s-303
| Jú, alveg sammála þér í því,“ sagði Haukur. |
s-304
| Haukur hefði eðlilega viljað sjá alla bestu kylfinga heims á leikunum, annað sé lélegt. |
s-305
| Ólympíuleikarnir séu stórkostlegur viðburður og kynning fyrir golfíþróttina. |
s-306
| Pólska liðið Kielce stóð uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu í handbolta eftir sigur á Aroni Pálmarssyni og félögum hans í ungverska liðinu Veszprém í úrslitaleik á sunnudag. |
s-307
| Dómararnir sem dæmdu úrslitaleikina fjóra voru allir með myndavélar á bringunni og því er nú hægt að sjá hvernig það er að dæma stærstu handboltaleiki í heimi. |
s-308
| Íslenska dómaraparið Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leik Kiel og Paris Saint-Germain um þriðja sætið. |
s-309
| Í spilaranum að ofan er myndband sem finna má á heimasíðu Evrópska handknattleikssambandsins þar sem búið er að taka saman brot úr undanúrslitaleikjunum tveimur, milli Kiel og Veszprém annars vegar og Kielce og Paris Saint-Germain hins vegar. |
s-310
| Jón Arnar Magnússon horfði á Ara Braga Kárason slá nítján ára gamalt met sitt í 100 metra hlaupi í sjónvarpinu á laugardag. |
s-311
| Hann bíður nú eftir því að fleiri af metum sínum verði slegin. |
s-312
| Spretthörðustu menn landsins mættust á sérstöku hlaupamóti í Kaplakrika í gær til að reyna við met Jóns Arnars, 10,56. |
s-313
| Svo fór að Ara Braga Kárasyni tókst ætlunarverkið, hann hljóp 100 metrana á 10,52. |
s-314
| „ Sem betur fer, loksins. |
s-315
| Ég er búinn að bíða í 19 ár eftir að það færi og loksins fór það,“ voru viðbrögð Jóns Arnars við því að Íslandsmet hans í 100 metra hlaupi væri nú fallið. |
s-316
| Jón Arnar sá metið slegið í sjónvarpsfréttum en hefði viljað vera á staðnum til að fagna með nýjum methafa. |
s-317
| Hann er ánægður með hlaup Ara Braga í gær. |
s-318
| „ Þetta heppnaðist rosalega vel. |
s-319
| Ég bíð bara eftir að hann fari niður fyrir 10,50, jafnvel 10,40. |
s-320
| Hann á alveg það inni sko,“ sagði Jón Arnar við RÚV. |
s-321
| En hvernig var tilfinningin að sitja í sófanum heima og sjá metið fara? |
s-322
| „ Hún var bara allt í lagi. |
s-323
| Ég vissi svosem alltaf að þetta myndi fara. |
s-324
| Og eins og ég sagði oft þá var ég ekkert sérstakur spretthlaupari. |
s-325
| Ég var fínn í tugþraut en sem spretthlaupari, ef maður fer að bera sig saman við löndin í kring, þá hefði maður ekki átt mikið í þá.“ Jón Arnar segir að það hafi ekki þótt neitt sérstaklega fínt að tugþrautamaður ætti metið í 100 metra hlaupi. |
s-326
| Það er því svolítið fyndið að metið sé nú í höndum manns sem er jafnþekktur fyrir trompetleik og íþróttahæfileika og spilaði á tónleikum langt fram á nótt daginn fyrir hlaupið. |
s-327
| „ Já ég er svolítið ánægður með Bæjarlistamann Seltjarnarness. |
s-328
| Mér finnst það svolítið gott, það er ágætt,“ sagði Jón Arnar. |
s-329
| En af hverju hefur þetta ekki gerst á síðustu 20 árum? |
s-330
| „ Ég bara veit það ekki. |
s-331
| Spurning hvort frjálsarnar hafi nokkuð verið IN. |
s-332
| Krakkarnir hafa kannski farið í annað, eða strákarnir. |
s-333
| Samt er þetta nú einfaldasta greinin, hlaupa bara hratt. |
s-334
| En ég veit það ekki, þetta virðist vera að koma, það eru fullt af strákum að koma núna sem hlaupa hratt.“ Jón Arnar á enn nokkur met. |
s-335
| Í 200 m hlaupi, 110 metra grindahlaupi, langstökki og tugþraut utanhúss og önnur þrjú innanhúss. |
s-336
| Hann býst við að þau fjúki á næstu árum. |
s-337
