftur til að fá meira. |
s-116
| „Þessar áætlanir fara saman við hlutfall nýrra blokkaríbúða sem fara á leigumarkað þegar byggingu þeirra er lokið, sem gefur til kynna það mikilvæga hlutverk sem (innlendir) fjárfestar gegna á húsnæðismarkaðnum í Toronto og nágrenni.“ |
s-117
| „Þetta afbrigði linar bakverki, þetta slær á ógleði, þessi vara hjálpar þér að sofa á nóttunni“ sagði Dietrich í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Denver í Colorado, þar sem sala á grasi er lögleg. |
s-118
| En þar sem lagarammi er ekki til staðar, og í ljósi uppruna grass sem hugbreytandi alþýðulyfs, eru fyrirtæki engu nær. |
s-119
| Járn er lífsnauðsynlegt efni sem líkaminn þarf til að mynda blóðrauða, prótínið í rauðum blóðkornum sem flytur súrefni til vefja líkamans. |
s-120
| Nú er biðtíminn átta vikur. |
s-121
| Það er mögulegt að vera með eðlilegt magn blóðrauða en lítinn járnforða í heildina, segir Canadian Blood Services (CBS). |
s-122
| Nýju járnviðmiðin þýða að þörf er á fleiri gjöfum. |
s-123
| Það sem byrjaði sem venjuleg sónarskoðun varð flókið þegar verðandi móðurinni Margaret Boemer, frá Pano í Texas, var sagt að ófætt barn hennar þjáðist af sjaldgæfum sjúkdómi og þyrfti að fara í aðgerð til að lifa af. |
s-124
| Spjald-rófubeinsvaxtarvilluæxli er æxli sem þróast fyrir fæðingu og vex út frá rófubeini barnsins. |
s-125
| Þetta er algengasta æxli meðal ungbarna og finnst hjá einu af hverjum 35.000 fæddum börnum. |
s-126
| Hún var 84 ára gömul. |
s-127
| Hann sagði hana vera „makalausa“ og „ástríka og yndislega“ konu sem setti mark sitt á bókmenntaheiminn með sögum sínum. |
s-128
| „Sumir karlar skilja þetta og Bono er einn þeirra“ sagði Leive í nýlegu viðtali. |
s-129
| Þrátt fyrir að vera aðeins tvítug er hún öflugur talsmaður gegn einelti og hvetur stúlkur til að fagna eigin fegurðarstöðlum. |
s-130
| „Rödd hennar barst bókstaflega um allan heim“ sagði Leive. |
s-131
| Um leið og opinberu myndirnar úr veislunni voru birtar flæddu athugasemdir yfir samfélagsmiðla — og þær voru ekki jákvæðar. |
s-132
| Margt fólk, þar á meðal samtök frumbyggja, taldi þær gera lítið úr frumbyggjamenningu. |
s-133
| Tilgangurinn með þessum vitnaleiðslum Samskiptastofnunar Kanada er að fá viðbrögð frá hagsmunaaðilum í greininni og almenningi. |
s-134
| Þetta myndi ekki aðeins eiga við um skemmtiefni, heldur ekki síður menntun, vísindarannsóknir og, það sem er ef til vill mikilvægast, stjórnmálaumræðu. |
s-135
| Internetið er jú enginn munaður; það er nauðsynlegt verkfæri. |
s-136
| Brotin mynduðu hring í kringum miðbaug jarðar og þyngdaraflið þjappaði þeim loks saman svo tunglið myndaðist. |
s-137
| Enn er þó spurningum ósvarað. |
s-138
| Í bænum Hillsborough, rétt fyrir utan Chapel Hill, fleygði einhver eldsprengju í höfuðstöðvar repúblíkanaflokksins í síðasta mánuði. |
s-139
| Eftir að Norður-Karólína hafði samþykkt frumvarpið um auknar skorður við kosningarétti árið 2013 fór Campbell á milli kirkja til að kenna fólki að takast á við vefengingar á skráningu. |
s-140
| Hann gat skynjað áhrif kosninganna í umhverfinu, í árásarhrinunum og undarlegu samspili nýrra hugmynda og gamalla. |
s-141
