Dependency Tree
Universal Dependencies - Icelandic - PUD
Language | Icelandic |
---|
Project | PUD |
---|
Corpus Part | test |
---|
Select a sentence
s-1
| Árið 1839 háðu Kínverjar fyrsta Ópíumstríðið við Stóra Bretland þegar yfirlandstjóri Hunan og Hubei, Lin Zexu, bannaði erlend viðskipti með ópíum. |
s-2
| Kínverjar lutu í lægra haldi og árið 1842 samþykktu þeir skilmála Nanking-sáttmálans. |
s-3
| Hong Kong-eyja var látin af hendi til Breta og tilteknar hafnir, svo sem í Sjanghæ og Guangzhou, voru opnaðar fyrir viðskiptum og búsetu Breta. |
s-4
| Árið 1856 braust annað Ópíumstríðið út. Aftur lutu Kínverjar í lægra haldi og neyddust til að samþykkja skilmála Tientsins-sáttmálans árið 1856 og Peking-samningsins árið 1860. |
s-5
| Sáttmálinn opnaði nýjar hafnir fyrir viðskiptum og gerði útlendingum kleift að ferðast inni í landinu. |
Text view
•
Download CoNNL-U