| „ Já ég er nú að vona það, Ari getur nú alveg tekið 200, svo er annar strákur, Kolbeinn, sem er farinn að höggva nærri, mér er orðið illt í hælunum eins og ég sagði. |
s-338
| En þeir eiga bara að taka þetta, það er ekkert mál fyrir þá. |
s-339
| Ég bíð bara,“ sagði Jón Arnar Magnússon. |
s-340
| Ísland mætir Danmörku í vináttulandsleik í knattspyrnu í Herning í Danmörku annað kvöld. |
s-341
| Leikurinn verður fyrsti landsleikur Danmerkur undir stjórn nýs þjálfara því Morten Olsen hætti í haust eftir 16 ára starf. |
s-342
| Norðmaðurinn Åge Hareide stýrði sinni fyrstu æfingu hjá danska landsliðinu í gær og Danir velta því mikið fyrir sér hvort miklar breytingar muni strax sjást á spilamennsku landsliðsins undir hans stjórn. |
s-343
| „ Við erum að æfa og það tekur dálítinn tíma að sjá hlutina breytast. |
s-344
| En ég held að við sjáum eldmóðinn og ánægjuna af því að spila fyrir Danmörki,“ sagði Hareide. |
s-345
| Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, á von á breyttum leikstíl frá Dönum undir stjórn Hareide. |
s-346
| „ Hann vill breytingar hjá danska liðinu, að þeir spili fótbolta, pressi meira og meiri hraða. |
s-347
| Við búumst við því að leikmenn danska liðsins fari eftir því sem þjálfarinn vill og að það verði meiri læti í danska liðinu en hingað til. |
s-348
| Ég held að þeir verði beinskeyttari og búumst við pressu frá Dönunum, sagði Heimir Hallgrímsson. |
s-349
| Leikur Danmerkur og Íslands hefst klukkan sjö annað kvöld og verður sýndur beint á RÚV, upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18.35. |
s-350
| Guðjón Valur Sigurðsson og Vignir Svavarsson missa af fyrri umspilsleik Íslands og Portúgals um laust sæti á HM 2017 í handbolta. |
s-351
| Liðin mætast í Laugardalshöll klukkan 17:00 í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu RÚV. |
s-352
| Guðjón Valur og Vignir meiddust báðir á æfingu í vikunni og var strax ljóst að Vignir myndi tæplega spila leikinn í kvöld. |
s-353
| Guðjón Valur taldi þó líklegra að hann gæti náð leiknum, en nú er ljóst að svo verður ekki. |
s-354
| Þá er Snorri Steinn Guðjónsson enn meiddur og Alexander Petersson gaf ekki kost á sér í leikina við Portúgal. |
s-355
| Hrafnhildur Lúthersdóttir tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum 100 m bringusunds kvenna á Evrópumótinu í 50 m laug sem haldið er í London. |
s-356
| Keppendum var raðað í fimm riðla í undanrásunum og var Hrafnhildur í fimmta og síðasta riðlinum. |
s-357
| Hún varð önnur í sínum riðli og synti á tímanum 1:07,99 mín. en Íslandsmet hennar í greininni er 1:06,87 mín.„ Ég er ánægð með þetta sund. |
s-358
| Það eru hlutir sem ég veit að ég get bætt og ég á meira inni,“ sagði Hrafnhildur eftir sundið, en hún var skráð inn á EM með fjórða besta tímann í 100 m bringusundi af þeim keppendum sem þar eru. |
s-359
| Næsta markmið Hrafnhildar er skýrt. |
s-360
| „ Næst er bara að koma sér í úrslit og synda vonandi hraðar í kvöldin. |
s-361
| Annars er bara að hafa gaman að þessu,“ sagði Hrafnhildur þegar RÚV ræddi við hana. |
s-362
| Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá allt viðtalið sem tekið var við Hrafnhildi eftir sund hennar í undanrásunum í morgun. |
s-363
| Þrír Íslendingar verða því í eldlínunni á EM í sundi í kvöld. |
s-364
| Því auk Hrafnhildar munu Eygló Ósk Gústafsdóttir og Anton Sveinn McKee keppa í úrslitum í 200 m baksundi og 100 m bringusundi. |
s-365
| Öll sund kvöldsins verða sýnd í beinni útsendingu á RÚV sem hefst klukkan 17:00. |
s-366