| Þetta ósamræmi á milli efnahagsupplýsinga og orðagjálfurs stjórnmálamanna er kunnuglegt, eða ætti að vera það. |
s-142
| Hagfræðingar repúblikana vara við því að taka þessum gögnum sem sönnun þess að flokkur þeirra sé með lélega efnahagsstefnu. |
s-143
| „Ég veit ekki hver vöxturinn í vergri þjóðarframleiðslu var í stjórnartíð Washington og Lincoln, en þróun stofnana á þessum kjörtímabilum hafði mikil og langvarandi áhrif.“ |
s-144
| Það er fleira ólíkt en líkt með Sulla og Trump og Rómaveldi og Bandaríkjum, en það ómerkir ekki líkindin. |
s-145
| Og, viðurkenndi hún, „maður þarf að gá að því sem hún hefur viðurkennt að við þurfum að gera á annan hátt, og sem við getum gert betur, og það sem hún hefur sagt að hún sjái eftir.“ |
s-146
| En eftir því sem gagnrýnin á Clinton sem forsetafrú varð meinlegri jókst hluttekning Karel. |
s-147
| „Mér finnst ég vera voldugur þegar ég leik hann“ sagði Donald Trump eftirherman John Di Domenico í viðtali við Slate í fyrra. |
s-148
| Eftir því sem forsetakosningarnar 2016 verða móðursýkislegri er Karel meira umhugað um ógn sem er alvarlegri en kjaftæði. |
s-149
| Þetta eru yfirleitt listamenn sem vilja gera ýmislegt. |
s-150
| Svo lýkur auglýsingunni. |
s-151
| Upptökustjórar Miami-bassatónlistar voru hárnákvæmir í þeirri list að hreyfa rassa, sem var þeirra helsta viðfangsefni. |
s-152
| Í nýlegu viðtali lýstu Zay og Zayion því þegar þeir tóku upp útgáfu sína af „Knuck If You Buck“ á heimilisfartölvu. |
s-153
| En áskoranir, og lögin sem þeim fylgja, bæta alltumlykjandi og rekjanlegu taugakerfi við hinn óreiðukennda fjölda grófkornóttra myndbandslykkja. |
s-154
| Upprifjanir þeirra undirstrika kosti góðrar áskorunar, listrænnar eða annarrar: óþægindi, þroska og þýðingarmikil tengsl. |
s-155
| Platón taldi mun öruggara að fela vandlega menntuðum gæslumönnum völdin. |
s-156
| Eins og margt fólk sem ég þekki hef ég eytt síðustu mánuðum í að vaka fram eftir og lesa skoðanakannanir með skelfingu. |
s-157
| Caplan gefur lítið fyrir eftirákosningar og vitnar í tvo fræðimenn sem segja þær „engu rökréttari en að drepa faraóinn þegar Níl flæðir ekki yfir bakka sína“. |
s-158
| En það var ekkert annað augljóslega listrænt við hana eða hegðun hennar gagnvart öðru fólki. |
s-159
| Árið 2010 gaf stofnunin út letursetta útgáfu af Draumi Spóla til hægðarauka þeim sem leist ekki á skissukennt yfirbragð ofsetprentunarinnar. |
s-160
| Í tölvupóstssamskiptum við Woods spreytti ég mig á því að finna „etým“. |
s-161
| „Algjör vanræksla á eigin heilsu“ sagði Alice, eiginkona hans. |
s-162
| Hvert kort á sýningunni segir sína sögu, ekki allar raunsannar. |
s-163
| Einnig eru sýnd í fyrsta sinn kort frá breska varnarmálaráðuneytinu sem sýna ímyndaðar kaldastríðsorrustur og sem voru notuð í prófum í herskóla. |
s-164
| Kjördæmið er í umdæminu North Kesteven, þar 62% kjósenda studdu útgöngu úr ESB. |
s-165
| Hæfileika hans við að fá svör fyrir hönd skattgreiðenda verður sárt saknað. |
s-166
| Christian Wolmar, sem hefur skrifað fjölda bóka um járnbrautasögu, býður sig fram í kosningunum 1. desember. |
s-167
| Frjálslyndir demókratar, sem voru fulltrúar þessa auðuga úthverfis til 2010, vonast til að hreppa það aftur með frambjóðanda sínum, Söruh Olney. |
s-168