| 17:00: 50 m flugsund karla, úrslit 17:07: 100 m skriðsund kvenna, undanúrslit 17:15: 100 m baksund karla, úrslit 17:21: 50 m flugsund kvenna, úrslit 17:36: 100 m bringusund karla, úrslit Anton Sveinn McKee 17:42: 100 m bringusund kvenna, undanúrslit Hrafnhildur Lúthersdóttir 17:50: 200 m fjórsund karla, undanúrslit 18:08: 200 m baksund kvenna, úrslit Eygló Ósk Gústafsdóttir 18:23: 200 m skriðsund karla, undanúrslit 18:40: 4x100 m fjórsund blandaðra kynja, úrslit Íslendingum sem keppa í sundhlutanum í kvöld gæti enn fjölgað um einn, því Bryndís Rún Hansen syndir í undanrásum 100 m skriðsunds um kl. hinn 10. |
s-367
| Bryndís Rún er skráð inn á mótið með 48. besta tímann í greininni, þannig að hún þarf að eiga frábært sund til að komast áfram í undanúrslit, því þangað komast aðeins sextán bestu. |
s-368
| Mikill fjöldi keppenda er í 100 m skriðsundinu og er því keppt í níu riðlum, og er Bryndís Rún skráð í fimmta riðil í undanrásunum. |
s-369
| Uppfært: |
s-370
| Bryndís Rún Hansen komst ekki í undanúrslit í 100 m skriðsundinu. |
s-371
| „ Vá. |
s-372
| Þetta var bara æðislega gaman. |
s-373
| Sama hvað hefði gerst eða komið út úr þessu, þá var þetta bara svo skemmtilegt og æðislegt að synda með þessum stelpum. |
s-374
| Ég var greinilega með svona góðar stelpur í kringum mig, því ég hélt bara í við þær. |
s-375
| Ég kláraði greinilega það vel að ég náði þriðja sæti. |
s-376
| Þannig ég gæti ekki verið ánægðari,“ sagði Hrafnhildur Lúthersdóttir við RÚV eftir að hafa endað þriðja í úrslitum 200 m bringusunds á EM í 50 m laug í London í kvöld. |
s-377
| Hrafnhildur synti á nýjku Íslandsmeti, 2:22,96 mín og bætti þar með gamla metið sitt um 10/100 úr sekúndu, en fyrra Íslandsmetið var 2:23,06 mín. |
s-378
| „ Ég var bara að reyna að koma í bakkann eins fljótt og ég gæti. |
s-379
| Ef það myndi skila mér verðlaunasæti yrði það bara frábært. |
s-380
| Ef ekki þá vissi ég allavega að ég var að synda á frekar góðum tíma. |
s-381
| Þannig ég hefði í raun verið ánægð með hvað sem hefði komið út úr þessu sundi, sagði Hrafnhildur eftir úrslitasundið í London, þegar RÚV ræddi við hana strax að loknu sundi. |
s-382
| Hrafnhildur hefur nú unnið til tvennra verðlauna á EM í London, því hún vann til silfurverðlauna í 100 m bringusundi í fyrrakvöld. |
s-383
| „ Mig dreymdi alltaf um að fá verðlaun á EM. |
s-384
| En ekki þetta sko. |
s-385
| Ég bara veit ekki hvernig ég á að vera. |
s-386
| En núna var ég kannski aðeins meira að búast við því að komast á verðlaunapall. |
s-387
| Því ég kom allavega með maskara með mér núna,“ sagði Hrafnhildur kímin. |
s-388
| „ Mér fannst svo gaman á verðlaunapallinum síðast og vildi ekki að það tæki enda. |
s-389
| En nú fæ ég allavega fimm mínútur á honum í viðbót,“ sagði sunddrottningin Hrafnhildur Lúthersdóttir og silfurverðlaunahafi í 100 m bringusundi. |
s-390
| Hrafnhildur er langt frá því að hafa lokið keppni á EM í London, því hún syndir í undanrásum 50 m bringusundsins í fyrramálið. |
s-391
| Af keppendum sem skráðir eru inn á mótið á Hrafnhildur 9. besta tímann í greininni og því góðar líkur á því að hún komist í undanúrslit og jafnvel úrslit. |
s-392
| Þá mun Hrafnhildur synda bringsundið með boðsundssveit Íslands í 4x100 m fjórsundi á sunnudag. |
s-393
| Eygló Ósk Gústafsdóttir mun synda baksundið, Bryndís Rún Hansen skriðsundið og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir flugsundið. |
s-394
| Viðtalið við Hrafnhildi má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. |