| Um leið hefur fráskilin eiginkona þingflokksformanns í ríkisstjórninni hafið baráttu sína um þingsætið. |
s-169
| Hann var mjög kurteis og tók þessu karlmannlega, ég er algjörlega brjáluð. |
s-170
| Rúmlega 330 áhafnarmeðlimir eru um borð í skipinu. |
s-171
| Vega benti á að vegna aldurs þeirra væru margir ómeðvitaðir um sögu skipsins. |
s-172
| Fólk var drepið þar. |
s-173
| Kolakynt orkuver í Badarpur, í suðaustur-Delhi, hættir að starfa í 10 daga, auk dísilrafstöðva í borginni. |
s-174
| Því næst starfaði hann í fjögur ár við útvarpssendingar BBC World Service í Bush House. |
s-175
| Hann starfaði hjá BBC í áratug. |
s-176
| Í einni margra sorgarfærslna þeirra á Facebook var setning sem hefði kætt Chris: „Ég hef ekki þekkt neinn afrískari en þig.“ |
s-177
| Hver getur stöðvað þetta ástralska lið? |
s-178
| Var ekki lengur innistæða fyrir heilögu tilkalli þeirra til þess að vera bestir í heimi? |
s-179
| Þeir fá eitt tækifæri til að gera yfirbót: með því að vinna Englendinga. |
s-180
| Það er næstum komið að vendipunkti hjá Suður-Afríkubúum og við verðum að vera jafngrimmir og þeir. |
s-181
| Hann er hörkulegur í leik sínum en hefur líka mjúkar hendur. |
s-182
| Við erum með frábært lið og þetta er tækifæri til að stefna fram á við. |
s-183
| Maður verður að standa í lappirnar og ég vil frekar að einhver hlaupi á mig en í kringum mig. |
s-184
| Það var eins og hann sveiflaði boltanum fram og aftur á milli þriggja bolla á hvolfi. |
s-185
| Ástralir, sem höfðu herst í nýlegum leikjum sínum í rúgbímeistaradeildinni, voru í hærri gír. |
s-186
| Sigur Donalds Trump myndi strax gera heiminn kvíðvænlegri og óstöðugri en hann er nú þegar. |
s-187
| Frú Clinton hefur orð á sér fyrir herskáar skoðanir, en þær munu mildast þar sem almenningur í Bandaríkjunum er orðinn þreyttur á stríði. |
s-188
| Hann hefur mælt með pyntingum. |
s-189
| Ég á líka erfitt með aðgangsorð. |
s-190
| Svo eru það svokölluðu sönnu sögurnar, sem eru birtar í formi myndaraða með texta undir þeim. |
s-191
| Að sjálfsögðu skil ég að það þarf að gera greinarmun á Þýskalandi nútímans og stjórn Nasista. |
s-192
| Í horninu er stúlka með höfuðklút og í gallabuxum sem er svo látlaus að ég held að hún sé annar aðstoðarmaður. |
s-193
| Listamenn ná til hjarta fólks; þetta er eina skiptið sem við mætumst á sama stað og gleymum því sem aðskilur okkur. |
s-194
| Á meðal óvenjulegri nafnbóta hans eru alþjóðlegur sendiherra Heilbrigðisstofnunar New York borgar og staða við Viðskiptaháskóla Harvard. |
s-195
| Ég get bara gert það við lífið mitt. |
s-196
| Ég vildi horfa á hana með þeim, en þau ákváðu loks að þau vildu frekar horfa á hana án mín. |
s-197
| Við getum ekki látið forsetaembættið falla í skaut Donalds Trump, manns sem er með svo mikla kynþátta- og kynjafordóma og svo ótrúlega óhæfur til að vera æðsti yfirmaður heraflans. |
s-198
| „Fleira fólk grípur til lántöku ... Þótt þessi lán séu ef til vill viðráðanleg núna gætu skyndilegar breytingar á aðstæðum leitt til skuldavanda.“ |
s-199
| Rök hennar eru að hann veiti ófullnægjandi vernd fyrir störf og lífskjör bandarísks verkafólks, sem hann kunni að skaða. |
s-200
| Í þessu samhengi er vit í því að bölsótast út í viðskipti. |